Fréttablaðið - 12.08.2020, Qupperneq 28
Seint á 19. öld og snemma á þeirri 20. trúðu norskir læknar því að salt örvaði
taugakerfið og kalt vatn hraðaði
efnaskiptum. Þeir skikkuðu fólk
því í sjóböð til lækninga eins og
þeir töldu þörf á. Kristine Lillestøl
hefur rannsakað þessa læknisfræði
fyrir Óslóarháskóla og fjallað var
um fyrirbærið á vefnum Science-
Norway.no.
„Sjóbað ætti að vera stutt, yfir-
leitt bara örfáar mínútur. Eftir
baðið á að þurrka sér hratt, klæða
sig og svo stunda hreyfingu,“
skrifaði læknirinn Peter Andreas
Munch Mellbye árið 1903. Hann var
einn af mörgum norskum læknum
frá þessum tíma sem töldu sjóböð
virka sem lækningameðferð.
Dr. Ingebrigt Christian Lund
Holm gerði lista yfir sjúkdóma sem
sjóböð virkuðu gegn árið 1886.
Böðin áttu að hjálpa fólki sem var
veikburða eftir alvarleg veikindi,
með hægvirkt taugakerfi, blóðleysi
sem tengdist ekki þyngdartapi,
andlega ofreynslu, móðursýki,
berkla í eitlum, veika húð, gigt og
tilhneigingu til að fá kvef.
En þó að sjóböð ættu að hafa
styrkjandi áhrif þurftu sjúklingar
að vera í ágætu ásigkomulagi til að
þola þau. Þar sem kalda vatnið var
talið örva efnaskipti var það ekki
talið henta öllum og læknar töldu
líka að saltið gæti haft of mikil
örvandi áhrif á suma sjúklinga.
Klöppuðu marglyttum
Það er erfitt að segja hversu vel
meðferðirnar í þessum heilsu-
lindum virkuðu en svo virðist sem
margir sjúklingar hafi náð bata.
Læknar höfðu þó mjög takmark-
aðar aðferðir til að mæla áhrif með-
ferða sinna. Engu að síður nýttu
þeir þær aðferðir sem þeir höfðu
og skráðu vandlega hjá sér ýmsar
mælingar.
Í einni af þessum heilsulindum
gekk meðferðin út á mun meira
en bara sjóböð. Þar var boðið upp
á nudd og líkamsrækt og frekar
strangt mataræði, þannig að með-
ferðin snerist að miklu leyti um
reglusemi og góða lifnaðarhætti.
Læknarnir vissu í rauninni ekki
hvað hafði virkað þegar fólk náði
bata.
Í heilsulindinni í Sandefjord
var boðið upp á meira framandi
meðferðir. Þar stundaði fólk að
klappa marglyttum, synda í fín-
kornaðri leðju af hafsbotni og
bæði drekka og synda í vatni sem
var ríkt af brennisteini. Þessar
meðferðir voru hugarfóstur dr.
Heinrich Arnold Thaulow sem
stofnaði heilsulindina árið 1837 og
var frumkvöðull í baðlækningum
í Noregi.
Margar heilsulindir voru opnað-
ar í Noregi á síðari hluta 19. aldar,
en samt sem áður vöruðu sumir
læknar við hættunni af þessum
lækningum og ávíttu foreldra sem
leyfðu börnum sínum að synda
mikið í sjónum því þau höfðu heyrt
að það væri hollt.
Sjóböð, sól eða lífsstíll?
Sjóböð hafa aðra stöðu í dag, þó að
fólk sem stundar þau sé sammála
um að þau bæti líðan. Lillestøl
bendir samt á að sumar meðferðir
frá þessum tíma séu enn í notkun
og að sjúklingum í Noregi sé boðið
upp á meðferðir sem eru svipaðar
þeim sem buðust í heilsulindum á
þessum tíma.
Fullorðnu fólki með húðsjúk-
dóminn psoriasis og börnum og
ungu fólki með ofnæmisexem er
boðið upp á meðferðir í hlýrra
loftslagi, segir húðlæknirinn
Teresa Løvold Berents, sem stundar
rannsóknir við háskólasjúkrahúsið
í Ósló. „Þeim er til dæmis boðið
upp á þriggja vikna meðferðar-
ferð með strangri dagskrá sem
inniheldur sund og sólböð,“ segir
hún. Hollt mataræði, líkamsrækt,
menntun og þjálfun eru líka mikil-
vægir hlutar af meðferðinni.
Það eru til nokkrar norskar
rannsóknir sem hafa sýnt að þessar
meðferðir bæði hjálpi fólki líkam-
lega og bæti lífsgæði þeirra. En það
er ekki á hreinu hvort sjóböðin
sjálf hafi einhver áhrif. Berents
bendir á að það gæti vel hafa verið
sólin sem hjálpaði fólkinu í heilsu-
lindunum í gamla daga. Það gæti
líka einfaldlega verið að góð hvíld,
góð næring og heilbrigðir lífshættir
hafi verið það sem hjálpaði þessu
fólki að öðlast bót meina sinna.
Sjóböð voru notuð sem lyf
Á seinni hluta 19. aldar urðu sjóböð í heilsulindum vinsæl læknismeðferð í Noregi. Heimsókn í
heilsulindirnar gat hjálpað fólki með ýmsa sjúkdóma en læknarnir vissu samt ekki alveg hvernig.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Sjóböð njóta enn mikilla vinsælda, en þau eru ekki lengur talin búa yfir jafn
miklum lækningamætti eins og áður fyrr. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Þar stundaði fólk
að klappa mar-
glyttum, synda í fín-
kornaðri leðju af hafs-
botni og bæði drekka og
synda í vatni sem var
ríkt af brennisteini.
Fæst í öllum helstu matvöruverslunum, apótekum
og heildsöluvöruverslunum.
LAXDAL
SUMARSALAN
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
skoðið laxdal.is
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð
LOKAHNYKKUR
Í SUMARÚTSÖLUNNI
- NOTIÐ TÆKIFÆRIÐ -
50%-70% AFSLÁTTUR
GÆÐAFATNAÐUR
SEM ENDIST
VELKOMIN
LAXDAL ER Í LEIÐINNI
Kápa
Verð: 36.980
Nú: 14.792
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 4 M I ÐV I KU DAG U R 1 2 . ÁG Ú S T 2 0 2 0