Fréttablaðið - 12.08.2020, Side 36

Fréttablaðið - 12.08.2020, Side 36
Tom Hanks og Rita Wilson voru stödd í Ástralíu við upptökur þegar þau tilkynntu það 12. mars að þau hefðu smitast af vírusnum. Þau upplifðu víst nokkuð ólík einkenni og finna enn fyrir þreytu og einbeitingarleysi. Alyssa Milano sagði frá því á dögunum að henni hefði ítrekað verið neitað um skimun þegar hún veiktist. Í blóðprufu kom svo í ljós að hún hafði fengið vírusinn. Forsætisráðherra Bretlands, Boris Johnson, greindist með vírusinn alveg í lok mars. Hann þurfti svo að liggja í þrjá daga á gjörgæslu í aprílmánuði. Leikarinn Bryan Cranston greindi frá því í lok júlí að hann hefði fengið COVID-19 þrátt fyrir að hafa verið í sjálfskipaðri sóttkví. Hann fékk mild einkenni. Leikarinn Antonio Banderas smitaðist nú fyrir stuttu á Spáni þar sem hann fagnaði 39 ára afmæli kærustu sinnar. Þar gengur nú önnur bylgja veirunnar yfir. Upphaflega stóð til að Andrea Bocelli héldi tónleika á landinu þann 23. maí. Tónleikunum var frestað til 3. október og verður þá að koma í ljós hvort af þeim verður. Bocelli smitaðist sjálfur af vírusnum í mars en hélt því leyndu. Söngkonan Pink smitaðist ásamt syni sínum. Hún segir það hafa verið eina sína erfiðustu lífsreynslu og að hún sé enn að glíma við vandamál tengd COVID-19. Kanye West fullyrðir að hann hafi smitast af vírusnum í febrúar og þá upplifað mikinn hita, hroll og skjálfta. Ekki er staðfest hvort hann hafi yfirleitt farið í skimun. Heimsfaraldu r inn hefur farið mis-erfiðlega í fólk en allir ættu þó að geta viðurkennt að ástandið hefur haft mikil áhrif á heimsmyndina. Þegar COVID-19 fór fyrir alvöru að gera vart við sig í febrúar var það fjarlæg hugmynd að veiran myndi mögu- lega hafa þau áhrif sem hún hefur haft. Það er hugrakkt skref að deila greiningunni með öðrum og þá sér í lagi til að létta af þeirri skömm sem margir segjast hafa upplifað eftir smit. Hér eru nokkur dæmi um heimsþekkta einstaklinga sem smituðust. steingerdur@frettabladid.is Hafa greinst með  vírusinn Tom Hanks tilkynnti í mars að hann hefði smitast af kórónavírusnum. Fleiri heims- þekktir einstaklingar hafa smitast í kjölfar- ið. Hér eru dæmi um nokkra sem hafa deilt greiningu sinni og reynslu af vírusnum. 1 2 . Á G Ú S T 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.