Fréttablaðið - 04.07.2020, Síða 42

Fréttablaðið - 04.07.2020, Síða 42
Háskóli Íslands óskar eftir áhugasömum rekstraraðila til að taka að sér rekstur kaffihúss í Veröld – húsi Vigdísar. Í Veröld fer fyrst og fremst fram kennsla á háskólastigi en þar eiga sér einnig stað ýmsir viðburðir á vegum Háskólans, Vigdísarstofnunar og annarra aðila. Rekstraraðilinn sem sér um rekstur kaffihúss í Veröld þarf að geta boðið daglegum gestum upp á fjölbreyttar veitingar auk þess að þjónusta viðburði af ýmsum toga. Við val á umsækjendum verður horft til þeirrar þjónustu sem þeir geta veitt og gæða hennar. Umsóknarfrestur er til og með 31. júlí 2020. Umsækjendur eru beðnir um að senda inn umsóknir á netfangið valgerdur@hi.is og sil@hi.is. Þess skal getið að telji Háskólinn enga umsókn fullnægjandi áskilur hann sér rétt til að hafna þeim öllum. Gert er ráð fyrir að fyrsti leigusamningur verði til eins árs. Til greina kemur að framlengja samning að ári liðnu ef vilji er fyrir hendi af hálfu beggja aðila. Nánari upplýsingar veitir Valgerður Jónasdóttir, valgerdur@hi.is, sími: 525 4191 Almennt þarf að gera ráð fyrir að opnunartími sé frá 08- 16 virka daga og 10-14 á laugardögum frá ágúst til maí. Lokað er á sunnudögum. Takmörkuð eldhúsaðstaða er á staðnum. Umrætt rými (afgreiðsla og vinnuaðstaða) er 35 m2. KAFFIHÚS Í VERÖLD - HÚSI VIGDÍSAR Útboð Skólaakstur í Húnavatnshreppi Húnavatnshreppur hunavatnshreppur.is Nánari upplýsingar hunavatnshreppur@hunavatnshreppur.is, eða hjá Einari Kristjáni Jónssyni sveitarstjóra í síma 455 0010 / 842 5800 Áhugasamir skili inn umsóknum fyrir mánudaginn 23. júlí nk. Sveitarstjórn Húnavatnshrepps kt. 420106-1300, Húnavöllum, 541 Blönduós, leitar hér með eftir tilboðum í akstur skólabarna í Húnavatnshreppi. Boðinn er út samningur um skólaakstur fyrir skólaárin 2020/2021, 2021/2022 og 2022/2023. Útboðsgögn liggja frammi á skrifstofu sveitarfélagsins og eru afhent þar. Í úboðsgögnunum er skilgreint það aksturskerfi sem áætlað er að aka eftir á skólaárinu 2020/2021, 2021/2022 og 2022/2023. Um er að ræða eina akstursleið; Blönduós Húnavellir. Tilboðum ásamt þeim gögnum sem beðið er um í útboðslýsingunni skal skila á skrifstofu Húnavatnshrepps eigi síðar en kl. 11:00, 23. júlí 2020 og verða tilboðin þá opnuð. Bjóðendum er heimilt að vera viðstaddir. Sveitarstjórn áskilur sér allt að 15 daga frest til að vinna úr tilboðunum. Húnavatnshreppi 3. júlí 2020 Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík Sími 563 9300 | www.landsnet.is ÚTBOÐ Landsnet óskar eftir tilboðum í jarðvinnu, byggingu og fullnaðar- frágang tengivirkja á Hólasandi og Rangárvöllum. Opnun tilboða verður fimmtudaginn 13. ágúst 2020 kl. 14:00 hjá Landsneti að Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík. Allar nánari upplýsingar eru á útboðsvef Landsnets, utbod.landsnet.is Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 – breyting vegna efnistökusvæðis á Bíldsárskarði Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 19. júní sl. að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 vegna efnistökusvæðis í landi Kaupangs á Bíldsárskarði skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í að efnistökusvæði með 30.000 rúmmetra efnistökuheimild er fært inn á skipulag. Efnistökusvæðið verður notað við byggingu Hólasandslínu 3. Gerð er grein fyrir efnistökusvæðinu í umhverfismati vegna framkvæmdarinnar, sjá samþykkta matsskýrslu dags. 19. september 2019. Skipulagsbreytingin nær til framkvæmda sem tilgreindar eru í lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 og er gerð grein fyrir umhverfisáhrifum efnistökunnar í skipulagstil- lögunni. Skipulagstillagan ásamt umhverfisskýrslu mun liggja frammi á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar milli 6. júlí og 17. ágúst 2020 og verður einnig á heimasíðu sveitarfélagsins esveit.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna til mánudagsins 17. ágúst 2020. Athugasemdir skulu vera skrif- legar og skulu berast í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is eða í bréfpósti stílað á Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri. Skipulags- og byggingarfulltrúi Erum við að leita að þér? 12 ATVINNUAUGLÝSINGAR 4 . J Ú L Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.