Fréttablaðið - 04.07.2020, Page 2

Fréttablaðið - 04.07.2020, Page 2
Ég vissi ekki að þetta yrði svona stuðandi, það hafa margir verið að pirra sig á þessu. Ólöf Bóadóttir, listamaður Veður Austlæg eða breytileg átt 3-8 m/s, en 8-13 með suðurströndinni. Skýjað með köflum og stöku skúrir á Suður- og Vesturlandi, og sums staðar þokubakkar austan til, en bjartviðri norðanlands. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast í innsveitum fyrir norðan. SJÁ SÍÐU 30 Róður í rjómablíðu „Hafið, bláa hafið...“ söng skáldið forðum og dróg ef til vill huga þessara ungu ræðara til þess sem liggur bak við ystu sjónarrönd. Siglinganám- skeið hjá Siglingaklúbbnum Þyti fór fram í blíðviðrinu í Flensborgarhöfn í gær. Hefur þú heimsótt æskudraumalönd í sumar? MYND/ERNIR ÍÞRÓTTIR „Við spáðum að þetta yrði eitt stærsta golfsumar í manna minnum, því ef landið yrði lokað þyrfti fólkið að finna sér eitthvað að gera og okkur sýnist að það sé að verða raunin,“ segir Brynjar Eldon Geirsson, framkvæmdastjóri Golf- sambands Íslands. Brynjar sér mikla aukningu í eftirspurn eftir því að gerast með- limur í golfklúbbunum. „Einhverjir klúbbar eru fullir og geta ekki tekið við f leirum, en svo eru aðrir sem eru ennþá með laus pláss, bæði úti á landsbyggðinni og á höfuðborgar- svæðinu,“ segir hann. Að sögn Brynjars voru samtals skráðir um átján þúsund félagar í rúmlega sextíu golf klúbba lands- ins. „Við erum spennt fyrir því að fá í hús á næstu vikum tölur frá klúbb- unum og sjá hvernig aukningin er. Aðspurður hvort þessi staða þýði ekki að mun erfiðara sé að komast að á golfvöllum en áður, segir Brynj- ar það ekki endilega vera svo. „Það er augljóslega meiri traffík á golfvöllum landsins og í einhverjum tilfellum þýðir það að erfiðara sé að komast að. Vellirnir voru opnaðir á mismunandi tímum í vor og þar af leiðandi myndaðist töluverður þrýstingur á þeim völlum sem var búið að opna. En það er örugglega mismunandi eftir golf klúbbum hvernig umferðin hefur þróast, segir Brynjar. – gar Golfklúbbar fá fjölda umsókna Brynjar Eldon Geirsson, fram- kvæmdastjóri Golfsambandsins. MENNING Listaverk á horni Freyju- götu og Óðinsgötu er horfið í annað sinn á stuttum tíma. Í fyrra skiptið var það fjarlægt af borgarstarfs- mönnum, en fyrir heppni tókst að bjarga því frá förgun. „Ég vissi ekki að þetta yrði svona stuðandi. Það hafa margir verið að pirra sig á þessu, nágrannar hafa kvartað og aðrir leikið sér á því. Ég er búin að þurfa að gera við það nokkrum sinnum. Nú er það bara horfið,“ segir Ólöf Bóadóttir, lista- maður. Verkið heitir Ferró skiltagerð og var tómt vindskilti með langa fætur, sem skorðaðir voru undir bekki á torginu. Það er hluti af sýningunni Skúlptúr í formi hárbolta sem fer fram í sýningarrými Harbinger, hinum megin við götuna. „Vind- skiltin eru út um allt og það er allt í lagi ef þau eru neytendavæn: verkið inniheldur engan kapítalískan áróður. Mér finnst svo fyndið að jafn klossaður hlutur og vindskilti er, sé notaður til að stýra hegðun fólks í dag þegar upplýsingaöf lun gerir algóriþmum kleift að sinna því á mun hlédrægari hátt.“ Verkið var sett upp fyrir þremur vikum og átti að standa fram yfir helgi, en þetta er síðasta sýningar- helgin. Skúlptúr í formi hárbolta er opin á föstudag, laugardag og sunnudag á milli klukkan 14 og 17 í Harbinger á Freyjugötu 1. Í fyrra skiptið sem verkið hvarf höfðu starfsmenn borgarinnar verið að verki, þó svo að listaverkið sé með leyfi frá borgaryfirvöldum. „Þeir tóku það niður,“ segir Ólöf og hlær hátt. „Ég fékk símtal frá Stein- unni Önnudóttur sem rekur sýning- arrýmið og fór í gegnum fimm skref sorgarinnar á augnabliki.“ Hafði kunningi Ólafar fyrir til- viljun séð borgarstarfsmenn saga verkið niður með slípirokk. „Verkið stóð í bútum við gám fyrir málma. Reiðin rann samt f ljótt af mér, þar sem þeir voru sérlega indælir. Við drifum verkið inn á verkstæði til þeirra þar sem ég sauð það aftur saman.“ Í svari frá umhverfis- og skipu- lagssviði borgarinnar segir að mis- tökin séu afskaplega leiðinleg. Ólöf fékk  góðar sárabætur frá borginni, þar á meðal aðstoð við að laga verkið og koma því aftur fyrir. „Ég innti eftir því hvort ekki vantaði starfskraft á verkstæðið og fékk símtal klukkutíma síðar, þar sem mér var boðin staða. Ég vinn nú við að gera borgina snyrtilega yfir sumartímann.“ Nú er búið að taka verkið niður aftur, í þetta skipti var það ekki borgin. Ólöf hefur engan ákveðinn grunaðan, en er með kenningar. „Líklegt er að einhverjum nágrann- anum hafi ekki þótt mikið til verksins koma og tekið málin í eigin hendur.“ arib@frettabladid.is Listaverk Ólafar hefur verið fjarlægt tvisvar Listaverk á horni Freyjugötu og Óðinsgötu er horfið í annað sinn á stuttum tíma. Í fyrra skiptið söguðu starfsmenn borgarinnar það niður fyrir mistök. Listamaðurinn segir marga hafa pirrað sig á verkinu og nágrannar kvartað. Listaverkið Ferró skiltagerð hefur staðið á horni Freyjugötu og Óðinsgötu. GÓÐA FERÐ INNANLANDS   TAX FREE* af förðunarvörum, ilmvötnum og völdum húðvörum *19,35% verðlækkun Gildir 15. júní - 27. júlí 2020 í verslunum og í netverslun Ly VIÐSKIPTI Samið hefur verið um að dótturfélög Brims í Asíu sem starfa í Japan, Hong Kong og Kína, geti notað vörumerkið Icelan- dic við sölu og markaðssetningu íslenskra sjávar afurða. Í samræmi við ákvörðun sem tekin var þegar Framtakssjóður Íslands af henti ríkissjóði vörumerkin Icelandic og Icelandic Seafood árið 2018, hefur Íslandsstofa nú umsjón með vöru- merkjunum. Þá hefur einnig verið gengið frá samningi við bandaríska dreifing- arfyrirtækið Greenwood Group um sölu á fiskolíum undir nafninu Icelandic Wild Fish Oil, sem Sag- aNatura framleiðir. „Árangursríkir samningar um notkun Icelandic vörumerkisins hafa legið fyrir um árabil við High Liner Foods í Norður-Ameríku. Iceland Seafood og Ibérica á Spáni og Suður-Evrópu nýta einnig vöru- merkið,“ er haft eftir Þorkeli Sigur- laugssyni, formanni stjórnar Icel- andic í tilkynningu. – bþ Icelandic til Asíu 4 . J Ú L Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.