Fréttablaðið - 12.08.2020, Blaðsíða 33
Hjónin Guðlaug Friðriksdóttir og Ragnar Gylfi Einarsson sýna nú fjölbreytt verk í Listasal Mosfellsbæjar. Aðspurð
segir Guðlaug þau yfirleitt fást við
listsköpun á hverjum degi. „Það
gefur lífinu gildi að hafa eitthvað
fyrir stafni og þetta er svo skemmti
legt sem við erum að gera. Ragnar er
mest í bókbandinu en ég hef snúið
mér meira að málverkinu.“ Hún
kveðst aðallega nota olíuliti og þá
beint úr túpunum. „Mér er svo illa
við aukaefni svo ég blanda ekki
mikið.“
Ragnar er af þriðju kynslóð bók
bindara og með áhugann í gen
unum, að sögn Guðlaugar. „Helgi
Tryggvason, afi Ragnars, var fagur
keri í bókbandi og Einar sonur hans
tók við keflinu, hann var aðalkenn
ari bókbands í Iðnskólanum í mörg
ár. Ég dreif mig í nám hjá honum
rúmlega fertug og lauk sveinsprófi.
Við Ragnar rákum bókbandsstofu
en erum komin á aldur,“ segir hún.
„Þetta kallast hobbí hjá okkur í
dag.“
Þau hjón hafa keppt í bókbandi
erlendis og Guðlaug segir þau
hjálpast að þegar þau undirbúi
slíkar ferðir. „Við höfum komist
inn í heiðursflokk og lent í að vinna
en þetta er harður heimur, Japanir
og Bretar eru svo flinkir,“ segir hún.
Viðurkennir þó að þeir skreyti ekki
bækur sínar með íslenskum lopa
peysum eins og þeim hjónum hug
kvæmdist að gera í vor þegar gömul
peysa endaði utan á nokkrum
bókum.
Klæddu bækur í lopapeysu
Logandi bækur, blómamyndir og dúkristur eru meðal muna
í Listasal Mosfellsbæjar á sýningunni Bók – list og leikur.
Guðlaug og Ragnar fást við listsköpun á hverjum degi í föndurstofunni sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Þessum bókum ætti ekki að verða
kalt þó að þorrinn sýni klærnar.
Til Rómar nefnist þetta nýstárlega
verk úr höndum bókbindaranna.
Hér sést óvenjulegur frágangur á fjárlögum íslenska ríkisins.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
VERTU
VAKANDI
Í FYRSTA
SKIPTI
Á ÆVINNI
Við höfum opnað glæsilega nýja verslun
Hästens að Faxafeni 5.
Komdu til okkar og prófaðu einstök gæði
Hästens rúmanna. Starfsfólk okkar er tilbúið
að aðstoða þig og veita frekari upplýsingar.
Þegar þú vaknar í rúmi frá Hästens munt þú skilja
virði þess að ná fullkomnum nætursvefni. Rúmin
eru framleidd með einstöku samspili handverks og
hráefna þar sem hvergi eru gerðar málamiðlanir í
gæðum náttúrulegra efna eða tíma við óþreytandi
handverkið. Þú sérð það ekki en þú munt fi nna fyrir
því. Allan sólarhringinn. Heimsæktu Hästens í
Faxafeni eða pantaðu vörulistann á hastens.com.
HÄSTENS VERSLUN
FAXAFENI 5, REYKJAVÍK
588 8477
Úr glatkistunni er yfirskrift hádegistónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík á morgun.
Flytjendur eru Anna Hugadóttir
víóluleikari og Lilja Eggertsdóttir
píanóleikari sem kynntust í Tón
skóla Sigursveins á unglingsárum
og hafa, að eigin sögn, oft leikið
saman síðan, bæði sem dúó og með
öðrum.
„Við ætlum að beina athyglinni
að sjaldheyrðum verkum fyrir víólu
og hljómborðshljóðfæri, sem segja
má að hafi fundist fyrir tilviljanir.
Sum voru týnd í áratugi, jafnvel um
aldir, áður en þau heyrðust fyrst á
tónleikum og það er bæði skemmti
legt og spennandi að grafa þau upp,“
segir Anna og nefnir sónötu eftir
hinn þýska Georg Philipp Telemann
sem hún segir hafa verið týnda í 200
ár en hafa fundist á British Museum
árið 1948. Einnig vögguvísu eftir
enska tónskáldið og víóluleikar
ann Rebecca Clarke. „Clarke á eitt
af mögnuðustu verkum víólubók
menntanna. Vögguvísan er æsku
verk hjá henni og ber skýr höf
undareinkenni hennar.“
Þriðja verkið sem Anna tilgreinir
úr dagskránni er Sonatine eftir hol
lenska tónskáldið Hendrik Andr
iessen sem sonum hans barst í pósti
þremur árum eftir dauða hans 1981.
„Sónatínan er í einum þætti og tón
skáldið leikur sér að öllu litrófi
víólunnar.“
Þá er aðeins eitt tónskáld ónefnt
sem við sögu kemur í Fríkirkjunni
í hádeginu á morgun, það er hinn
tékkneski Frantisek Koczwara
sem á sónötukaf la í upphafi tón
leikanna.
„Það eru til svo mörg verk sem
eiga sannarlega skilið að fá að heyr
ast en hafa verið falinn fjársjóður,“
segir Anna og tekur fram að tónleik
arnir hefjist klukkan 12 á morgun,
þeir taki um hálfa klukkustund og
að ekki sé tekið við greiðslukortum
við innganginn. – gun
Tónverk sem líkja má við falinn fjársjóð munu hljóma á tónleikum í Fríkirkjunni í Reykjavík á morgun
Lilja og Anna ætla að flytja faldar perlur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17M I Ð V I K U D A G U R 1 2 . Á G Ú S T 2 0 2 0