Fréttablaðið - 12.08.2020, Side 12
Má þá ekki lengur
dekka nema vera
tvo metra frá? Má ekki stilla
upp varnarvegg nema með
tveggja metra reglunni? Það
er margt í þessum drögum
sem heldur engu vatni fyrir
mér en á sama tíma skil ég
að það þurfi að setja ein-
hverjar reglur.
Arnar Sveinn
Geirsson,
forseti leik-
mannasamtaka
Íslands
1 2 . Á G Ú S T 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
FÓTBOLTI Leikjum Glasgow Celtic
í skosku deildinni gegn St. Mirren
í kvöld og Aberdeen á laugardag
hefur verið frestað eftir að leikmað-
ur liðsins, Boli Bolingoli, skrapp til
Spánar án þess að láta félagið vita
og spila svo gegn Kilmarnock á
sunnudag. Hann fór ekki í sóttkví
og hefur beðist afsökunar á hegðun
sinni. Celtic sagði í yfirlýsingu erfitt
að ímynda sér meira ábyrgðarleysi
í núverandi aðstæðum og bætti við
að þá skorti hreinlega orð til að lýsa
hegðun Bolingoli. Glasgow Celtic
mætir KR í næstu viku og kemur
því til leiksins ískalt. Nicola Stur-
geon, forsætisráðherra Skotlands,
skammaði leikmanninn á blaða-
mannafundi í gær, en fótboltamenn
hafa verið töluvert til umræðu í
Skotlandi fyrir allt annað en góða
hegðun í COVID-ástandinu. Stutt
er síðan að tveir leikmenn Aber-
deen smituðust á bar af veirunni.
„Ekki búast við að Celtic og Aber-
deen spili í vikunni og við sjáum
til með framhaldið. Þau fá hér með
gult spjald – næst verður það rautt,“
sagði forsætisráðherrann ákveðinn.
Neil Lennon, knattspyrnustjóri
Glasgow Celtic, var allt annað en
skemmt á blaðamannafundi í gær.
„Einn dagur á Spáni, það er ekkert
rökrétt við það,“ sagði Lennon og
sagði að leikmaðurinn hefði ekki
sagt neinum frá ferðalagi sínu, sem
hafi sett alla í hættu.
„Hann æfði alla vikuna og setti
alla í hættu í þeirri búbblu sem hér
er. Um leið og hann reimaði á sig
skóna á sunnudag setti hann alla
í hættu og leikmenn og starfsfólk
Kilmarnock líka.
Við höfum beðið öll félög í deild-
inni afsökunar sem og fótboltasam-
félagið í heild.“
Hann bætti við að Celtic hefði
í raun orðið reitt og agndofa yfir
hegðun Bolingoli. Félagið hafi reynt
að koma fótboltanum aftur af stað
og virt allar reglur. „Einn sjálfselsk-
ur einstaklingur hefur valdið okkur
miklum vonbrigðum með gjörðum
sínum,“ sagði hann um leikmann
sinn. – bb
Celtic mætir KR
eftir skammir FÓTBOLTI Knattspyrnusamband
Íslands birti drög að reglum sem
eiga að bjarga Íslandsmótinu. Drög-
in eru 12 blaðsíður og þar eru ítar-
legar leiðbeiningar um hvernig leik-
menn þurfa að haga sér milli æfinga
og leikja. „Ósanngjörn krafa,“ segir
forseti leikmannasamtakanna.
„Persónulega finnst mér þetta
ósanngjörn krafa á leikmenn nema
það verði komið til móts við þá á
einhvern hátt,“ segir Arnar Sveinn
Geirsson, forseti leik manna-
samtaka Íslands, um drög KSÍ
um hvernig sé hægt að blása lífi í
Íslandsmótið á ný.
KSÍ birti drög að reglum sem
telja 12 blaðsíður og eiga að bjarga
mótinu. Þar er að finna nokkuð ítar-
legur kafli um leikmenn og hvernig
þeir þurfa að haga sér milli æfinga
og leikja og í leikjum.
Leikmenn, þjálfarar, dómarar og
aðrir starfsmenn liða þurfa að lág-
marka samskipti við aðra og forðast
fjölmenna staði eins og verslanir,
veitingastaði, bíó og skemmtistaði.
Ef það er þó nauðsyn skal alltaf
halda tveggja metra fjarlægð og vera
með andlitsgrímu.
Á heimasíðu KSÍ segir að regl-
urnar séu meðal annars byggðar
á almennum sóttvarnakröfum
heilbrigðisyfirvalda á Íslandi, en
styðjist einnig við sambærileg gögn
meðal annars frá Þýskalandi, Dan-
mörku og UEFA.
Arnar Sveinn segir að íslenska
deildin sé, þó sumir formenn
keppist við að kalla fótboltann á
Íslandi atvinnugrein og leikmenn
atvinnumenn, ekkert annað en
hálfatvinnumennska og það sé
erfitt að biðja áhugamenn að haga
sér eins og atvinnumenn. „Sumir
hafa ágætlega upp úr því að spila
fótbolta á Íslandi en það er mikill
minnihluti, og örugglega fleiri sem
fá lítið sem ekkert en þeir sem hafa
það fínt. Að ætlast til þess að skikka
leikmenn, sem f lestir eru að gera
þetta í bland við vinnu eða skóla,
til þess að haga sér eins og atvinnu-
menn í þessu umhverfi – mér finnst
það ósanngjörn krafa og ég sé það
ekki gerast.“
Hann segir að samráðið við KSÍ
hafi verið gott og sambandið hafi
unnið vel með hagsmunaaðilum
en þegar drögin voru samin var
ekkert samráð haft og las Arnar
Sveinn drögin eins og flestir aðrir á
heimasíðu KSÍ. „Hvað þetta varðar
höfðum við ekkert heyrt og lásum
um þetta um leið og fréttin birtist.
Og það er verið að biðja um helling
frá leikmönnum.
Er það eðlilegt að þessi krafa sé
sett á leikmenn og hvað þýðir þetta?
Er þetta eitt af skilyrðunum til að
fótboltinn fari af stað og ef svo er,
hvernig er hægt að setja svona skil-
yrði á leikmenn án þess að rætt sé
við þá? Fyrir mér er þetta enn þá
frekar óljóst. Ég sé ekki hvort þetta
eru skilyrði eða tilmæli.
Ef það kemst upp að leikmenn
séu að fara út á mannamót einhvern
þriðjudaginn er þá mótinu stofnað í
hættu? Það eru margar spurningar
í þessu.“
Séu drögin skoðuð og skyldur
leikmanna skoðaðar eru þær orðn-
ar töluverðar. Á æfingum þarf að
bera grímu en samt ekki meðan á
Ósanngjörn krafa KSÍ til
leik manna í nýjum drögum
KSÍ birti drög að reglum sem eiga að bjarga Íslandsmótinu. Drögin eru 12 blaðsíður og þar eru ítarlegar
leiðbeiningar um hvernig leikmenn þurfa að haga sér milli æfinga og leikja en þeir eru beðnir um að
haga sér eins og atvinnumenn. „Ósanngjörn krafa,“ segir forseti leikmannasamtakanna, Arnar Sveinn.
Leikmenn þurfa að hlíða Víði ef undanþága fæst til að spila fótbolta að nýju hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Leikmenn mega
ekki heilsast
fyrir leiki heldur
aðeins klappa.
Þá er regluverk-
ið í kringum
leikdag orðið
mjög ítarlegt.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
æfingunni stendur. Sótthreinsa þarf
allan búnað í líkamsræktaraðstöðu
félaganna og alltaf halda tveggja
metra reglunni þar inni. Leikmenn
mega ekki deila vatnsbrúsa og á
liðsfundum skal notast við andlits-
grímur. Þá má ekki fara í viðtöl við
fjölmiðla aðra en sjónvarpsrétthafa
nema með fjartækni.
Eftir leiki er ekki lengur matur í
boði heimaliðsins heldur þurfa leik-
menn sem og aðrir að koma með
mat í lokuðum ílátum.
Á leikdag þarf helst að koma á
sínum einkabílum. Skylda er að
vera með grímu í búningsklefa á
leikdag og ekki vera inni í klefanum
lengur en 30-40 mínútur fyrir og
eftir leiki.
Engar liðsmyndir eru lengur
leyfðar, liðin ganga sitt í hvoru lagi
og er bannað að heilsa og óheimilt
er að fagna mörkum nema með
brosinu einu saman. Alls ekki með
snertingu. Þá er bannað að hrækja
og markmenn fá ekki að hrækja í
hanskana sína.
Leikmenn þakka ekki fyrir leik-
inn og takast ekki í hendur eftir
leiki. Arnari finnst þó margt orka
tvímælis. „Auðvitað skilur maður
sambandið í því að það þurfti að
gera einhverjar ráðstafanir til að fá
þessa undanþágu.
Maður spyr sig samt á móti – er
þetta gott fyrir íþróttina og það
verður að koma í ljós. Það er margt
í þessum drögum sem er hægt að
skoða. Það má ekki fagna með
snertingu en það eru einhverjar
hornspyrnur í hverjum leik og ein-
hverjar aukaspyrnur. Má þá ekki
lengur dekka nema vera tvo metra
frá? Má ekki stilla upp varnarvegg
nema með tveggja metra reglunni?
Það er margt í þessum drögum sem
heldur engu vatni fyrir mér en á
sama tíma skil ég að það þurfi að
setja einhverjar reglur.“
Ljóst er að mótið mun lengjast
eitthvað en reynt verður að ljúka
mótinu fyrir 1. desember. Arnar
segir að samkvæmt sínum upp-
lýsingum muni samningar leik-
manna framlengjast sjálfkrafa um
þann tíma sem mótið tekur. „Félag-
ið þarf að standa við sínar skuld-
bindingar og leikmenn líka. Þetta
eru þær fréttir sem ég fékk frá KSÍ
um mitt sumarið. Hvort það hafi
eitthvað breyst veit ég ekki. Nú er
þetta ekki aðeins út október heldur
mögulega út nóvember. Geta félögin
staðið við sitt? Geta félögin staðið
við sitt þegar engar tekjur eru að
koma inn? Þetta er eitthvað sem á
eftir að útfæra og þarf að gerast fyrr
en síðar.
Það gengur ekki að 15. október
þegar flestir samningar renna út að
þá væri ennþá einn og hálfur mán-
uður eftir af mótinu. Félögin sjá
kannski fram á að geta ekki greitt
leikmönnum eða staðið alfarið við
sitt og leikmenn vilja þá ekki spila
undir þeim aðstæðum. Hvað gerist
þá?“
Arnar segir að hann finni auð-
vitað til með KSÍ að finna lausnirn-
ar í þessu erfiða árferði. Það sé þó
þeirra starf. „Samúð mín er alveg
hjá vinum mínum í Laugardalnum
í KSÍ en á sama tíma er þetta þeirra
vinna að finna út úr þessu og hvort
sem er um heimsfaraldur að ræða
eða ekki þurfum við að finna lausn
á mótahaldinu. Það verður áhuga-
vert ef undanþágan fæst því þá
verður þetta skýrara og væntanlega
kynnt betur.
Þá verður áhugavert að heyra
hvað leikmenn eiga að gera milli
æfinga og leikja. Það er helvíti djarft
að ætlast til að leikmenn hitti enga
milli æfinga og leikja. Þetta verður
áhugavert eins og tímarnir sem við
lifum á.“ benediktboas@frettabladid.is
KR-ingar fara til Skotlands í næstu
viku nema Skotar hreinlega banni
Celtic að spila. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Í dag mun KSÍ funda með
félögum í efstu og næstefstu deild
þar sem farið verður yfir komandi
sóttvarnareglur, fari boltinn aftur
af stað. Síðar í vikunni er áætlað að
funda með öðrum deildum og fjöl-
miðlum. Þetta kemur fram á fót-
bolta.net en á heimasíðu KSÍ segir
að Mótanefnd KSÍ hafi fundað á
mánudag varðandi þann mögu-
leika að leyfi fáist til að hefja keppni
í mótum sumarsins aftur á föstudag.
Fyrsti leikurinn sem er áætlaður
er stórleikur KR og FH og topp-
slagur í Lengjudeildinni þar sem
Framarar mæta ÍBV. Ef undanþágan
fæst er ljóst að spilað verður undir
ströngu og vökulu auga yfirvalda
jafnvel þótt ekkert COVID-smit
tengist fótbolta hér á landi. – bb
KSÍ vonast til að
byrja á föstudag
SPORT