Fréttablaðið - 04.07.2020, Page 80
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Óttars
Guðmundssonar
BAKÞANKAR
Laugarásvegur 1
Pantaðu á skubb.is
OG FÁÐU HEIMSENT
Fyrir svanga
ferðalanga
Þegar boð komu frá ríkis-stjórninni um að ferðast innanlands fyllti ég tankinn
og hélt á slóðir Sturlunga. Við
hjónin fórum í Dali og síðan í
Skagafjörðinn og lögðumst í grasið
á Örlygsstöðum. „Þetta var það
síðasta sem Sturla og Sighvatur sáu
í þessu lífi,“ tautaði ég fyrir munni
mér og skoðaði skýjafarið á himn-
um. Á Sauðárkróki er búið að reisa
sýndarveruleikasafn þar sem hægt
er að ganga inn í Örlygsstaðabar-
daga árið 1238 með hjálp f lókinnar
tölvutækni. Mikil áhersla er lögð á
hetjudauða Sturlu Sighvatssonar
sem geysist um vellina á hvítum
hesti eins og ljóshærður vaxtar-
ræktarmaður í Wagneróperu. Mér
hefur reyndar alltaf of boðið ráð-
leysi Sturlu á Örlygsstöðum. Hann
var vopnaður ónýtu spjóti og
vafraði um vígvöllinn eins og lítill
drengur sem búinn er að týna bæði
foreldrum sínum og blöðrunni í
mannþrönginni á 17. júní. Úrslitin
voru eftir þessu. Sturlungaherinn
beið mikið afhroð.
Ég er hrifnari af Sighvati frænda
Sturlusyni. Hann gekk óttalaus á
móti óvinum sínum, rétt tæp-
lega sjötugur í bláum kirtli með
hjálm og hélt á exinni öfugri.
Jafnaldri hans og vinur Árni
Auðunarson gekk við hlið hans
og hjó ákaft til beggja handa.
Andstæðingurinn spurði af hverju
hann léti svo ófriðlega, bæði lítill
maður og gamall. Hann svaraði:
„Ég ætla mér ekki á brott.“ Þetta
þótti hetjulega mælt. Árni vildi
ekki f lýja þótt við ofuref li væri
að etja. Gömlu mennirnir voru
báðir drepnir ásamt jafnaldra
sínum, Sighvati djákna, enda báðu
þeir sér ekki griða. Er þetta ekki
draumadauðdagi allra ellilífeyris-
þega sem óttast að deyja einir og
afskiptir úr hreinum leiðindum
inni á hjúkrunarheimili?
Örlygsstaðir
Verslun opin 11-20 alla daga - Veitingasvið opið 11-19:30 - IKEA.is
ÚTSALAN
er hafin
©
Inter IKEA System
s B.V. 2020