Fréttablaðið - 04.07.2020, Síða 8

Fréttablaðið - 04.07.2020, Síða 8
TYRKLAND Réttarhöld vegna morðs- ins á sádi-arabíska blaðamanninum Jamal Khashoggi, hófust í Tyrklandi í gær. Tuttugu Sádar eru ákærðir, en enginn sakborninganna er við- staddur réttarhöldin. Khashoggi var myrtur í október árið 2018 á ræðisskrifstofu Sádi- Arabíu í Istanbúl. Hann hafði lengi verið gagnrýninn á stjórnvöld Sádi- Arabíu, meðal annars á krónprins- inn Mohammad bin Salman og konunginn Salman af Sádi-Arabíu. Tveir af sakborningunum eru nánir aðstoðarmenn krónprinsins. Í fyrstu neituðu sádi-arabísk stjórnvöld að hafa nokkuð með hvarf Khashoggis að gera, en viður- kenndu síðar meir að hann hefði lát- ist á skrifstofunni. Lík hans fannst aldrei, en talið er að hann hafi verið bútaður niður. Réttarhöld vegna málsins fóru fram í Sádi-Arabíu í fyrra, þar sem átta manns voru dæmdir fyrir morðið. Þar af voru fimm dæmdir til dauða fyrir að taka þátt í morð- inu, en þrír til fangelsisvistar fyrir að breiða yfir það. Enginn sakborn- inganna hefur verið nafngreindur og hafa margir kallað réttarhöldin í Sádi-Arabíu farsa. Meðal vitna í réttarhöldunum í gær var starfsfólk sem starfaði við ræðismannsskrifstofu Sáda í Istan- búl um það leyti sem Khashoggi var myrtur. Þau sögðust hafa fengið fyr- irmæli um að halda sig fjarri skrif- stofunni þann dag. – atv Réttarhöld vegna Khashoggis eru hafin í Tyrklandi Khashoggi var myrtur á ræðisskrif- stofu Sádi-Arabíu í Istanbúl 2018. VINNUM ARK AÐUR Vinnumála- stofnun greiddi út um 5,4 milljarða króna í atvinnuleysisbætur fyrir nýliðinn júnímánuð. Þar af voru 1,3 milljarðar vegna hlutabóta- leiðarinnar. Þetta kemur fram í svörum stofnunarinnar við fyrir- spurn Fréttablaðsins. Til samanburðar voru um 8,6 milljarðar greiddir út vegna maí, en rúmur helmingur fjárhæðarinnar þá, eða 4,4 milljarðar, var vegna hlutabóta. Vinnumálastofnun hefur aldr- ei afgreitt f leiri umsóknir um atvinnuleysisbætur en undan- farnar vikur og mánuði. „Þrátt fyrir það er afgreiðslu- tími stofnunarinnar í sumum málum of langur. Það má því segja að afgreiðsla á umsóknum hafi almennt gengið vel, en samt hefur ekki tekist að afgreiða allar umsóknir á viðunandi tíma,“ segir í svari Vinnumálastofnunar. Brugðist hefur verið við stöðunni með enn frekari fjölgun starfsfólks sem sinnir úrvinnslu umsókna og móttöku gagna. Nærri allir einstaklingar sem hafa fengið umsóknir sínar samþykktar, hafa fengið greitt fyrir júní. Í svari stofnunarinnar segir að misræmi í skráningu, eða leiðrétting á tíma- bili, kunni í einhverjum tilvikum að tefja greiðslur. Þrjár hópuppsagnir voru til- kynntar til Vinnumálastofnunar í júnímánuði. Alls misstu 147 manns vinnuna í þessum uppsögnum. Í til- kynningu frá stofnuninni segir að þar með virðist sú hrina hópupp- sagna sem hófst í tengslum við COVID-19, vera gengin niður. Í hópuppsögnum síðustu mánaða misstu um 7.400 manns hjá 110 fyr- irtækjum vinnuna. Stærsta hópupp- sögnin í júní var hjá PCC á Bakka þar sem um 85 misstu vinnuna. – sar, bdj 5,4 milljarðar í bætur fyrir júní Birt m eð fyrirvara um m ynd- og textabrengl. Reykjavík Krókhálsi 9 Sími: 590 2020 Reykjanesbæ Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330 Opið Virka daga 9–18 Laugardaga 12–16 opel.is FRÁBÆR FERÐAFÉLAGI Opel Grandland X – takmarkað magn Verð 4.490.000 kr. Sjálfskiptur 1975 | Sérfræðingar í bílum | 2020 Atvinnuleysi hefur aukist mikið í kjöl- far COVID. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK VIÐSKIPTI „Þetta er einn af stærri samningum í okkar geira og afar stór viðurkenning fyrir okkar starf. Með þessum samningi erum við orðin þátttakendur á stóra sviðinu,“ segir læknirinn Tryggvi Þorgeirs- son, framkvæmdastjóri og annar af stofnendum Sidekick Health. Pfizer er eitt stærsta og öflugasta lyfjafyrirtæki heims en í einfölduðu máli snýst samstarfið við Sidekick Health um að bæta þjónustu við fólk með ýmsa langvinna sjúk- dóma með stuðningi í gegnum fjar- heilbrigðiskerfi á sviðum sem lyfin hafa ekki áhrif á. Í byrjun árs 2018 var íslenska fyrirtækið valið úr stórum hópi umsækjenda til tilraunasamstarfs við Pfizer. „Sú samvinna hefur gengið afar vel. Sjúklingaprófanir sem við gerðum á fyrri helmingi ársins 2019 komu afar vel út og ánægja sjúklinga var mikil,“ segir Tryggvi. Í kjölfarið vildi Pfizer útvíkka sam- starf fyrirtækjanna og nú er ráðgert að lausnin sem Sidekick Health hefur þróað verði innleidd í fimm sjúkdómaf lokkum í 5-10 Evrópu- löndum á næstu misserum. „Mikill meirihluti allra sjúkdóma sem við glímum við eru langvinnir sjúkdómar þar sem lífsstíll getur haft afgerandi áhrif.“ Sidekick Health hefur því þróað lausn í gegnum fjarheilbrigðiskerfi sem veitir sjúklingum margskonar stuðning. „Sá ávinningur sem Pfizer sér í samstarfi við okkur er að auka Milljarðasamstarf við Pfizer Bandaríski lyfjarisinn tilkynnti um tímamótasamning við íslenska fyrirtækið Sidekick Health í vik- unni. Umsvif íslenska fyrirtækisins munu stóraukast og starfsmannafjöldi gæti tvöfaldast næsta árið. Meira á frettabladid.is Tryggi Þorgeirsson, framkvæmdastjóri Sidekick Health. líkurnar á því að meðhöndlun sjúk- dóma með lyfjagjöf beri tilætlaðan árangur,“ segir Tryggvi. Ly f jarisar heimsins hor fa í auknum mæli til tæknilausna sem geti hjálpað til við lyfjameðferðina. Þar kemur Sidekick Health til skjal- anna en rannsóknir og sjúklinga- prófanir hafa sýnt að með því að bæta lausn fyrirtækisins inn í hefð- bundna meðferð megi bæta ýmsar útkomur svo sem þyngdar- og blóð- sykurstjórn, streitueinkenni, þung- lyndis- og kvíðaeinkenni, lífsgæði og dánarlíkur. Þá hjálpar tæknin einnig til við lyfjaheldni sjúklinga sem er afar mikilvægt enda deyja um 300 þúsund manns árlega í Evrópu og Bandaríkjunum vegna þess að lyf eru ekki tekin með reglubundnum hætti. „Að auki hjálpum við fólki að skilja og takast á við sjúkdóm sinn í daglegu lífi, svo sem með fræðslu og samskiptum við aðra sjúklinga. Loks býður kerfið upp á fjareftirlit og fjarstuðning heilbrigðisstarfs- fólks.“ Virði samningsins er áætlað um 8 milljónir evra á næstu tveimur árum eða um 1,3 milljarðar króna. Stöðugildi hjá Sidekick Health eru 25 en Tryggvi reiknar með að sú tala tvöfaldist á næstu tólf mán- uðum. bjornth@frettabladid.is 4 . J Ú L Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.