Fréttablaðið - 12.08.2020, Page 27
TAKK LJÓSAVINIR
Þið veitið krabbameinsgreindum ómetanlegan stuðning ljosid.is
Nafn: Magnea Mist Einarsdóttir
Aldur: 21. fædd 1999
Starf/nám: Var að klára 1. árið í félagsráðgjöf
við Háskóla Íslands og ætla núna að taka smá
námspásu og fara að vinna.
Hvernig myndir þú lýsa tilfinningunni þegar þú mættir
í ljósið: Ég var alveg pínu stressuð því ég hafði
síðan ég vissi hvað Ljósið væri haldið að það væri
bara eldra fólk sem færi þangað. En það var
tekið alveg rosalega vel á móti mér og æðislegt
fólk sem starfar þarna. Hjálpaði mér að mæta
á námskeið og fleira en hefði verið gaman ef
fleiri væru á mínum aldri svo maður gæti kynnst
jafnöldrum í sömu sporum. Hvet því alla að fara í
ljósið, sama á hvaða aldri maður er!
Hvernig fréttir þú af ljósinu: Minnir að ég hafi frétt
af því í gegnum ættingja.
Hver er uppáhalds dagskrárliðurinn þinn í ljósinu:
Námskeiðin voru æði sem ég fór á þegar ég kom
fyrst í ljósið, annars hef ég verið að mæta í
nudd, myndlist og íþróttatíma. Það er svona það
helsta.
Nýtti einhver ástvinur sér þjónustu fyrir
aðstandendur: Það var enginn ástvinur minn sem
gerði það, en ég myndi algerlega hvetja fólk til
þess!
Ljósavinir eru ómetanlegur þáttur í starfsemi Ljóssins. Með þínu framlagi geta nú yfir
500 ljósberar eins og Magnea Mist notið endurhæfingar og stuðnings í hverjum mánuði.
Það er ekkert sem býr mann undir að greinast með krabbamein en með þinni hjálp
getum við boðið þeim sem greinast faglega endurhæfingu.
Fyrir það erum við ævinlega þakklát.