Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2020, Side 4
1Hjón á Nýja-Sjálandi flæmd í burtu af íslenskum nágranna:
„Hver vill sitja og horfa á þetta
allan daginn?“ Íslendingur ofsótti
nágranna sína, henti kattasandi á lóð
þeirra og reisti vegg fyrir útsýnið.
2Fimm ára drengur var einn á ráfi um nótt – Lögreglan gerði
skelfilega uppgötvun heima hjá
honum. Drengurinn fannst á ráfi í
New Jersey. Í ljós kom að móðir hans
hafði verið drepin af unnusta sínum.
3 „Það er eiginlega búið að segja við mig að ég geti ekki átt börn“
Svala Björgvinsdóttir söngkona var
í innilegu viðtali við Mannlíf, opnaði
sig um skilnaðinn og nýja sam-
bandið.
4 Eitt furðulegasta tilboðið á Ís-landi – 50% afsláttur ef þú upp-
fyllir eitt skilyrði Veitingastaðurinn
Rakang býður þeim sem hafa farið í
magaminnkunaraðgerð upp á afslátt.
5 Björn Ingi bendir á ótrúlega staðreynd um Víði – „Gæti það
ekki nálgast að vera met?“ Við
vinnslu á bók sinni um COVID-19
komst Björn Ingi að því að Víðir
Reynisson fór einn daginn í 21 viðtal.
6 Tollverðir urðu kjaftstopp þegar þeir fundu þennan farm Við
landamæraeftirlit í Noregi fundust
ríflega 800.000 sígarettur sem faldar
voru með málmplötum.
7 Vændiskona segir gifta stjörnu hafa barnað sig – „Hann
skammaðist sín“ Bresk vændiskona
fullyrðir að stjarna í ensku úrvals-
deildinni sé barnsfaðir hennar.
8Ekki lengur hægt að taka handfarangur í flug Icelandair
– Fáeinar undantekningar Vegna
COVID-19 hefur Icelandair hert reglur
um handfarangur. Lækningatæki eru
leyfð.
9Fyrir 10 árum spáði hann miklum hörmungum 2020 – Hugsan-
lega höfum við bara séð upphafið á
þeim Þróunarlíffræðingurinn Peter
Turchin rannsakar hvernig krísur og
hörmungar herja á samfélög.
MEST LESIÐ
Á DV Í VIKUNNI Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST...
Enn þá skelfur Norðurland
Skjálftahrina gengur enn þá yfir Norðurland og hafa yfir
5.000 skjálftar orðið síðan 19. júní. Stærsti skjálftinn til þessa
var á sunnudagskvöld, 5,8 að stærð, og voru upptök hans norð-
austur af Siglufirði. Enn mælist mikið af minni skjálftum á
svæðinu og áfram eru líkur á því að fleiri stærri skjálftar
muni verða.
Flugfreyjur semja
Margra vikna kjaradeilu Icelandair og Flugfreyjufélags Ís-
lands er nú loks lokið. Aðfaranótt fimmtudags var skrifað
undir nýjan kjarasamning til fimm ára. Í fréttatilkynningu
segir að samningurinn sé „í samræmi við þau markmið sem
lagt var upp með um að auka vinnuframlag og sveigjanleika
fyrir félagið en á sama tíma verja ráðstöfunartekjur flug-
freyja og flugþjóna.“
2.000 manns mega koma saman
Á upplýsingafundi almannavarna á miðvikudag var tilkynnt
um næsta skref í að aflétta samkomu- og fjöldatakmörkunum.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hyggst leggja fram tillögu
til heilbrigðisráðherra um að þann 13. júlí megi tvö þúsund
manns koma saman. Þá er til skoðunar að lengja afgreiðslu-
tíma á veitingastöðum, börum og skemmtistöðum.
Lík í smábátahöfn
Um miðjan dag á sunnudag fannst lík karlmanns í berginu við
smábátahöfnina í Gróf í Keflavík. Fyrr um daginn hafði mik-
ill viðbúnaður verið á svæðinu en allt tiltækt slökkvilið var
kallað út, ásamt sjúkrabílum, lögreglu og björgunarsveitum.
Að sögn Ólafs Helga Kjartanssonar, lögreglustjóra á Suður-
nesjum, er andlát mannsins ekki rannsakað sem sakamál.
14 ára pilti meinað að spila fótbolta
Lance Campbell, faðir 14 ára pilts í FH, er ósáttur eftir að syni
hans var meinað að spila í leik FH og Hauka. Sonur hans var
samningsbundinn erlendis þangað til í maí og er ekki kominn
með leikheimild hér á landi en hefur fengið að spila með FH
á undanþágu. Lance segir félagið ræna son sinn því tækifæri
að mæta vinum sínum.
Hjúkrunarfræðingar sáttir
Fyrirhuguðu verkfalli hjúkrunarfræðinga, sem hefjast átti á
mánudagsmorgun, var afstýrt á síðustu stundu. Seint á sunnu-
dagskvöld lagði ríkisáttasemjari fram miðlunartillögu í kjara-
viðræðum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og ríkisins.
Samkomulag hefur náðst um öll meginatriði kjarasamnings,
þar á meðal um breytt vinnufyrirkomulag í dagvinnu og
vaktavinnu en enn á eftir að semja um afmörkuð atriði sem
varða laun.
CMYK
SV/HV
Vertu viss um að velja
besta kjötið á grillið!
Meira á
www.fjallalamb.is
4 FRÉTTIR 26. JÚNÍ 2020 DV