Fréttablaðið - 12.08.2020, Qupperneq 22
Uppsafnað tap af eldsneytisvörnum Icelandair frá ársbyrjun 2015 og fram á mitt ár 2020 nemur um 130 milljónum
Bandaríkjadala. Þetta má finna út
með því að skoða virkt eldsneytis
verð Icelandair í uppgjörum félags
ins og bera saman við stundarverð
á flugvélaeldsneyti á heimsmarkaði
hverju sinni (e. spot price). Miðað
við gengi dalsins í dag nemur upp
hæðin um 17,7 milljörðum króna.
Til samanburðar sækist félagið nú
eftir allt að 29 milljörðum króna í
væntanlegu hlutafjárútboði.
Uppsafnað tap af eldsneytis
varnarsamningum nemur því að
minnsta kosti 60 prósentum af
þeirri fjárþörf sem stjórnendur
félagsins áætla nú fyrir hlutafjárút
boðið. Mótaðilar Icelandair í fram
virkum samningum sem keyptir
voru til að verja eldsneytisverð, eru
meðal annarra fjárfestingabank
arnir Goldman Sachs og Macquire
Group, samkvæmt heimildum
Markaðarins.
Eldsneytisvarnarsamningar eru
oft notaðir af f lugfélögum til að
verja sig gegn sveiflum í eldsneytis
verði. Einkum og sér í lagi er þar
horft til sveiflna upp á við. Gjarnan
verja f lugfélög sig með þeim hætti
að eldsneytiskostnaður þeirra
haldist inni á ákveðnu verðbili. Fari
svo að olíuverð fari upp fyrir efra
verðbilið fær f lugfélagið greiddan
mismuninn frá mótaðila sínum. Á
sama hátt þarf f lugfélagið að greiða
mótaðila sínum fari olíuverð niður
fyrir neðra verðbil.
Sjá má á gögnum um virkt elds
neytisverð Icelandair á árunum
2015 til 2016, mikið tap af elds
neytisvörnum félagsins miðað við
stundarverð á mörkuðum á þeim
tíma. Olíuverð hafði lækkað hratt
á árinu 2014 sökum offramboðs á
mörkuðum og tók ekki að hjarna
við fyrr en snemma árs árið 2017.
Uppsafnað tap fyrir árin 2015 og
2016 var engu að síður meira en 81
milljón dala. Hagnaður upp á 34
milljónir dala varð á fyrsta fjórð
ungi 2017, en auk fyrstu þriggja
fjórðunga ársins 2018 er um að ræða
einu fjóru fjórðungana á tímabilinu
frá 2015 og til loka fyrsta fjórðungs
þessa árs sem eldsneytisvarnir
Icelandair skiluðu hagnaði. Á fjórða
ársf jórðungi komu eldsneytis
varnir félagsins nokkurn veginn út
á sléttu, en meðalolíuverð á þeim
ársfjórðungi stóð í um það bil 64
dölum fyrir fatið.
Meðal þeirra aðila sem Icelandair
ræðir nú við vegna fjárhagslegrar
endurskipulagningar félagsins,
eru mótaðilar í þessum eldsneytis
varnarsamningum. Sem áður segir
eru það meðal annars f járfest
ingabankarnir Goldman Sachs og
Macquire Group. Sá síðarnefndi
er einkar umfangsmikill við sölu
áhættuvarnarsamninga til fyrir
tækja sem bera verðáhættu vegna
ýmissa hrávara.
Það er ekkert óeðlilegt að kostn
aður fylgi áhættuvörnum, enda er
þeim ætlað að koma í veg fyrir að
rekstur félaga taki á sig mikla skelli.
Sé lítið til taps á áhættuvörnum á
fyrsta fjórðungi þessa árs, er ein
sýnt að algjört hrun á olíumörk
uðum orsakaði það. Fram hefur
komið í erlendum fjölmiðlum að
írska f lugfélagið Ryanair miðaði
sínar áhættuvarnir á árinu 2020
við að olíuverðið yrði að meðaltali
83 dalir á tunnuna og tap félags
ins af samningunum metið vel
norðan við einn milljarð evra, eða
sem nemur um 161 milljarði króna.
Svipaðar fjárhæðir var um að ræða
hjá félögunum EasyJet, KLM og
British Airways, svo einhver dæmi
séu tekin. Það styrkir því ef laust
samningsstöðu Icelandair gagnvart
mótaðilum sínum í áhættuvörnum,
að hvert einasta flugfélag sem hafði
einhvers konar áhættuvarnir fékk
stóran skell við olíuverðshrunið í
kjölfar yfirreiðar COVID19.
Vinna við fjárhagslega endur
skipulagningu Icelandair Group,
sem felur í sér að ná samningum
við fimmtán lánardrottna, íslensk
stjórnvöld og Boeing stendur yfir,
en búist er við að niðurstaða hennar
liggi fyrir í vikunni, mögulega strax
í dag. Eva Sóley Guðbjörnsdóttir,
framkvæmdastjóri fjármálasviðs
félagsins, sagði aðspurð í samtali
við Fréttablaðið þann 21. júlí síð
astliðinn að Icelandair hefði keypt
olíuvarnir til þess að verja um 4060
prósent af áætlaðri olíunotkun í
hverjum mánuði, sem væri í takt
við áhættustefnu félagsins, áður en
kórónaveiran skall á heimsbyggð
inni. Þá snarminnkaði olíunotkun
flugfélagsins.
„Við höfum verið að gera upp
olíuvarnir í hverjum mánuði þegar
þær falla á gjalddaga. En það eru
ýmsir möguleikar í stöðunni, til
dæmis að loka vörnum fram í tím
ann og þá mögulega með afslætti
eða að færa þær lengra inn í fram
tíðina. Við heyrum af því að önnur
f lugfélög hafa farið báðar þessar
leiðir,“ sagði Eva.
Við vinnslu fréttarinnar hafði
Icelandair ek k i svarað f y rir
spurnum Fréttablaðsins sem lutu
að því hvernig eldsneytisvörnum
verður háttað eftir hlutafjáraukn
ingu, að hversu miklu leyti nýtt
hlutafé verður nýtt til að gera upp
skuldir gagnvart mótaðilum í eld
neytisvarnarsamningum, eða hvort
ákvörðun hafi verið tekin um að
breyta stefnu félagsins í þessum
efnum.
Dýrkeyptar eldsneytisvarnir flugsins
á tímum sveiflukennds olíuverðs
Uppsafnaður kostnaður Icelandair Group vegna eldsneytisvarna frá ársbyrjun 2015 er nærri 18 milljarðar. Mótaðilar félagsins í
eldsneytisvarnarsamningum eru meðal þeirra kröfuhafa sem þarf að semja við fyrir hlutafjáraukninguna. Fjölmörg flugfélög fóru
illa út úr niðursveiflu olíuverðsins á þessu ári. Icelandair keypt olíuvarnir til að verja um 40-60 prósent af áætlaðri olíunotkun.
Mörg alþjóðleg flugfélög fóru illa út úr olíuverðslækkuninni fyrr á þessu ári vegna áhættuvarnarstefnu sinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR
Þórður
Gunnarsson
thg@frettabladid.is
✿ Virkt eldsneytisverð Icelandair miðað við stundarverð
800 tonn
700
600
500
400
2015 2016 2017 2018 2019
n Virkt verð ICEAIR n Meðalstundarverð (FOB USG)29
milljarða áformar Icelandair
að sækja í hlutafjárútboði.
Á meðal mótaðila
Icelandair Group í eldneytis-
varnarsamningum eru
fjárfestingabankarnir
Goldman Sachs og Macquire
Group.
Breska lyfjafyrirtækið Hikma, sem stýrt er af Sigurði Óla Ólafssyni, mun hefja fram
leiðslu á remdesivir, sem hefur
reynst vel gegn kórónaveirunni,
fyrir bandaríska lyfjarisann Gilead.
Reuters hefur eftir Sigurði Óla, eða
Sigga eins og hann er nefndur, að
framleiðslan verði í verksmiðju
fyrirtækisins Portúgal og hefjist
bráðlega. „Skilyrði samningsins eru
trúnaðarmál, við erum einfaldlega
verktaki fyrir Gilead. Þeir leggja
inn pantanir í takt við væntingar
um sölu,“ sagði Siggi í samtali við
Reuters.
Rannsóknir undanfarna mánuði
hafa leitt í ljós að remdesivir, sem
var upphaf lega þróað gegn lifrar
bólgu C og notað gegn ebólu, sé eitt
af tveimur lyfjum sem hafa sértæka
verkun á kórónaveiruna.
Bandarísk stjórnvöld hafa keypt
upp allar birgðir af lyfinu remde
sivir út september og hefur Gilead
því unnið hörðum höndum að því
að finna samstarfsfyrirtæki í mis
munandi heimsálfum til að auka
framleiðsluna. Markmiðið er að
framleiða næga skammta fyrir tvær
milljónir sjúklinga á þessu ári.
Siggi var ráðinn forstjóri Hikma
í febrúar 2018 en hann hafði áður
starfað sem forstjóri Actavis og
forstjóri samheitalyfjasviðs Teva,
móðurfélags Actavis. Hlutabréf
fyrirtækisins hækkuðu um tæp
lega sex prósent eftir að greint var
frá samningnum við Gilead og góðu
uppgjöri sem fór fram úr vænting
um greinenda.
– þfh
Framleiða lyfið remdesivir undir stjórn Sigga
Sigurður Ólafsson, eða Siggi, er for-
stjóri breska félagsins.
6%
nam hækkun hlutabréfa-
verðs Hikma eftir að greint
var frá samningi fyrirtækis-
ins við lyfjarisann Gilead.
1 2 . Á G Ú S T 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R8 MARKAÐURINN