Fréttablaðið - 04.07.2020, Síða 10

Fréttablaðið - 04.07.2020, Síða 10
Gunnar ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Vegagerðin ætlar þannig sjálf að rannsaka málið sem hún ber ábyrgð á. Jón Þórisson jon@frettabladid.is Því hefur verið haldið fram að eftirlits-iðnaðurinn hér á landi sé fyrirferðar-mikill og sogi til sín of mikið fé. Það má rökstyðja það. En það má líka benda á að eftirlit sé nauðsyn, ekki síst þegar líf og limir eru undir. Tvennt hefur nýlega gerst sem koma hefði mátt í veg fyrir hefði eftirliti verið sinnt. Annars vegar er mann- skæður bruni í Vesturbænum í Reykjavík í liðinni viku þar sem þrír fórust. Hins vegar banaslys á Kjalar- nesi þar sem tvennt fórst. Í fjölmiðlum hefur verið rifjað ýmislegt upp um sögu hússins sem brann. Það er dapurlegur lestur. Af honum má ráða að árum saman hafi brunavörnum verið áfátt og flóttaleiðir fátæklegar. Samt viðgekkst að þar væri fólki búin vist, fólki sem hingað hafði f lust. Upplýst var að fyrir skipulagsyfirvöldum lægi erindi um að auka enn frekar ábúð í húsinu. Það verður ekki. Það skortir ekki á fyrirmæli í byggingar- reglugerðum um öryggi og aðbúnað þegar nýbygg- ingar eiga í hlut. En það virðist auðvelt að taka löngu byggð hús úr byggingarefnum sem þá tíðkuðust eða hús sem ætluð voru til annarra nota og breyta þeim í dauðagildrur og bjóða erlendu vinnuafli, sem hingað leitar betra lífs, og leigja dýru verði. Jafnvel greiða fyrir dvölina með lífi sínu. Þegar ekki má reisa pall, girðingu eða saga niður tré án leyfis, hvernig getur þetta þá gerst? Víkur þá sögunni að Kjalarnesi. Vegagerðin fer fyrir vegabótum og uppbyggingu vegakerfisins. Hluti þeirra verkefna er boðinn út og lagt fyrir verktaka að fylgja fyrirskrift stofnunarinnar um hvernig verkið skuli innt af hendi, í því skyni að hámarka nýtingu á takmörkuðu fé sem til ráðstöfunar er í nauðsynleg verkefni. Síðla síðustu viku hafði verktaki malbikað spotta á Kjalarnesi. Svo verður um helgina þetta hörmulega atvik sem kostaði tvö mannslíf. Í Frétta- blaðinu sagði umferðaröryggissérfræðingur að ljóst væri að ekki hefði verið farið eftir uppskrift við gerð malbiksins. Sambærileg blanda væri notuð til að útbúa hálkusvæði við ökuskóla í öðrum löndum. Í fréttum hafa fyrirsvarsmenn Vegagerðarinnar sagt að stofnunin beri endanlega ábyrgð. Rannsaka þurfi bikið og senda í greiningu, helst til útlanda. Vegagerðin ætlar þannig sjálf að rannsaka málið sem hún ber ábyrgð á. En það er ekkert nýtt að hættulegt yfirlag sé lagt út á íslenskar akbrautir. Í kjölfar kvartana varð niður- staðan sú að fræsa ofan af f lughálu yfirlagi sem lagt var á Hafnarfjarðarveg. Það var árið 2015. Því fer fjarri að hægt sé að sætta sig við að ítrekað sé notað bik sem veldur slysahættu. Hvers vegna var þetta bik, sem öllum mátti vera ljóst að væri stórvara- samt, notað enn og aftur – að fyrirmælum Vega- gerðarinnar? Beðið verður niðurstöðu rannsókna um hvers vegna nýlagt bik varð dauðagildra. En það dugar ekki að Vegagerðin rannsaki sjálf mál sem hún hefur lýst yfir að bera ábyrgð á. Til þess þarf einhvern annan. Eftirlitið Mín skoðun Lára G. Sigurðardóttir Áður en ég vissi af var ég komin í faðminn á konunni. Hún hafði teygt út handleggina og í einfeldni minni hélt ég að hún væri að bjóða mér faðmlag. Þegar ég greip um axlirnar á konunni skynjaði ég að hún spenntist upp og steig til hliðar. Í stað þess að fá innilegt faðmlag vorum við komnar í einskonar glímu, COVID-glímu. Mér leið strax kjánalega og sagði við sjálfa mig: „mikið geturðu verið taktlaus, svona gerir maður ekki í ljósi aðstæðna.” En það var of seint því snerting hafði átti sér stað. Hið snarasta bryddaði ég upp á umræðuefni til að taka athyglina af hinu vandræðalega „faðmlagi“. Eftir þriggja mánaða stofufangelsi í Kaliforníu þyrsti mig í félagsleg tengsl. Þau eru ekki auðsótt á þessum tímum. Sýklar á fyrsta farrými Þó margt sé komið í eðlilegt horf hér á landi þá getur það að heilsast verið snúið. Snerting hefur mikið félagslegt gildi. Meira að segja dýrin nota snertingu til að tengjast hvert öðru. Í okkar samfélagi hefur tíðkast að heilsast með handabandi. Sagt er að það sé ekki einungis kurteisi heldur veki það traust og styrki félagsleg tengsl. Juliana Schroeder við Berkeley háskóla hefur rannsakað handabandið og segir menn ná meiri árangri í viðskiptum takist þeir í hendur: „Það breytir ekki einungis hvernig þú skynjar hinn aðilann, heldur hvernig þú lítur á aðstæðurnar. Þú segir við sjálfan þig: Nú erum við að vinna saman en ekki gegn hvor öðrum.” Kostir og gallar Handabandið hefur kosti og galla. Þar sem hendur eru notaðar til að bora í nef, skeina rass og plokka leifar úr tönnum, þá ferjum við sýkla á fyrsta farrými til næsta manns. Kannanir sýna að margir þvo hendur illa eða alls ekki eftir salernisferðir. Rannsókn frá 2011 sýndi að handþvottur með sápu dregur mikið úr saurbakt- eríum en tryggir samt ekki að þær hverfi með öllu. Síðustu ár hafa menn þó bent á að með handabandi fáum við einnig nytsamlegar bakteríur sem verja okkur gegn skaðlegum sýklum. Hvaðan kemur handabandið? Móðir mín kenndi mér að heilsa. Því þéttingsfastara og ákveðnara handaband, því meira mark er tekið á manni. Og ég kenndi sonum mínum slíkt hið sama. Út frá handabandi ályktum við gjarnan um persónu- leika þess sem snertir lófa okkar. En hvaðan kemur sá vani að heilsast með því grípa um hönd annarra? Sú kenning sem hefur líklega notið mestrar hylli er að handaband sé tákn friðar. Með því að rétta fram höndina sýndirðu að þú bærir ekki vopn og þegar þú hristir höndina hressilega vissir þú að handa- bandsfélaginn hefði ekkert að fela í erminni. Sú iðja að takast í hendur sést á ævafornum grafreitum og steinhellum, m.a. á myndum af guðum að gera með sér samning. Það teygir sig meira að segja aftur til Ódysseifskviðu Hómers frá um 750 f. Kr. Nýjar leiðir Íslendingar hafa þó nýtt sér aðrar leiðir til að heils- ast. Í sögubókum er sagt frá því að menn hafir hér áður fyrr lyft hatti eða hneigt sig. Eitt er ljóst að það er eðlilegt að við setjum handabandið í hlé, en það væri hjálplegt ef við kæmum okkur saman um hátt til að heilsast án handabands. Hvort heldur með því að horfast í augu, brosa og kinka kolli, eða reka út tunguna eins og tíðkast í Tíbet. Fyrir mér má handa- bandið hverfa, en án faðmlagsins mun tilveran tapa hlýju. COVID-glíman Opin fræðsla fyrir alla sem nýlega hafa greinst með krabbamein fer fram í Ljósinu, Langholtsvegi 43, næstu mánudaga milli 10:30 - 12:00: 6. júlí: Líðan, virkni og stuðningur 13. júlí: Þreyta - Orkusparandi aðferðir 20. júlí: Sjálfstyrkur, sjálfsmynd 27. júlí: Slökun 10. ágúst: Streita og bjargráð 17. ágúst: Fjölskyldan og samskipti 24. ágúst: Markmiðasetning 4 . J Ú L Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.