Fréttablaðið - 04.07.2020, Síða 53
Listsköpun hefur alla tíð verið mikilvægur þáttur í starfsemi Sólheima. Listasmiðjurnar
eru fimm og er starfsemin leidd
af Karen Ósk Sigurðardóttur,
ásamt fagstjórum. Áhersla er lögð
á notkun náttúrulegs hráefnis,
endurnýtingu og endurvinnslu í
listsköpuninni, en allar listasmiðj-
ur Sólheima hafa þetta leiðar-
ljós, um leið og þær bjóða íbúum
Sólheima fjölbreytt störf, þar sem
skapaðir eru fallegir og hand-
gerðir listmunir og handverk.
Margir listamenn Sólheima hafa
getið sér gott orð og má þar nefna
karlana hans Einars Baldurssonar,
sem unnir eru eftir teikningum
listamannsins, Erlu Björk Sig-
mundsdóttur, en útsaumsverk
hennar njóta sérstakrar athygli og
hrifningar, að ógleymdum dopp-
óttu rjúpunum hans Kristjáns
Atla Sævarssonar, sem hafa heldur
betur slegið í gegn. Sérstök yfirlits-
sýning á verkum íbúa Sólheima
er haldin ár hvert og er hún liður í
Menningarveislu Sólheima.
Listin blómstrar
á fallegum stað
Á Sólheimum gefst fólki kostur á ýmiss konar atvinnu,
virkniþjálfun, hæfingu eða dagþjálfun, eftir þörfum og
getu. Flestir starfa á einhverjum af fimm vinnustofunum.
Kertagerð
Starfsemi kertagerðarinnar hefur breyst töluvert á undanförnum árum
og hefur verið leitast við að skapa ný verkefni, sem henta þeim einstakl-
ingum sem þar starfa. Fagstjóri kertagerðar var Sigrún Elfa Reynisdóttir.
Vefstofa
Vefstofan býður upp á ýmis fjölbreytt störf. Á vefstofunni eru fjórir
stórir vefstólar og hafa þeir helst verið nýttir til að vefa gólfmottur,
borðdúka, efni í töskur og ullarábreiður. Fagstjóri vefstofu er Erna Jóns-
dóttir.
Trésmiðja
Aðstaðan er vel nýtt í sérverkefni félagsþjónustu með íbúum, og tilfall-
andi viðgerðum á trémunum og öðru. Sigurjón Jónsson er fagstjóri.
Leirgerð
Verkefnin í leirgerð voru að venju fjölbreytt; listaverk og nytjahlutir í
bland. Sköpunargleðin hefur fengið lausan tauminn og starfsmenn hafa
verið hvattir til að koma með nýjar hugmyndir að verkefnum. Það hefur
leitt til margra áhugaverðra verka og ánægju meðal starfsfólks. Að auki
voru klassísku Sólheimarjúpurnar afar vinsælar. Fagstjóri leirgerðar er
Egill Valdimarsson.
Listaverk
verður til í
listasmiðjunni
og vandað til
verka með
mikilli athygli.
Ólafur Már
Guðmundsson
er fagstjóri.
Þeir eru fallegir munirnir sem verða til á Sólheimum.
Falleg listaverk eftir heimamenn á Sólheimum til sölu.
Unnið af miklu
listfengi í lista-
smiðjunni.
Eitt af mörgum fallegum verkum á Sólheimum.
7 L AU G A R DAG U R 4 . J Ú L Í 2 0 2 0 SÓLHEIMAR 90 ÁRA