Fréttablaðið - 04.07.2020, Page 40
Barnaverndarstofa
Barnaverndarstofa hefur í aldarfjórðung verið leiðandi í þjónustu við börn, þróun vandaðra vinnubragða og
innleiðingu gagnreyndra aðferða. Stofnunin leitar nú að tveimur öflugum sérfræðingum til starfa.
Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar:
Staða sálfræðings við Barnahús
Sálfræðingurinn heyrir beint undir forstöðumann barnahúss. Um 100% stöðu er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Meðferðarviðtöl við börn sem eru þolendur kynferðis-/líkamlegs ofbeldis.
• Ráðgjöf við barnaverndarnefndir vegna meintra ofbeldisbrota.
• Rannsóknarviðtöl við börn sem þolendur.
• Skýrslu- og vottorðaskrif.
• Önnur verkefni sem forstöðumaður Barnahúss ákveður.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Krafa um sálfræðing með löggildingu á Íslandi.
• Reynsla á sviði meðferðar barna, af vinnu með þolendum ofbeldis, vinnu með foreldrum og af barnaverndarstarfi æskileg.
• Krafa um mjög góða íslenskukunnáttu í ræðu og riti.
• Krafa um enskukunnáttu, kunnátta í einu norðurlandamáli æskileg.
Persónulegir eiginleikar:
• Mikilvægt að búa yfir góðri samstarfshæfni, sveigjanleika og jákvæðu viðhorfi til
skjólstæðinga og samstarfsaðila.
• Mikilvægt er að búa yfir hæfni til að vinna skipulega, markmiðatengt og lausnamiðað.
• Mikilvægt er að geta starfað vel undir álagi í lengri eða skemmri tíma.
Tímabundin staða sérfræðings í málefnum barna
með alvarlegar þroska- og geðraskanir
Sérfræðingurinn heyrir beint undir sviðstjóra meðferðar- og fóstursviðs og mun meðal annars starfa með sérfræðingateymi
sem skipað er af félags- og barnamálaráðherra en teymið er sveitarfélögum til ráðgjafar um viðeigandi þjónustu við umrædd
börn skv. lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Um tímabundna stöðu til eins árs er að
ræða. Starfshlutfall 100%.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Kerfisbundið mat á upplýsingum um vanda og stuðningsþörf barns, greiningum og þjónustuáætlunum og hvaða viðbótarupp-
lýsinga skal aflað fyrir viðeigandi málsmeðferð í sérfræðingateymi.
• Samskipti og ráðgjöf við þverfagleg þjónustuteymi sveitarfélaga og kortlagning á framboði þjónustu og viðeigandi leiða til að
samræma stuðning á landsvísu.
• Öflun upplýsinga um framboð gagnreyndra aðferða og mat á möguleikum á innleiðingu nýrra aðferða í þjónustu á landsvísu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Krafa um meistarapróf í sálfræði, þroskaþjálfun, félagsráðgjöf eða sambærilega menntun sem að mati Barnaverndarstofu
nýtist í starfi.
• Þekking á sviði frávika í hegðun og þroska barna og unglinga, alvarlegum þroska- og geðröskunum og greiningarhugtökum.
• Þekking, reynsla og hæfni til að meta og samræma upplýsingar mismunandi fagaðila og stofnana.
• Þekking og reynsla af notkun kerfisbundinna matsaðferða, s.s. SIS mati á stuðningsþörf eða öðrum matsaðferðum sem að
mati Barnaverndarstofu nýtast í starfi.
• Æskileg reynsla af starfi í þjónustu við börn með alvarlegar þroska- og geðraskanir og foreldra þeirra.
• Krafa um þekkingu og áhuga á gagnreyndum aðferðum í þjónustu við börn og fjölskyldur.
• Krafa um mjög góða íslenskukunnáttu í ræðu og riti.
• Krafa um enskukunnáttu, kunnátta í einu norðurlandamáli æskileg.
Persónulegir eiginleikar:
• Mikilvægt er að búa yfir hæfni til að vinna skipulega, markmiðatengt og lausnamiðað.
• Lögð er áhersla á sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Mikilvægt að búa yfir góðri samstarfshæfni, sveigjanleika og jákvæðu viðhorfi til skjólstæðinga og samstarfsaðila.
Frekari upplýsingar um stöðu sálfræðings við Barnhús veitir forstöðumaður Barnahúss, Ólöf Ásta Farestveit, í síma 530 2500
eða olof@barnahus.is. Frekari upplýsingar um stöðu sérfræðings í málefnum barna með alvarlegar þroska- og geðraskanir
veitir sviðsstjóri meðferðar- fóstursviðs, Halldór Hauksson, í síma 530 2600 eða halldor@bvs.is.
Við úrvinnslu umsókna um störfin gildir mat Barnaverndarstofu á hæfni og eiginleikum umsækjenda. Vakin er athygli á að
Barnaverndarstofa aflar sjálf upplýsinga úr sakaskrá áður en viðkomandi hefur störf hjá stofnuninni. Launakjör eru samkvæmt
kjarasamningum BHM og ríkisins. Tekið er mið af jafnréttisáætlun Barnaverndarstofu við ráðningar á stofuna.
Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst 2020. Umsóknir skulu berast til Barnaverndarstofu á netfangið bvs@bvs.is.
Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig
viðkomandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem gerðar eru.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Allar umsóknir gilda í sex mánuði frá birtingu ef starf losnar að nýju innan þess tíma.
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
• Uppsetning og rekstur hleðslustöðva fyrir rafbíla í
Reykjavík, útboð 14923
• Hverfið mitt 2020 - austur. Almenningssalernihús í
Gufunesi, útboð nr. 14921.
• Skógarhús við Funaborg – Alútboð nr. 14831
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
Innkaupaskrifstofa
Sími 411 1111
ÚTBOÐ
Knattspyrnufélagið Haukar óskar eftir að ráða
í eftirfarandi störf:
Knattspyrnufélagið Haukar óskar eftir að ráða
konu til starfa í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum.
Um vaktavinnu er að ræða.
Almennur starfskraftur (kona)
Æskilegt er að umsækjendur séu reglusamir og
tilgreini meðmælendur í umsókn.
Knattspyrnufélagið Haukar óskar eftir starfsmanni
í hlutastarf í almennar ræstingar og skyld verkefni.
Ræstitæknir
Umsóknir sendist á netfangið magnus@haukar.is
Forstöðumaður í frístundaheimili Hauka
Knattspyrnufélagið Haukar óskar að ráð forstöðumann fyrir
frístundaheimili Hauka að Ásvöllum, Haukasel, fyrir komandi
vetur. Leitað er að barngóðum einstaklingi sem hefur yndi
af börnum, er glaðvær, reglusamur, og á gott með að starfa
með öðrum.
Umsækjandi um stöðuna þarf að hafa uppeldismenntun á
háskólastigi.
Í frístundaheimili Hauka er sérstök áhersla lögð á hreyfifærni
barna, byggða á þroskaþáttum skv. aðalnámskrá grunnskóla,
þar sem hver einstaklingur fær tækifæri til að þroska líkam-
lega- og félagslega hæfileika sína með aðstoð fagmenntaðra
einstaklinga.
Umsóknir um starfið skal senda, eigi síðar en 10. júlí
á netfangið magnus@haukar.is .
Frekari upplýsingar um starfið eru veittar í síma 665-8910.
Sterk tengsl
í íslensku atvinnulífi
hagvangur.is
Þarftu að ráða starfsmann?
Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf.
Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum lausnir sem henta hverjum viðskiptavini.
10 ATVINNUAUGLÝSINGAR 4 . J Ú L Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R