Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2020, Qupperneq 2
Framsókn sér um sína
Svarthöfði hefur lengi dáðst að Lilju Dögg Al-freðsdóttur. Það markaði
tímamót í sögu Framsóknar-
flokksins þegar Sigmundur
Davíð sótti hana í Seðlabank-
ann og gerði að ráðherra til að
milda ásýnd flokksins, skömmu
áður en hann sagði af sér emb-
ætti forsætisráðherra vegna
Wintris-málsins. Lilja hefur
verið ljúf sem lamb og brætt
hjörtu allra. Ítrekað hefur hún
verið valin vinsælasti ráðherr-
ann. Ítrekað mætir hún í viðtöl
með bros á vör, í fallegri dragt
og hárið óaðfinnanlegt.
Það hryggir Svarthöfða að nú
sé verið að ráðast að hinni ljúfu
Lilju úr öllum áttum. Konukind
úti í bæ hélt að hún gæti klekkt
á Lilju með því að kæra hana
til kærunefndar jafnréttismála
eftir að Lilja réði flokksfélaga
sinn í Framsókn sem ráðu-
neytisstjóra frekar en bless-
aða konuna. Meðlimir kæru-
nefndar voru sammála um að
taka Lilju niður og sögðu hana
hafa brotið jafnréttislög. Þvílík
firra. Kona að brjóta jafnréttis-
lög! Hún Lilja hans Svarthöfða
síns? Nei, takk. Svona vitleysu
vill Svarthöfði ekki heyra. Við
Framsóknarmenn verðum að
standa saman.
En Lilja kom með krók á
móti bragði og ætlar að fara í
mál við kellinguna til að láta
ógilda úrskurð kærunefndar.
Hún skal sko læra að maður
fokkar ekki í Lilju. Það er
heilög skylda Framsóknar-
manna að ota sínum tota og
koma sínu fólki að. Fólki sem
er flokknum þóknanlegt.
Það er gleðiefni að Lilja sé
farin að sýna klærnar. Svona
er best að gera þetta – byggja
upp traust og taka síðan til
óspilltra (!) málanna. Ekki er
langt síðan Lilja skipaði ann-
an flokksbróður í alls konar
nefndir sem hann fékk vel
greitt fyrir. Þeirra á meðal var
nefndin sem komst að þeirri
niðurstöðu að það væri Fram-
sóknarmaður sem yrði besti
ráðuneytisstjórinn. Lilja valdi
vitanlega Framsóknarmann til
að stýra Fjölmiðlanefnd þrátt
fyrir að einhver kona með
sérfræðiþekkingu væri til í
stöðuna.
Kosningar eru á næsta ári og
enginn veit hvort Lilja verður
áfram ráðherra. Því liggur á
að koma Framsóknarmönnum
fyrir í sem flestum bitastæð-
um stöðum. Framsóknarflokk-
urinn sér um sína. n
SVART HÖFÐI
Aðalnúmer: 550 5060
Auglýsingar: 550 5070
Ritstjórn: 550 5070
FRÉTTA SKOT
550 5070
abending@dv.is
Syfjað siðferði
K
osningabarátta getur
súrnað ansi hratt,
þrátt fyrir háleit
markmið um háttvísi
allra aðila. Nú þegar
forsetakosningar
fara fram um helgina er áhugavert
að velta fyrir sér kosningahlaupinu
sem við þreytum trekk í trekk
með ýmsum hætti í gegnum
lífið. Strax í grunnskóla
keppast börn við að bjóða sig
fram sem formann nem-
endaráðs eða barist er um
atkvæði þeirra. Loforð,
upptal og ef vel gengur,
uppklapp. Á unglingsár-
um fer tíminn í alls kyns
framboð sem oft eru mis-
gáfuleg eins og embættin
sem sóst er eftir.
Það verður snemma ljóst
hvernig týpa tranar sér fram.
Fer hún í manninn eða mál-
efnið? Þykir hún líkleg til að
standa við rjómablönduð loforð
um betri tíð? Er frítt súkkulaði í allar kennslustofur
raunhæft? Eða alls konar fyrir aumingja?
Mennirnir tveir sem keppa um titilinn forseti
Íslands að þessu sinni eru eins ólíkir og dagur og
nótt en auðvelt væri að taka saman tjúlluðustu um-
mæli forsetaframboðsins og sögulegra kappræðna í
skemmtilega en virkilega óþægilega myndasögu.
Nálægðin í svo litlu samfélagi sem við búum í
gerir allt persónulegra. Allir hafa sína sögu að segja
af frambjóðendum og fara þær hátt á samfélags-
miðlum. Menn hringja á ritstjórnina með dólg á
síðustu metrunum og súrinn ágerist. Lífróðurinn
gerir vart við sig.
Á sama tíma á sér stað annar slagur í Efstaleitinu.
Einar Hermannsson sækist eftir formannssæti SÁÁ
í kosningum samtakanna í næstu viku. Í forsíðu-
viðtali lýsir hann formannsslagnum sem óskemmti-
legum og kemst vel að orði þegar hann segir að það
sé leiðinlegt að lesa óhróður um bæði sjálfan sig
og Þórarin Tyrfingsson, mótframbjóðanda sinn, og
ekki sé síður leiðinlegt hvernig ýmsum rangfærslum
sé haldið fram. Áður en kvölda tekur fer siðferðið að
syfja og mörk milli manns og málefnis taka að renna
saman. Það er óþolandi.
Nýtum kosningaréttinn á öllum vígstöðvum með
opin augu og hlýtt hjarta.
UPPÁHALDS
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir
RITSTJÓRI: Þorbjörg Marinósdóttir, tobba@dv.is FRÉTTASTJÓRI: Erla Hlynsdóttir, erlahlyns@dv.is AUGLÝSINGAUMSJÓN: Ruth Bergsdóttir, ruth@dv.is
PRENTUN: Torg prentfélag DREIFING: Póstdreifing | DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. DV, Kalkofnsvegi 2, 101 Reykjavík Sími: 550 7000.
MYND/VILHELM
Berglind Guðmundsdóttir,
rithöfundur og matarblogg-
ari á Gulur, rauður, grænn
og salt, kallar ekki allt ömmu
sína. Hún ætlar ekki að láta
grillsumarið mikla fram hjá
sér fara og deildi með DV
uppáhaldsgrilluppskriftum
sínum.
1 Kjúklingur
fyrir heimska
„Það fyrsta sem kemur
í hugann er uppskriftin
Kjúklingur fyrir heimska –
þessi uppskrift er svona eins
og lóan – sól og sumar er í
vændum um leið og þessi fer
á grillið. Þessi réttur er ein-
faldur og góður. Uppskrift-
ina fékk ég fyrir mörgum
árum en þá hét hún „chicken
for dummies“ – sem ætti
kannski frekar að þýða sem
„kjúklingur fyrir byrjendur“
– en við breytum víst ekki
nafninu úr þessu.
2 Sweet chili-laxinn
Annað sem mér dettur í hug
er „Sweet chili-laxinn“ sem
er grillaður á teini – en þessi
réttur er frábær leið til að fá
krakkana til að borða fisk og
jú, jú, vissulega okkur full-
orðna fólkið líka. Bragðast
eins og sælgæti.
3 Lambakórónur
Svo þykja mér lambakór-
ónur hinn besti matur og
aftur erum við með eitthvað
sem er einfalt í gerð. Stutt á
grillið, ólífuolía, salt og pipar
– kannski smá chili-flögur
og veislumáltíð tilbúin án
mikillar fyrirhafnar.
4 Grænmeti
Grillað grænmeti í öllum
regnbogans litum er snilldin
ein og í raun frábær réttur
einn og sér, en líka sem
forréttur, smáréttur eða
meðlæti með öðrum mat. Þá
dreypi ég vel af góðu Olifa
hennar Ásu Regins yfir
grænmetið og krydda með
góðu íslensku sjávarsalti.
5 Rosa bomba
Í eftirrétt er svo gott að
setja súkkulaðikaramellur,
sykurpúða, súkkulaði og
fersk ber í ísform og pakka
inn í álpappír og grilla þar
til þetta er farið að mýkjast.
Rosa bomba.“
GRILLUPPSKRIFTIR
Þvílík firra.
Kona að brjóta
jafnréttislög!
2 EYJAN 26. JÚNÍ 2020 DV