Fréttablaðið - 04.07.2020, Blaðsíða 4
Þegar tvö stórfyrir-
tæki sameinast á
svona örmarkaði eins og á
Íslandi, þá hlýtur það að
bitna á þeim sem taka ekki
jafn mikið pláss.
Karl Ágúst Úlfs-
son, formaður
Rithöfundasam-
bands Íslands
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI, VARA- OG AUKAHLUTAVERSLUN
Pallbílahús frá ARE á alla USA pallbíla
Varahlutaverslun ÍSBAND býður upp á gott úrval vara- og aukahluta og
íhluta til breytinga. Allir helstu varahlutir í okkar vörumerkjum eru til á
lager. Sérpöntum varahluti í aðra USA bíla.
Úrval af felgum fyrir
Jeep® og RAM
Upphækkunarsett
í Wrangler
Upphækkunarsett
í RAM
Falcon demparar
ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF • VERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN • SMIÐSHÖFÐA 5 • 110 REYKJAVÍK
SÍMI 590 2323 • THJONUSTA@ISBAND.IS • WWW.ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA KL. 07:45 - 18:00
ALMENNT BÍLAVERKSTÆÐI OG
SMURÞJÓNUSTA FYRIR ALLA BÍLA
ALLIR VINNA - ENDURGREIÐSLA VSK.
FIAT HÚSBÍLAR - ÁBYRGÐAR OG
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI
BREYTINGAR Á JEEP®, RAM
OG ÖÐRUM USA PALLBÍLUM
ALLIR BÍLAR SÓTTHREINSAÐIR
STUTTUR BIÐTÍMI SÍMI 590 2323
UMBOÐSAÐILI
TÖLUR VIKUNNAR 28.06.2020 TIL 04.07.2020
92,2
prósent gildra atkvæða í forseta-
kosningunum síðustu helgi, féllu í
hlut Guðna Th. Jóhannessonar.
2.200
manns sóttu rafrænt ökuskírteini
á sömu sekúndu á miðvikudags-
kvöldið. Nokkuð álag var á kerfinu.
465
Teslu-bílar hafa selst á Íslandi það
sem af er árinu. Er það næstmest
selda bílategundin á eftir Toyota.
84
ár er meðalævilengd íslenskra
kvenna. Íslenskir karlar lifa að
meðaltali í 81 ár.
3
milljarða króna kosta endurbætur
á Lundarskóla á Akureyri, eftir að
mygla kom upp í byggingunni.
Einar Hermannsson
formaður SÁÁ
var kosinn
formaður
samtakanna
á aðalfundi
á þriðjudag.
Tvær fylkingar
tókust á og fjöldi
manna lýsti stuðningi við fram-
boð Einars, sem sigraði Þór-
arin Tyrfingsson, fyrrverandi
formann SÁÁ, með miklum
yfirburðum. Arnþór Jónsson,
fráfarandi formaður, sóttist
ekki eftir endurkjöri.
Hall dóra Mo gensen
þingmaður Pírata
barðist hart fyrir
frumvarpi um
afglæpavæðingu
neysluskammta
á fíkniefnum.
Frumvarpið var
fellt og í kjöl-
farið brutust mikil
mótmæli út á samfélagsmiðlum.
Þá kallaði Áslaug Arna Sigur-
björnsdóttir dómsmálaráðherra
frumvarpið ónothæft. Stjórnar-
liðar hafa boðað annað frumvarp
í opnu samráði.
Sigrit Ericksdottir
söngkona
söng sig inn í hug
og hjörtu heims-
byggðarinnar
með lagi um
samnefndan
heimabæ
sinn Húsavík,
í Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva sem
sýnd er á Netf lix. Myndin fær
misjafna dóma og sitt sýnist
hverjum.
Þrjú í fréttum
formaður,
þingmaður og
söngstjarna
VIÐSKIPTI „Þetta var einróma
afstaða,“ segir Karl Ágúst Úlfsson,
formaður Rithöfundasambands
Íslands, RSÍ, um harðorða ályktun
stjórnar sambandsins vegna kaupa
sænska fyrirtækisins Storytel á 70
prósenta hlut í Forlaginu, stærstu
bókaútgáfu Íslands.
Kaup Storytel eru nú til skoðunar
hjá samkeppnisyfirvöldum. Stjórn
Rithöfundasambandsins kveðst
hafa áhyggjur af „enn meira valda-
ójafnvægi á bókamarkaði,“ ef kaup-
in gangi eftir, því stærsta bókaút-
gáfa landsins og eina streymisveita
hljóðbóka verði í eigu sama aðila.
„Samruni stórra aðila á markaði
leiðir iðulega til skerðingar á virkri
samkeppni, sem kemur neytendum
og öðrum á markaði illa,“ segir í
ályktun stjórnarinnar.
„Stjórn RSÍ vantreystir hinu
sænska móðurfélagi og stjórn-
endum þess, því reynsla höfunda
af dótturfélaginu Storytel á Íslandi
er ekki góð og sömu sögu má heyra
frá félögum okkar á hinum Norður-
löndunum,“ segir áfram í ályktun-
inni. Greiðslur til þeirra sem eiga
verk hjá Storytel á Íslandi séu afar
lágar og tekjumódelið ógegnsætt.
„Stjórnin óttast að tilgangur
eiganda Storytel á Íslandi, Storytel
AB í Svíþjóð, sé að komast nær höf-
undarverki íslenskra höfunda og
eyða allri samkeppni á hljóðbóka-
markaði,“ segir áfram. Höfundar
og útgefendur ytra hafi borið því
vitni að frelsi þeirra og menn-
ingarleg áhersla hafi beðið hnekki
með eignarhaldi Storytel AB.
„Slíkt vekur ugg í brjósti höfunda
hér á landi, sporin ytra hræða, en
reynslan ein mun leiða í ljós hvort
sama öfugþróun verði hérlendis.“
Fundur stjórnarinnar í gær stóð
í yfir fjórar klukkustundir. Karl
Ágúst segir að þurft hafi að fara yfir
mikið af gögnum. „Meðal annars
frá hinum Norðurlöndunum, þar
sem hafa verið svipaðir hlutir að
gerast. Við erum að reyna að læra
af reynslu kollega okkar þar og
líka reynslu smærri útgefenda á
Norðurlöndum,“ útskýrir hann.
Þar að auki hafi stjórnin rætt ýmis
samningamál sambandsins við
Félag bókaútgefenda.
Aðspurður um stöðu annarra
bókaútgefenda á Íslandi segist Karl
Ágúst hafa þungar áhyggjur af litlu
forlögunum. „Þegar tvö stórfyrir-
tæki sameinast á svona örmarkaði
eins og á Íslandi, þá hlýtur það að
bitna á þeim sem taka ekki jafn
mikið pláss. Þarna eru orðnir
ákveðnir yfirburðir og í raun og
veru fákeppni með svona sam-
runa,“ segir hann.
Þá undirstrikar Karl Ágúst að
hlutverk Rithöfundasambandsins
sé að standa vörð um kjör rithöf-
unda.
„Ef eitthvað gerist sem vekur hjá
okkur áhyggjur um að til dæmis
samningsstaða rithöfunda gæti
versnað, andspænis svona stóru
batteríi, verðum við að taka mark
á því og láta þær áhyggjur í ljós.“
gar@frettabladid.is
Höfundar vantreysta Storytel
Fákeppni gæti ríkt í íslenskri bókaútgáfu, segir formaður Rithöfundasambandsins. Stjórn þess óttast að
lítil samkeppni verði á íslenskum hljóðbókamarkaði með kaupum Storytel á meirihluta í Forlaginu.
Stjórn Rithöfundasambands Íslands ræddi kaup Storytel á Forlaginu á löngum fundi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
4 . J Ú L Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð