Fréttablaðið - 04.07.2020, Side 6
Kjósa þarf nýjan forseta
réttarins þegar Þorgeir
Örlygsson lætur af embætti
1. september næstkomandi
DÓMSTÓLAR Þorgeir Örlygsson,
forseti Hæstaréttar, og Gréta Bald-
ursdóttir hafa óskað lausnar frá
embætti hæstaréttardómara frá
1. september næstkomandi.
Mikil kynslóðaskipti hafa orðið
við réttinn á undanförnum miss-
erum. Markús Sigurbjörnsson,
sem gegnt hafði embætti hæsta-
réttardómara í aldarfjórðung, lét af
embætti síðastliðið haust og á sama
tíma Viðar Már Matthíasson eftir
tæpan áratug. Fyrr í vor lét Helgi I.
Jónsson af embætti eftir tæp átta ár
í réttinum.
Ingveldur Einarsdóttir var ein
skipuð dómari í stað þeirra Mark-
úsar og Viðars Más, vegna fækkunar
dómara við Hæstarétt sem kveðið
var á um í nýjum lögum um dóm-
stóla sem samþykkt voru árið 2016.
Í stað Helga I. Jónssonar var Sig-
urður Tómas Magnússon, þá lands-
réttardómari, skipaður við réttinn.
Þegar Helgi lét af störfum í vor
sóttu fimm um embættið, Aðal-
steinn E. Jónasson landsréttardóm-
ari, Davíð Þór Björgvinsson lands-
réttardómari, Jóhannes Sigurðsson
landsréttardómari, Sigríður J. Frið-
jónsdóttir ríkissaksóknari og Sig-
urður Tómas. Aðalsteinn og Davíð
Þór drógu umsagnir sínar til baka.
Þegar laus staða við réttinn var
auglýst í fyrra sóttu einnig um þau
Ása Ólafsdóttir prófessor, Guðni Á.
Haraldsson lögmaður og Oddný
Mjöll Arnardóttir landsréttar-
dómari.
Gréta Baldursdóttir var skipuð
dómari við Hæstarétt árið 2011 og
hefur setið í réttinum í níu ár. Hún
var um tíma eina konan í Hæstarétti
þar til Ingveldur Einarsdóttir var
skipuð hæstaréttardómari í fyrra.
Nú eru tvær konur skipaðar við rétt-
inn og fimm karlar.
Þar sem skipa þarf í tvær stöður
við réttinn nú er mögulegt í fyrsta
skipti í sögu hans að kynjahlutföll
verði eins jöfn og kostur er, með
þremur konum og fjórum körlum.
Þorgeir Örlygsson hefur setið
jafnlengi Grétu í Hæstarétti, frá
1. september 2011. Hann var kjör-
inn forseti réttarins 1. janúar 2017.
Hann hefði gegnt því hlutverki út
næsta ár hefði hann ekki kosið að
óska lausnar frá dómaraembætti
nú.
Benedikt Bogason var kjörinn
varaforseti Hæstaréttar þegar Helgi
I. Jónsson hvarf úr réttinum í vor og
má gera ráð fyrir því að hann verði
kjörinn forseti réttarins þegar Þor-
geir lætur af embætti.
Sem fyrr segir hafa mikil kyn-
slóðaskipti orðið við réttinn undan-
farin ár. Af núverandi dómurum við
Hæstarétt hefur Ólafur Börkur Þor-
valdsson gegnt embætti langlengst
en hann var skipaður árið 2003 og
hefur því setið í réttinum í átján ár.
Á eftir honum koma þau Gréta og
Þorgeir sem nú hafa óskað lausnar
en þau voru skipuð árið 2011.
Samkvæmt stjórnarskrá geta
dómarar við Hæstarétt óskað
lausnar frá Hæstarétti við 65 ára
aldur án þess að missa neins af
eftirlaunum sínum. Flestir dóm-
arar hafa nýtt þennan rétt sinn og
farið á eftirlaun um 65 ára aldurinn.
Af þeim dómurum sem nú sitja við
réttinn, að frátöldum þeim Grétu og
Þorgeiri, er Ingveldur elst en kemst
þó ekki á leyfilegan eftirlaunaaldur
fyrr en eftir fjögur ár. Því má ætla
að mannabreytingum ljúki í bili við
réttinn þegar skipað hefur verið í
stöður þeirra Grétu og Þorgeirs.
adalheidur@frettabladid.is
Kynjahlutföllin gætu
jafnast við Hæstarétt
Tveir nýir dómarar verða skipaðir við Hæstarétt í haust þegar Þorgeir Örlygs-
son og Gréta Baldursdóttir láta af embætti. Mikil endurnýjun hefur orðið í
réttinum og nokkur ár gætu liðið áður en næsti dómari lætur af embætti.
Sjö dómarar skipa Hæstarétt eftir að hann fékk nýtt hlutverk með nýjum dómstólalögum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Aldur og skipunartími
n Ólafur Börkur Þorvaldsson
(f. 1961) skipaður 1. septem-
ber 2003
n Benedikt Bogason (f. 1965)
skipaður 1. september 2012
n Karl Axelsson (f. 1962)
skipaður 1. október 2015
n Ingveldur Einarsdóttir
(f. 1959) skipuð 1. janúar 2020
n Sigurður Tómas Magnússon
(f. 1960) skipaður 18. maí 2020
n Tveir dómarar verða skipaðir
1. september 2020
CARNIVAL
ÞÉR ER BOÐIÐ Í CARNIVAL
Á FIMMTUDAGINN
Amabadama, Dj Goggi, Bríet, Auður,
Dj Dóra Júlía, Sirkus Íslands, Gógó Starr,
Einar Mikael, Carnival drottningin
Josy Zareen og fleiri frábærir gestir
halda uppi sjóðheitri stemningu.
Borðapantanir á sushisocial.is og í síma 568 6600
ÞÚ MÁTT EKKI MISSA AF ÞESSU!
SMÁRÉTTIR
Avókadó franskar 1.290 kr.
Laxa ceviche 1.890 kr.
Japönsk BBQ Baby back rif 2.490 kr.
Kjúklinga Yakitori 2.390 kr.
Social style nauta carpaccio 1.990 kr.
Nautaspjót Anticucho 2.390 kr.
DJÚSÍ SUSHI
Surf‘n turf – 4 bitar 1.690 kr.
Samba – 4 bitar 1.590 kr.
Lax – 4 bitar 1.490 kr.
EFTIRRÉTTUR
Karamellu fudge 1.490 kr.
Tónlistgleði ogglimmer-barinn
Matur
og dr
ykkur
á hát
íðar-
verði
@SushiSocialReykjavik
KÓPAVOGUR Farið verður í fram-
kvæmdir við heilsuleikskólann Kór
í Kórahverfi í Kópavogi í sumar eftir
að mygla fannst í austur- og suður-
hluta skólans. Þetta kom fram á
opnum fundi með foreldrum í gær.
Skólinn er rekinn af Skólum ehf. en
byggingin er í eigu Kópavogsbæjar.
Samkvæmt tölvupóstum, sem
ræddir voru á fundinum, kom fram
að stjórnendur Skóla ehf. fengu
vitneskju um leka- og rakavanda-
mál í skólanum í janúar. Starfs-
maður skólans tók sýni í vor sem
send voru á Náttúrufræðistofnun
Íslands og kom þá í ljós mygla.
Þeir foreldrar sem tóku til máls
á fundinum voru nokkuð reiðir og
fullyrtu margir að börn hefðu sýnt
mikil einkenni sem rekja mætti til
myglunnar.
Fram kom í máli Gunnars Más
Karlssonar, deildarstjóra fasteigna
bæjarins, að farið yrði í fram-
kvæmdir í sumarlokun leikskólans.
Hefði bærinn verið beðinn að bíða
með vinnuna til sumarlokunar.
Rifnir verða upp dúkar undir
gluggum á austurhliðinni og heil-
brigðiseftirlit mun taka skólann út
áður en starfsemi hefst í ágúst. Sagði
hann að margt hefði mátt gera betur
en málið væri ekki sambærilegt því
sem kom upp í húsnæði Íslands-
banka við Kirkjusand.
„Auðvitað er hægt að læra af
öllum mistökum sem gerð voru en
ekkert benti til þess að þetta væri
eitthvað hættulegt fyrir starfsmenn
eða börn,“ sagði Gunnar. – ab
Vissu af rakavandamálunum í janúar
Foreldrar fullyrtu á
fundinum að börn hefðu
sýnt einkenni sem rekja
mætti til myglunnar.
4 . J Ú L Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð