Fréttablaðið - 12.08.2020, Side 10
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is
Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
En þær
ráðstafanir
sem gera
verður þegar
upp kemur
smit eru
mikið
inngrip í líf
fólks.
Það er
mikilvægt
að fjölbreytt
fólk komi að
bæði gerð og
vinnslu
gagna þar
sem það
hefur bein
áhrif á líf
okkar allra.
Jón
Þórisson
jon@frettabladid.is
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
Finndu okkur á
Fermingarskraut í úrvali!
■ Myndaveggir
■ Nammibarir
■ Kortakassar
■ Servíettur
■ Borðrenningar
■ Blöðrur (fyrir loft/helíum)
■ Blöðrubogar/lengjur/hringir
(fyrir loft)
■ Súkkulaðiegg í þemalitum
veislunnar
■ Kerti
■ Og margt fleira
■ Veggborðar þar sem hægt er að raða bókstöfum saman
í hvaða orð sem er, t.d. nafn fermingarbarns,
„Ferming“, „Myndaveggur”, „Kort”, „Nammibar”
Vöruúrvalið er að finna á facebook síðu Partýbúðarinnar
Mér svelgdist heldur betur á kaffibollanum í gærmorgun þegar ég fór yfir skráningar í Gagnaþon fyrir umhverfið. Kynjahlutföllin
á skráðum þátttakendum voru virkilega skökk. Þrátt
fyrir að ég sé ótrúlega ánægð með þann hóp sem hefur
skráð sig og ég geti ekki beðið eftir að sjá þær hug-
myndir sem þau hafa fram að varpa, kom það mér tals-
vert á óvart hve fáar konur hafa skráð sig. Samanborið
við aðrar keppnir og hraðla í nýsköpun eru niðurstöð-
urnar svipaðar. Hvernig fáum við enn fjölbreyttari hóp
af fólki til þess að taka þátt í nýsköpun og þá sérstak-
lega þegar kemur að gögnum og gervigreind? Þá sér-
staklega fólk af öllum kynjum og bakgrunni.
Stór partur af því að vinna úr gögnum er gervi-
greind sem er einfaldlega gert með því að kenna
forriti eða reikniriti ákveðið mynstur og mata það
með gögnum. Niðurstöður eru síðan samþykktar eða
ekki af einstaklingi sem þróar viðkomandi lausn. Því
er mikilvægt að hópurinn sem komi að þróun gervi-
greindar sé fjölbreyttur til þess að niðurstöður hafi
ekki innbyggða hlutdrægni sem gæti hampað öðrum
hópi umfram annan. Dæmi eru um að snjallúr sýni
ekki réttan fjölda brenndra kaloría hjá barnshafandi
konum þar sem formúlan sem reiknar hve miklu þær
brenna tekur ekki tillit til breyttrar brennslu. Annað
dæmi er forrit sem búið var til af Amazon til þess að
fara yfir ferilskrár og velja hæfasta einstaklinginn í
starfið. Þar sem forritið var búið til af körlum varð
til innbyggð hlutdrægni sem gerði það að verkum að
karlar voru valdir í störfin umfram jafnhæfar konur.
Þegar kemur að hlutfalli í námi virðist það mun skárra
en á vinnumarkaði og nýsköpunarsenunni. Kynjahlut-
föllin þegar ég var í grunnnámi í iðnaðarverkfræði voru
ansi jöfn og áhugi á áföngum tengdum nýsköpun jafnvel
meiri meðal kvenna. Því spyr ég hvers vegna það sé ekki
að skila sér sviði nýsköpunar. Sama gildir um hlutfall
kvenkyns samnemenda minna í tölvunarfræði, af hverju
eru þær ekki að skila sér út í tæknigeirann?
Það er mikilvægt að fjölbreytt fólk komi að bæði
gerð og vinnslu gagna þar sem það hefur bein áhrif
á líf okkar allra. Ég hvet því alla til þess að taka þátt í
Gagnaþoni fyrir umhverfið sem fer fram 12.-19. ágúst.
Hvar eru konurnar?
Kristjana Björk
Barðdal,
verkefnastjóri
hjá Nýsköp-
unarmiðstöð
Íslands
Ef marka má tölur um nýgreint smit undanfarna daga virðist sem tekist hafi að koma böndum á það sem menn óttuðust að myndi reynast önnur bylgja faraldursins hérlendis. Þróunin í síðustu viku var vissulega ískyggileg en tölur um
nýtt smit undanfarna daga gefa tilefni til að vona
að tekist hafi að kæfa bylgjuna í fæðingu. Það ber að
þakka fumlitlum viðbrögðum sóttvarnayfirvalda.
Þetta er þó háð þeirri óvissu að sóttvarnayfirvöld-
um hefur ekki tekist að rekja öll tilfellin og óljóst
hvernig drjúgur hluti þess smits sem greinst hefur
undanfarið fór á milli manna. Það er óþægilegt og
gæti bent til að meira smit sé grasserandi í samfélag-
inu, ýmist ógreint eða smitberarnir einkennalausir.
Staðan hér heima er þó stórum betri en í mörgum
löndum í kringum okkur þar sem aftur hefur þurft
að grípa til lokana og íþyngjandi takmarkana. Þó að
hert hafi verið upp á samkomubanni hér og tveggja
metra reglan gerð algild á ný, er það bara reykur af
þeim réttum sem aðrar þjóðir hafa mátt gera sér að
góðu. Við fengum þó að pústa aðeins yfir hásumarið
áður en syrta tók yfir á ný.
Allir ættu að vita að þessi veira er ekkert lamb að
leika sér við. Undanfarið hafa fréttir verið fluttar af
því að jafnvel þeir sem lítið veikjast geti átt í lang-
vinnum eftirköstum vikum og mánuðum eftir að
veikindunum lauk. Í fréttaþættinum 21 á sjónvarps-
stöðinni Hringbraut á þriðjudagskvöld var annars
vegar talað við Stefán Yngvason, endurhæfingar-
lækni og lækningaforstjóra Reykjalundar, sem lýsti
því hvers lags eftirköst fólk getur þurft að ganga í
gegnum. Fram kom að tugir manna hefðu leitað til
Reykjalundar vegna þessa. Hins vegar var rætt við
Karólínu Helgu Símonardóttur sem sýkst hafði í
mars og glímir nú enn við afleiðingar sýkingarinnar,
svo sem jafnvægistruflanir, vöðvaverki, þreytu
og málstol. Fleiri hafa lýst þessu sama. Fram kom
að ekki virðast vera tengsl milli hversu mikið fólk
veikist og eftirköst sem eiga þarf við.
Fréttir úr miðborginni um helgina vekja því furðu.
Stór hluti þeirra vínveitingastaða sem lögregla
heimsótti virti ekki tveggja metra regluna og dæmi
voru um að lögregla treysti sér ekki til að fara inn á
staðina vegna mannmergðar sem þar var inni fyrir.
Fyrir þetta geta veitingamenn hér á landi ekki
verið þekktir. En það er ekki aðeins við þá að sakast.
Gestir þeirra bera líka ábyrgð.
Nú má það vel vera að alvarleg veikindi vegna
veirunnar séu hlutfallslega fátíð. En þær ráðstafanir
sem gera verður þegar upp kemur smit eru mikið
inngrip í líf fólks. Fjórtán daga sóttkví, með til-
heyrandi takmörkunum á samskiptum fólks og veru
frá vinnustað ber ekki að taka af léttúð. Það vita þeir
sem reynt hafa. Það er léttvægara en að sýkjast af
veirunni og dvelja í einangrun en verulega íþyngj-
andi engu að síður.
Þess vegna telst það til áhættuhegðunar ef ekki er
farið eftir reglum á stöðum þar sem fólk kemur saman,
veitingastöðum, vinnustöðum eða verslunum.
Hana þarf að uppræta.
Sóttkví
Sporðaköst og brúneggjavarp
Hingað til hafa íslenskir kaupa-
héðnar og stórfyrirtæki látið
nægja að gefa út bækur þegar
þeim finnst að sér vegið, en
Samherji hefur nú brotið blað
og látið gera dýran sjónvarps-
þátt með f lottri grafík og öllu
tilheyrandi. Meira að segja
„cliff hanger“ í lokin. Þetta er
vitaskuld eitthvað sem aðrir
hefðu átt að vera búnir að fatta
fyrir löngu og þá hefði landinn
ekki misst af gullmolum á borð
við Brúneggjavarpið, GAMMA-
Vision eða Wintris-veituna.
Framhald Ókyrrðar
Helgi Seljan endaði óafvitandi
í einu aðalhlutverka Samherja-
þáttarins, Skýrslan sem aldrei
var gerð, en plottið hvíldi ekki
síst á leynilegri hljóðupptöku
af samtali Helga og fyrrverandi
lögreglumannsins Jóns Óttars
Ólafssonar. Sá vinnur nú hjá
Samherja en hefur einnig getið
sér ágætisorðs sem glæpa-
sagnahöfundur með bókunum
Hlustað og Ókyrrð, sem ganga
út á símahleranir og hljóðupp-
tökur. Helgi hefði því í ljósi
bókmenntasögu upptakarans ef
til vill átt að hafa varann á áður
en hann fór á hans fund. Jón
Óttar hafði hugsað hlerunar-
bækurnar sem þríleik en ekkert
hefur bólað á síðustu bókinni en
síðustu vendingar benda til þess
að hann skortir varla yrkisefni.
kristinnhaukur@frettabladid.is
toti@frettabladid.is
1 2 . Á G Ú S T 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN