Fréttablaðið - 12.08.2020, Blaðsíða 2
Þetta er opið öllum
og við erum bæði
með þetta á íslensku og
ensku.
Kristjana Björk Barðdal
Gefi tölur næstu daga
tilefni til, er mögulegt að
slakað verði frekar á tak-
mörkunum.
Veður
Vestlæg eða breytileg átt 3-8 í dag,
skýjað með köflum og sums staðar
dálitlir skúrir. Vaxandi sunnanátt
seinnipartinn og fer að rigna á
vestanverðu landinu. Hiti 10 til 17
stig. SJÁ SÍÐU 16
Það styttir alltaf upp
Það var fremur hryssingslegt veður í höfuðborginni í gær og ekki laust við að margt minnti á að senn færi sumri að halla. Það eru þó ótímabærar
hugleiðingar því spáð er að veður lagist í borginni í dag, eins og fram kemur hér að neðan. Það fer þó ekki hjá því að senn styttist í að haustið gangi í
garð. Veðrið lék hins vegar við þá sem staddir voru annars staðar á landinu, svo sem á Norðurlandi og ekki síður á Austurlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
MUNDU EFTIR GÖMLU GÓÐU
AFMÆLISKRINGLUNNI
- fyrir 25-30 manns
PREN
TU
N
.IS
UMHVERFISMÁL Nýsköpunarkeppn-
in Gagnaþon fyrir umhverfið hefst
í dag en keppnin snýst um að biðja
þátttakendur um að þróa lausnir
sem eru umhverf inu til góða.
Keppnin er hluti af nýsköpunar-
stefnu ríkisins, Nýsköpunarstefna
fyrir Ísland, og er markmiðið að
vekja athygli á opinberum gögnum
sem eru aðgengileg almenningi.
Kristjana Björk Barðdal, verk-
efnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð
Íslands, segir að þátttakendur hafi
frekar frjálsar hendur í keppninni
en rúmlega 100 manns hafa þegar
skráð sig. Keppt er í þremur flokk-
um og getur fólk því keppt í þeim
flokki þar sem hæfileikar þess liggja
helst.
„Þú getur gert hvað sem er, eina
sem er nauðsynlegt er að þetta þarf
að tengjast umhverfinu og þú þarft
að nota gagnasett,“ segir Krist-
jana og vísar til þess að hægt sé að
nota ýmis gagnasett, til að mynda
frá Þjóðskrá, Reykjavíkurborg,
Umhverfisstofnun eða öðrum opin-
berum stofnunum.
Þátttakendur geta nýtt settin
meðal annars til að þróa vefsíður
eða smáforrit en einnig er hægt
að koma með hugmyndir sem
gætu gagnast umhverfinu sem og
hugmyndir að endurbótum. Pen-
ingaverðlaun eru veitt fyrir bestu
hugmyndina, bestu endurbættu
lausnina og besta gagnaverkefnið,
en í síðasta f lokknum er nauðsyn-
legt að þróa eitthvað, til að mynda
forrit eða vefsíðu.
Setningarathöfn fer fram síðar í
dag þar sem Guðmundur Ingi Guð-
brandsson, umhverfis- og auðlinda-
ráðherra, opnar viðburðinn. Þátt-
takendur skiptast í tveggja til fimm
manna teymi og munu teymin
síðan þurfa að kynna sínar lausnir
fyrir dómnefnd 24. ágúst næstkom-
andi en verðlaunaafhendingin fer
síðan fram 26. ágúst. Allir þættir
viðburðarins fara fram á netinu
vegna aðstæðna í samfélaginu.
„Þetta er opið öllum og við
erum bæði með þetta á íslensku og
ensku,“ segir Kristjana og bætir við
að allir séu hvattir til þess að taka
þátt óháð kyni eða bakgrunni.
Gagnaþonið stendur yfir í viku og
meðan á því stendur verður boðið
upp á beinar útsendingar þar sem
þátttakendur eru hvattir til að
spyrja spurninga, auk þess sem
boðið verður upp á fyrirlestra þar
sem farið verður yfir ýmis málefni.
„Við erum líka með leiðbein-
endur sem koma úr atvinnulífinu
og háskólasamfélaginu sem eru til
staðar í gegnum ferlið til þess að
hjálpa fólki,“ segir Kristjana. „Þann-
ig að þetta er frábær staður til þess
að kynnast fólki sem er í nýsköpun,
þessir leiðbeinendur eru alltaf að
leita að hæfileikaríku fólki og það
að kynna lausnina sína þarna er
náttúrulega bara mjög gott tæki-
færi.“ fanndis@frettabladid.is
Nýsköpunarkeppni
um umhverfismál
Rúmlega hundrað manns hafa skráð sig í nýsköpunarkeppnina Gagnaþon
fyrir umhverfið, þar sem þátttakendur keppast við að koma með og þróa
lausnir í umhverfismálum. Segja að þetta sé tækifæri til að kynnast nýsköpun.
Viðfangsefnið þarf að tengjast umhverfinu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
VEÐUR Í gærkvöld og nótt dró úr
vætunni á sunnan- og vestanverðu
landinu en mikið hefur rignt þar
undanfarna daga. Í athugasemd
veðurfræðings hjá Veðurstofunni
segir þó að áfram megi búast við
vatnavöxtum á Vesturlandi þrátt
fyrir að dragi úr vatnsveðri.
Vegna mikillar úrkomu undan-
farið sé vatnsstaða í ám og lækjum
há og búast megi við að nokkurn
tíma taki að sjatna í þeim. Er ferða-
fólk hvatt til að sýna sérstaka aðgát
við vatnsföll og vöð.
Þá er bent á að aðstæður sem
þessar geti aukið líkur á grjóthruni
og skriðuföllum í bröttum hlíðum.
Seint í kvöld er svo búist við
hvössum vindstreng á norðanverðu
Snæfellsnesi þar sem staðbundnar
hviður gætu náð allt að 30 metrum á
sekúndu. Bent er á að slíkur vindur
geti verið varasamur, ekki síst fyrir
ökutæki sem eru viðkvæm fyrir
vindi, til dæmis húsbílar og ferða-
vagnar ýmiss konar. – sar
Búast má við að
þorni til í dag
COVID-19 Tilslakanir á sóttvarna-
aðgerðum eru boðaðar í minnis-
blaði Þórólfs Guðnasonar sóttvarna-
lækn is til Svandísar Svavars dóttur
heilbrigðisráðherra. Minnis blaðið
var afhent ráðherra í gær, skömmu
fyrir ríkisstjórnarfund.
„Ef að tölur næstu daga sýna
á fram að við höfum náð utan um
þennan far aldur sem er að ganga, þá
held ég að við getum slakað á frekar
í tak mörkunum hér innan lands,“
sagði Þór ólfur á upp lýsinga fundi
al manna varna í gær.
Þórólfur leggur meðal annars
til að áfram verði hundrað manna
samkomubann í landinu en slakað
verður á tveggja metra reglunni
innan skólaveggja, þar sem lagt er
til að að minnsta kosti einn metri
aðskilji nemendur.
Hann telur þó enn brýnt að
skimað verði á landamærum til að
koma í veg fyrir útbreiðslu smits á
landinu. „Við höfum lært að það er
nóg að aðeins einn smitaður ein-
staklingur komi hingað til lands
til að setja af stað hópsýkingu, með
alvarlegum afleiðingum.“
Í gær var tilkynnt um þrjú virk
smit á landamærunum en ekkert
innanlandssmit. Þrír hafa að und-
anförnu verið útskrifaðir af Land-
spítala og þar liggur nú aðeins einn
einstaklingur vegna COVID-19.
Grænlensk stjórnvöld tilkynntu í
gær breyttar reglur varðandi komur
ferðamanna frá Íslandi og Færeyj-
um sem hingað til hafa getað komist
óhindrað inn í landið. Framvegis
verður gerð krafa um sóttkví fyrir
þá sem koma frá þessum löndum.
– sar, kdi
Tilslakanir gætu
verið í kortunum
1 2 . Á G Ú S T 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð