Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2020, Qupperneq 25
FÓKUS 25DV 26. JÚNÍ 2020
ROK
„Það toppar ekkert kampavíns-„happy hour“ á Roki.
Veröndin er algjör pottur og hægt að dást að Hall-
grímskirkju um leið og maður skolar niður hágæða
kampavíni, á verði sem sést ekki annars staðar.” Á
Roki má gjarnan sjá þekktar og vel tengdar konur úr
atvinnulífinu gera sér glaðan dag, en staðurinn er í
meðal annars í eigu Hrefnu Bjarkar Sverrisdóttur fram-
leiðanda og sambýliskonu Magnúsar Scheving.
Staðsetning
Frakkastígur 26a
Tilboð
Milli kl. 16 og 19, Moet kampavínsflaska með lakkrís
og melónum á 7.900 kr. eða glas á 1.990.
JUNGLE COCTAIL BAR
„Staðurinn er mjög vel staðsettur og umkringdur góðum
veitingahúsum og því tilvalið að kíkja í drykk fyrir mat á
Jungle. Á Jungle eru verðlaunabarþjónar og yfirleitt gott
pláss.” Þar er hægt að kaupa kokteila í flöskuvís, en þá
hristir barþjónninn kokteil og hellir í flösku sem borðið
getur svo deilt saman. Eða ekki!
RÖNTGEN.
„Gott úrval af skemmtilegum náttúruvínum á fallegum
stað. Þeir vanda sig við að hafa blóm í vösum og kerti á
borðum. Snemmkvöldssólin laumast inn um gluggana.”
Röntgen hefur getið sér gott orð meðal listamanna, sem
áður dvöldu löngum stundum á Snaps og Kaffibarnum.
Stemningin er afslöppuð og alls kyns skemmtilegir við-
burðir í boði sem hægt er að fylgjast með á Facebook-
síðu staðarins.
Staðsetning
Austurstræti 9
Tilboð
Milli kl. 17 og 20 eru kokteilar af
seðli á 1.500 kr., bjór á krana 800
kr, vín í glösum 1.000 kr. og kampa-
vínsglas á 1.800 kr.
Staðsetning
Hverfisgata 12
Tilboð
Alla daga til kl. 20.
Víking gylltur og Víking Rökkr: 800
Einstök White Ale og Pale ale: 900
Hanastél vikunnar: 1.800
Glas af víni húsins (hvítt, rautt,
rósa- eða freyðivín): 900
Allar vínflöskur: 15% afsláttur
Flaska af víni húsins og snakkplatti:
4.500 kr.
Staðsetning
Laugavegur 21
Tilboð
Milli 16 og 20 alla daga, Gull á 600
kr., Bríó og Classic á 700 kr. og
léttvín hússins 750 kr. glasið.
Staðsetning
Grandagarður 23
Tilboð
Afsláttur af öllum drykkjum, eða
borgað fullt verð fyrir drykkinn
og smáréttur að hætti kokksins
fylgir með.
VÍNBARINN PORT 9
„Auðvitað svalirnar á Port 9. Góð vín í miklu úrvali og
besti vertinn tekur fallega á móti manni.” Hér er átt við
veitingamanninn Gunnar Pál Rúnarsson, betur þekktan
sem gourmet-grallarann Gunna Palla, en hann hefur
einnig getið sér gott orð fyrir ljúffengar veitingar, sem
hann kokkar upp á mettíma í minnsta eldhúsi landsins.
Svalirnar sem álitsgjafinn talar um eru leynisvalir og
þarf að biðja starfsmann vínbarsins um leiðbeiningar
til að finna þær.
KAFFIBRENNSLAN
„Kaffibrennslan er með leyni-
lega góðan og ódýran „happy“.
Sérstaklega fínt ef það er sól.”
Kaffibrennslan skartar líka tryllt
góðri, grillaðri samloku með osti
og sinnepi sem passar ákaflega
vel með bjór, vilji fólk tríta sig að-
eins og útbúa mjúka lendingu fyrir
veigarnar.
THE COOCOO’S NEST
OG LÚNA FLÓRENS
„Coocoo’s og smáréttur klikkar
aldrei og mjög kósý andrúms-
loft. Hægt að sitja úti eða inni,
eða á Blómabarnum Lúnu, sem er
systurstaður The Coocoo’s Nest.”
Staðurinn er einkar vinsæll meðal
listamanna og sjást Rassi Prump
og helstu rapparar landsins
gjarnan á staðnum. Listasýningar
eru opnaðar á staðnum á tveggja
vikna fresti og hægt er að kaupa
sér blóm með kokteilnum, svo
ekki sé minnst á matinn góða eða
græna ofurdjúsinn sem hægt er
að fá með skoti af áfengi, sé fólk
í stuði. Staðurinn býður einnig
upp á ítalskan „happy-hour“ eða
„aperitivo“, sem þýðir að borgað
er fullt verð fyrir drykkinn, en
girnilegur smáréttur fylgir með.
Staðsetning
Veghúsastígur 9
Tilboð
Milli kl. 16 og 19 alla daga. Húsvín 1.100 kr. glasið, bjór
800 kr., freyðivín 1.250 kr. og kampavínsglas á 1.950 kr.
Álitsgjafar
Magnús Sigurbjörnsson, stafrænn ráðgjafi
Sigríður Thorlacious, söngkona
Steingerður Sonja Þórisdóttir, blaðakona
Linda Björk Ingimarsdóttir, matarbloggari
Kristín Ýr Gunnarsdóttir, almannatengill
Sverri Bollason, verkfræðingur og matgæðingur
Hrönn Sveinsdóttir, bíóstjóri
Íris Björk Tanya Jónsdóttir, hönnuður
Kristín Soffía Jónsdóttir, listakokkur og
borgarfulltrúi