Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.07.2020, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 04.07.2020, Qupperneq 16
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir dag- skrárgerðarkona segir þessa helgi alltaf frátekna fyrir Írska daga á Akranesi. Hvað á að gera um helgina? Ég bý á Akranesi og þessi helgi er alltaf frátekin fyrir Írska daga. Ég verð því heima hjá mér með fjöl- skyldu, vinum og nágrönnum. Ég ætla reyndar að renna mér alla leið í borgina í fertugsafmæli hjá stór- vini mínum Audda Blö á laugardag. Ertu vön að ferðast fyrstu helgina í júlí? Nei. Maður svíkur ekki lit á Írsk- um dögum. Ertu tjaldkona eða þarftu rúm til að sofa í? Mig langar svo að vera tjaldkona, en ég er það ekki. Ég vil bara brak- andi hrein sængurföt, almennileg gluggatjöld og dúnkodda. Ég var samt að kaupa mér tjaldvagn í fyrra- dag af því ég er umkringd fólki sem elskar útilegur. Það var annaðhvort að láta sig hafa þetta eða vera ein í allt sumar. Ég hlýt að geta lært að elska þetta. Eru stór ferðaplön þetta sumarið? Já og nei. Ég er búin að fara norður til Akureyrar og til Eyja, labba inn í Reykjadal, leika túrista í Reykjavík og f leira. Vík í Mýrdal og nágrenni er næst á dagskrá, útilega í Skorra- dal og svo eru háleit markmið um að taka hringinn í lok mánaðarins. Er ætlunin að nýta sér tilboð ferðaþjónustuaðila innanlands? Já, ég er þegar búin að kaupa hótelgistingar hér og þar, en langar í hellaskoðun eða ferð upp á jökul einhvers staðar. Á eftir að leggjast aðeins betur yfir það. Fyrsta helgin í júlí Ein stærsta ferðahelgi sumarsins stendur yfir og Íslendingar hafa svo sannarlega tekið vel í að ferðast innanlands. Við forvitnuð- umst um ferðaplön nokkurra skemmtilegra einstaklinga. Sigrún Ósk býr á Akranesi og segist ekki svíkja lit á Írskum dögum sem fara þar fram um helgina. Lára Björg Björnsdóttir, aðstoðar- maður ríkisstjórnarinnar, leggur í hann í hringferð um landið á morgun, hún er ekki mikill ferða- langur og er ekki laust við að hún kvíði ferðinni. Hvað á að gera um helgina? Ég legg af stað í hringferð um landið á sunnudaginn með fjöl- skyldunni og kvíði því meira en öllu. Ertu vön að ferðast fyrstu helgina í júlí? Nei. Mér er aldrei boðið neitt, þannig að … Ertu tjaldkona eða þarftu rúm til að sofa í? Ég bið bara um að lifa nóttina af. Annars sama. Eru stór ferðaplön þetta sumarið? Við ætlum að keyra hringinn eins og áður sagði. Förum suðurleiðina og svo á Austfirði en þar var einmitt spáð þriggja stiga hita og þoku síðast þegar ég fór inn á vedur.is. En ætli það skipti nokkru máli því náttúru- fegurðin bætir upp fyrir smá kulda. Svo stoppum við að sjálfsögðu fyrir norðan þaðan sem ég er ættuð í báðar ættir. Kelduhverfið, Húsavík, Akureyri, þaðan er mitt fólk. Er ætlunin að nýta sér tilboð ferða- þjónustuaðila innanlands? Ég mun elta hvert einasta tilboð sem ég finn, allt frá afslætti á ís upp í slakandi ilmkjarnanudd ofan á ein- hverjum jöklinum. Í hvað mun ferðaávísunin þín fara? Sósur á allan mögulegan grillmat. Ég bið bara um að lifa nóttina af Atli Fannar Bjarkason, samfélags- miðlastjóri RÚV, ætlar að verja helginni í að f lytja með systur sinni en er þó búinn að rölta upp á hæð á Snæfellsnesi svo innra með honum leynist fjallgöngumaður sem langar í húsbíl. Hvað á að gera um helgina? Ég gæti sagt þér að ég sé búinn að eyða vikunni í að pakka ofan í töskur og kortleggja sólríkustu staði landsins, út frá gögnum Veður- stofunnar, reynslu forfeðra okkar, hyggjuviti frænda míns og spálíkani fólksins sem hélt að þríeykið væri að gera tilraunir á fólki með við- brögðum sínum við kórónaveir- unni, en ég verð að hryggja lesendur þessa dálks með grámyglulegum sannleikanum: Ég er að fara að hjálpa systur minni að flytja. Ertu vanur að ferðast fyrstu helg- ina í júlí? Ekkert endilega. Ég vann samt í makalottóinu fyrir nokkrum árum þar sem henni fylgdi ekki bara fall egt bros og frjósemi: fjöl- skylda hennar á sumarbústað sem við notum reglulega. Ég var reyndar bitinn svo rosalega síðast að ég læt örugglega ekki sjá mig þar aftur fyrr en í nóvember. Ertu tjaldmaður eða þarftu rúm til að sofa í? Ég gisti í tjaldi á Hróarskeldu árin 2005 og 2006. Árið 2007 ætlaði ég að endurtaka leikinn en vaknaði eftir fyrstu nóttina með höfuðið í polli. Við brunuðum á hótel og mér hefur ekki tekist að vinna almennilega úr þessari reynslu, þannig að svarið er nei, ég er ekki tjaldmaður. Langar samt pínu í húsbíl. Eru stór ferðaplön þetta sumarið? Ég er búinn fara í Grímsnes og á hótel á Nesjavöllum. Svo er ég nýkominn frá Hellnum á Snæfells- nesi þar sem ég rölti upp á hæð. Og sumarið er varla hálfnað, þannig að já, ég myndi segja að ég sé Vil- borg Arna minnar kynslóðar – ef hún væri minna í að klífa hæstu fjöll heims og meira í að klóra sér í hausnum yfir hvernig sé best að hámarka nætursvefn þriggja ára barns á ferðalagi. Í hvað fer ferðaávísunin þín? Ég er búinn að vera að reyna að gera upp við mig hvort ég eigi að taka nokkrar nætur á hóteli úti á landi, með morgunverði og nuddi eða húsbíl í viku eða tvær, bruna hringinn og nota afganginn í að borða á skemmtilegum veitinga- stöðum víðs vegar um landið. Hvað var þetta aftur mikið sem við fengum? Ég er Vilborg Arna minnar kynslóðar Ævar Þór Benediktsson rithöfundur ætlar að halda sig heima um helgina enda reynir hann að forðast að vera á ferðinni stærstu ferðahelgarnar. Hvað á að gera um helgina? Ég ætla að vera heima um þessa miklu ferðahelgi og hafa það gott. Það er afmæli sem ég ætla að kíkja í úti á Kjalarnesi en annars ætlum við fjölskyldan bara að taka því rólega. Ertu vanur að ferðast fyrstu helg- ina í júlí? Nei, þegar ég fer út á land reyni ég meðvitað að forðast stóru ferða- helgarnar. Ertu tjaldmaður eða þarftu rúm til að sofa í? Tjalddagar mínir eru löngu liðnir, en nú þegar maður er orðinn pabbi grunar mig að það styttist í að þeir hefjist aftur. Eru stór ferðaplön þetta sumarið? Stefnan er tekin norður á Akur- eyri í júlí þar sem við ætlum að vera í viku og ferðast um svæðið. Dalvík, Mývatn og Húsavík verða alveg örugglega heimsótt, sem og auð- vitað Jólahúsið. Það er skylda, eins og allir vita. Er ætlunin að nýta sér tilboð ferða- þjónustuaðila innanlands? Mamma mín er nýbyrjuð að bjóða upp á geitalabb á Gufuá í Borgar- firði fyrir alla sem vilja og ég mun vafalaust nýta mér þann fáránlega skemmtilega valkost sem oftast. Þá mun ég örugglega sökkva mér í hin ýmsu tilboð þegar norður er komið. Tjalddagar mínir eru löngu liðnir Ég hlýt að geta lært að elska þetta Búast má við að Íslendingar verði á ferðinni innanlands nú fyrstu helgina í júlí. MYND/GETTY Lára Björg er ekki mikið fyrir tjald- ferðalög en er á leið í hringferð og þorir varla lengur að skoða vedur.is. Atli Fannar rölti upp á hæð á Snæ- fellsnesi nýlega með son sinn Tind á bakinu. MYND/LILJA KRISTJÁNS Ævar ætlar að vera heima um helg- ina en útilokar ekki að gefa tjaldinu nýjan séns. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR 4 . J Ú L Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R16 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð HELGIN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.