Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2020, Qupperneq 16
26. JÚNÍ 2020 DV16 EYJAN
J ón Þór Ólafsson, þing-maður Pírata, er nýr for-maður stjórnskipunar-
og eftirlitsnefndar Alþingis
eftir að Þórhildur Sunna
Ævarsdóttir sagði af sér for-
mennsku í nefndinni. Taldi
hún meirihlutann hafa dregið
persónu sína í svaðið og notað
hana sem blóraböggul til að
koma sér hjá skyldum sínum
í máli Kristjáns Þórs Júlíus-
sonar sjávarútvegsráðherra,
sem væri þaulreynd kúgunar-
og þöggunartaktík.
Traustið áunnið
Brynjar Níelsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, lýsti
yfir vantrausti á Jón Þór sem
formann, um leið og valið lá
fyrir. Þá greiddi Þorsteinn
Sæmundsson, Miðflokki,
atkvæði gegn Jóni Þór í at-
kvæðagreiðslu um formanns-
skiptin, en þingmenn meiri-
hlutans ýmist sátu hjá, eða
tóku ekki þátt vegna fjarveru.
Það liggur því beinast við
að spyrja Jón Þór hvort hann
telji sig njóta trausts sem for-
maður nefndarinnar.
„Ég veit nú ekki með það.
Við sjáum bara hvernig þetta
þróast. Þórhildur Sunna lýsti
persónulegum árásum á sig,
til að gera henni erfiðara um
vik að sinna sínu hlutverki. Ég
þarf að vinna mér inn traustið
og ég trúi ekki öðru en að ef
málefnaleg sjónarmið fái að
ráða, muni ég gera það. En
annars snýst þetta bara ekki
um traust, heldur að nefndin
fái að starfa eftir lögum. Það
er bara ekkert annað í boði,
það er þannig sem ég mun
starfa sem formaður, að ganga
úr skugga um að nefndin sinni
sínu lögbundna hlutverki, sem
er meðal annars að hafa eftir-
lit með ráðherrum.“
Þá nefnir Jón Þór einn-
ig að í gildi sé samningur
milli stjórnarmeirihlutans
og stjórnarandstöðunnar um
skiptingu nefndarformanna,
sem staðið hefði verið við:
„Annaðhvort gátu menn stað-
ið við þann samning eða brotið
hann. Og menn eru nú yfirleitt
ekki að brjóta slíkt skriflegt
samkomulag, það hefði þá haft
aðrar afleiðingar.“
Þórhildur á réttri leið
Þórhildur Sunna var sjálf
gagnrýnd fyrir framgöngu
sína af meirihlutanum, hún
væri ómálefnaleg og óbilgjörn.
Jón Þór vék sér fimlega undan
því að svara hvort hann sjálfur
hygðist breyta um áherslur í
sinni nálgun:
„Samkvæmt gögnum máls-
ins get ég ekki séð annað en
að Þórhildur Sunna hafi ein-
faldlega framfylgt lögum og
reglum nefndarinnar. Þær eru
kýrskýrar, að rannsaka skuli
verklag ráðherra. Hún var
ekki að gera þetta eitthvað upp
á sitt einsdæmi og draga það
upp úr hattinum að rannsaka
Kristján Þór. Lögin einfaldlega
kveða á um það, þegar slík mál
koma upp,“ segir Jón Þór.
Spurningum ósvarað
Hann nefnir vinskap Krist-
jáns Þórs við forstjóra Sam-
herja, Þorstein Má Baldvins-
son, en fyrirtækið er nú til
rannsóknar vegna meintra
mútumála í Namibíu. Hann
segist þegar byrjaður að skoða
gögn málsins:
„Ég mun rannsaka það og
er þegar byrjaður á því. Máli
Kristjáns Þórs er ekki lokið.
Þar er mörgum spurningum
enn ósvarað. Kristján þarf að
svara því hvernig hann hefur
verið að meta hæfi sitt. Það
liggur ekki fyrir.
Þá þarf einnig að skoða
verkferlana við mat á hæfi
ráðherra, því eftir að Sam-
herjamálið kom upp var regl-
unum um verkferlana breytt,
og þá þarf að vita hvernig
reglurnar voru þar á undan.
Því þá má kannski sjá hvort
menn hafi verið að breyta
reglum og verkferlum, til
þess að gera hlutina þægilegri
fyrir ráðherra.
Það eru óskir um að fá
Kristján Þór fyrir nefndina,
til að varpa ljósi á þetta. Því
hafnaði meirihlutinn. Hann
hafnaði líka að fá Helga Seljan
fyrir nefndina, sem gæti vafa-
laust upplýst um eitt og annað
varðandi þetta mál,“ segir Jón
Þór, en fréttamaðurinn Helgi
Seljan er meðal þeirra sem
upplýstu um Samherjamálið í
Kveiksþætti RÚV.
Engin sekt sönnuð
Aðspurður hvort Jón Þór telji
að Kristján Þór hafi óhreint
mjöl í pokahorninu gagnvart
Samherja, segir hann ekkert
benda til þess:
„Það er ekkert sem ég hef
séð hingað til sem bendir til
þess. En nefndin getur ekki
sagt til um það nema að sjá
öll gögn málsins og rannsaka
það til hlítar. Það sem þetta
mál snýst auðvitað um er
að það er ákveðinn freistni-
vandi til staðar hjá sjávarút-
vegsráðherra, sem á að hafa
almannahagsmuni að leiðar-
ljósi.
Hættan sem er til staðar er
sú að verið sé að draga vagn
sérhagsmuna. Þess vegna
er það hlutverk og skylda
nefndarinnar, ekki síst í
svona stóru og umfangsmiklu
máli sem varðar eitt stærsta
sjávarútvegsfyrirtæki lands-
ins og yfirstjórn þess í meintu
mútumáli sem teygir sig til
margra landa, að upplýsa um
málið eins og henni frekast
er unnt, samkvæmt þeim
reglum sem nefndin starfar
eftir. Það hefur enn ekki verið
gert. Meirihlutinn vildi þvert
á móti loka fyrir frumkvæðis-
rannsókn sem var sérstak-
lega hafin af minnihlutanum,
og tók yfir verkstjórnina í
óþökk minnihlutans. Nú vill
meirihlutinn loka málinu án
þess að það sé upplýst.“
Stenst ekki lög
Jón Þór segir lagabókstafinn
afar skýran í málinu:
„Meirihlutinn vill loka
málinu með bókun, áður en
minnihlutinn fær svör við
þeim spurningum sem hann
vill bera upp. Ég get ekki séð
hvernig sú málsmeðferð sam-
ræmist tilgangi og lagabók-
staf nefndarinnar.“
Þá rifjar Jón Þór upp
reynslu sína af Landsréttar-
málinu fyrir um einu og hálfu
ári, en þá var hann óbreyttur
nefndarmaður í stjórnskip-
unar- og eftirlitsnefnd:
„Menn voru að þvæla þessu
fram og til baka og nota alls
kyns trix til að stöðva það mál
og afgreiða það út af borð-
inu. Ég hef því persónulega
reynslu af svona vinnubrögð-
um, en ég mun auðvitað fylgja
þessu eftir, innan þess ramma
sem lög og reglur segja til um,
það er skylda mín sem for-
manns.“ n
MÁLI KRISTJÁNS
ÞÓRS ER EKKI LOKIÐ
Jón Þór Ólafsson er nýr formaður stjórnskipunar-
og eftirlitsnefndar Alþingis. Hann segir spurningum
enn ósvarað en meirihlutinn hafnaði því að fá sjáv-
arútvegsráðherra og Helga Seljan fyrir nefndina.
Jón Þór segir að það skipti verulegu máli að stjórnarandstaðan fái formannsembætti í nefndum Alþingis. MYND/VILHELM
Trausti Salvar
Kristjánsson
traustisalvar@eyjan.is
Kristján þarf að
svara því hvernig
hann hefur verið
að meta hæfi sitt.