Fréttablaðið - 04.07.2020, Page 52

Fréttablaðið - 04.07.2020, Page 52
Menningarveisla sem haldin er á sumrin býður upp á tónleika, listasýningar, myndasýningar, umhverfissýn- ingar, skoðunarferðir og fleira. Einnig er starfandi Íþróttafélag, skátafélag, leikfélag og félagsmið- stöðin Loftið. Sólheimar eru elsta starfandi umhverfissamfélag eða „Eco village“ á Norðurlöndum sem leggur stund á lífræna ræktun. Á Sólheimum búa um 100 manns og eru 43 þeirra fatlaðir. Starf- semin á Sólheimum er fjölbreytt, sem dæmi má nefna skógrækt og garðyrkjustöðvar þar sem stunduð er lífræn ræktun. Verslun, Listhús, kaffihús og gistiheimili. List- vinnustofur eru á Sólheimum með kertagerð, listasmiðju, keramiki, vefstofu, jurtastofu og smíðastofu. Einnig er íþróttahús og sundlaug á Sólheimum. Morgunfundur Ég tel að margir hefðu gott af því að upplifa hreina mannelsku, náunga- kærleik byggðan á mannrækt og jafningjagrundvelli, eins og tíðkast á Sólheimum. Kirkjuklukkur Sólheimakirkju hringja alla virka daga klukkan 9 og morgunfundur íbúa og starfsmanna hefst. Fundur- inn er hefð sem verið hefur í 90 ár, til að upplýsa hvað er að gerast og þakka fyrir góða hluti. Sumir mæta Öflugt félagsstarf á Sólheimum Félagsstarf Sólheima er öflugt og mikil fjölbreytni í boði. Allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi, listir, íþróttir eða aðrar tómstundir. Mikil aðsókn er í alls kyns íþróttaviðburði og skátastarf. Það er margt um að vera fyrir íbúa á Sólheim- um. Valgeir skátahöfðingi bendir á ýmis- legt skemmti- legt í starfinu. Listir og menningarstarf hafa ávallt verið snar þáttur í starfi Sólheima. Höggmyndagarður Sólheima var formlega opnaður 5. júlí árið 2000 og í dag prýða garðinn 14 höggmyndir eftir jafn marga lista- menn, eins konar vísir að yfirlits- sýningu á íslenskri höggmyndalist 1900 – 1950. Tilgangurinn með höggmynda- garðinum er að skapa fagurt og menningarlegt umhverfi. Á 90 ára afmælisári Sólheima mun bætast við höggmyndagarð- inn ný höggmynd eftir Hallstein Sigurðsson, sem ber nafnið Kona og karl og verður afhjúpuð í sumar. Höggmyndin er gjöf velunnara Sólheima á afmælisári. Glæsilegar höggmyndir Höggmyndagarðurinn á Sólheimum hefur að geyma mörg falleg verk. Aron Ármann Jónsson er forstöðumaður kaffihúss-ins Grænu könnunnar og verslunarinnar Völu á Sólheimum. Hann hefur starfað þar í rúmlega ár og segir að sér hafi komið á óvart hversu Sólheimasamfélagið er stórt. „Svo ríkir hér mikil mann- gæska, samheldni og virðing fyrir hverjum og einum, því hér fá allir að blómstra. Starfið er fjölbreytt. Skemmti- legast er að rista lífrænt úrvals kaffi fyrir íbúa Sólheima og við- skiptavini. Starfið kom nokkuð óvænt upp í hendurnar á mér, þannig að ég get ekki sagt að þetta hafi verið planlagt. Ég er ánægður með að hafa ráðið mig í vinnu hér, þetta er frábær staður,“ segir Aron. „Það er þægilegt að búa hér og sleppa við bílaraðir og stress. Hér er mikið félagslíf og margt fólk á mínum aldri. Á Sólheimum er endalaust margt hægt að gera og skoða, umhverfissetrið Sesseljuhús, aldingarðinn Öl, þar sem ræktuð eru epli og alls kyns ávextir, græn- meti og krydd,“ segir hann. „Margar gönguleiðir eru á svæðinu og þar er einnig að finna trjásafn og Tröllagarð. Hér eru haldnir tónleikar alla laugardaga yfir sumartímann. Ég mæli svo klárlega með að heimsækja Völu Grænu sem er mikil upplifun, því þar er hægt að fá úrvals lífrænt Sól- heimakaffi, heimabakaðar kökur og gæða sér á grænmetissúpu.“ Hér fá allir að blómstra Aron og Lísa Maculan í Kaffibrennslunni á Sólheimum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR fyrir fundinn og stunda morgun- leikfimi og jóga. Íþróttafélagið Gnýr Allt íþróttastarf er undir merkjum Íþróttafélagsins Gnýs, sem var stofnað 1983. Við hvetjum til heilbrigðs líf- ernis, með góðu framboði á reglu- legri hreyfingu sem bætir heilsu, vellíðan og getur verið einn hluti af meðferð við mörgum algengum sjúkdómum og lífsstílstengdum vandamálum. Það eru margir skemmtilegir hreyfimöguleikar í íþróttahúsinu, eins og boccia, bandí, badminton, körfubolti í sal, en í kjallara er tækjasalur, boxpúði og nuddaðstaða. Úti er frisbíkarfa, fótboltavöllur og golfæfingabraut. Um sextán manna hópur stundar boccia reglulega og tekur þátt í nokkrum mótum HSK og Íþrótta- sambands fatlaðra árlega. Kvennahlaup Sólheima og Sjó- vár er fastur liður og ávallt vel sótt. Annað hlaup er Sólheimahlaup og Frískir Flóamenn. Hjólað í sýndarveruleika Nú er svo komið að sumir íbúar eru farnir að eldast en vilja áfram stunda skemmtilega hreyfingu sem hægt er að stunda allt árið, því var hrundið af stað ósk um stuðning við að fjárfesta í tveimur hjólum sem tengd verða við skjá og hægt verður að hjóla hvar og hvert sem er í sýndarveruleika. Skátafélag Sólheima Skátafélag Sólheima er 35 ára. Stofnendurnir, Gummi Páls og Gaui litli, settu mark sitt á starfið og ég verð að nefna skáta eins og Kristján Má Ólafsson, sem heilsaði að skáta sið alla daga og Árna Alex- andersson, legómeistara Íslands, þeir lifðu sem skátar en báðir eru þeir fallnir frá. Rótað í moldinni Sesselja kynntist fræðum og aðferðum mannspekingsins Rudolfs Steiners. Undirritaður var sendur til Englands á námskeið í vistræktun, „permacultur“ 2012, hjá Patrick Whitefield heitnum, sem var einn af þessum alvöru leiðtogum sem minntu svo oft á að mannkynið þurfi að aðlagast náttúruöflunum, móðir jörð getur vel lifað og blómstrað sem aldrei fyrr án okkar. Þegar heim kom og samkvæmt kenningum og aðferðum, fór ég að róta í moldinni og Tröllagarður varð til. Garðurinn er gerður af íbúum Sólheima fyrir íbúa Sólheima. Það er fátt eins dásamlegt og að skjótast í Trölla- garð og sækja krydd og salat fyrir kvöldmatinn. Sundlaug Sólheima Sundlaug sem er 6 x 12 metrar ásamt heitum potti. Sundlaugin hefur verið lokuð í tæp tvö ár vegna viðgerða. Verklok eru áætluð í lok sumars 2020 og nýtt sturtu- og skiptiklefahús er áætlað árið 2021. Leikfélag Sólheima Leikfélagsstarfið er einstakt þar sem um 40 fatlaðir og ófatlaðir íbúar Sólheima taka þátt í sýning- unni árlega. Höfundur: Valgeir Fridolf Backman 6 4 . J Ú L Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RSÓLHEIMAR 90 ÁRA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.