Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2020, Page 38
38 SPORT 433 26. JÚNÍ 2020 DV
SANDRA LEIKJAHÆST Í SÖGU
EFSTU DEILDAR KVENNA
K empurnar í Pepsi Max-deild kvenna gefa ekk-ert eftir og halda áfram
að gera það gott. Metnaður og
úthald getur spilað stóran þátt
í árangri, en reynslan skiptir
sköpum þegar fram í sækir.
Tíu leikjahæstu fótboltakon-
urnar í Pepsi Max-deildinni í
ár eru reynsluboltar sem vert
er að taka eftir, en þær munu
halda áfram að setja sitt mark
á íslenskan fótbolta. n
Sóley
Guðmundsdóttir
soley@dv.is
Reynsluboltarnir í ár halda áfram að
bæta leikjum í safnið og gefa ekkert eftir
inni á vellinum með ástríðu, metnað og
vinnusemina að vopni.
SANDRA VALUR
SIGURÐARDÓTTIR
283 Önnur lið
leikir í Stjarnan
efstu deild Þór/KA/KS
Sandra er uppalin fyrir norðan og skipti yfir í Stjörn-
una árið 2005. Hún varð þrisvar Íslandsmeistari og
þrisvar bikarmeistari, áður en hún skipti yfir í Val.
Með Val varð Sandra Íslandsmeistari í fyrra. Sandra
er leikjahæsti leikmaður í sögu efstu deildar kvenna.
DÓRA MARÍA VALUR
LÁRUSDÓTTIR
240 leikir í efstu deild
Dóra María er uppalin í Val og er það eina íslenska liðið sem hún hefur
spilað fyrir. Dóra María var í gullaldarliði Vals. Þær urðu Íslandsmeistarar
sex sinnum á sjö árum, á árunum 2004-2010. Dóra María fagnaði Íslands-
meistaratitli í fyrra með Val. Dóra varð bikarmeistari á sínu fyrsta ári með
Val og hefur hún fagnað þeim titli samtals sex sinnum.
ÁSGERÐUR STEFANÍA VALUR
BALDURSDÓTTIR
239 leikir í efstu deild Önnur lið
Stjarnan
Breiðablik
Ásgerður er uppalin í Kópavogi en skipti ung yfir í Stjörnuna. Fyrsti titillinn
kom þó með Breiðabliki, þegar þær urðu meistarar í 1. deild. Þessi titill
var sá fyrsti af mörgum. Með Stjörnunni varð Ásgerður fjórum sinnum Ís-
landsmeistari og þrisvar bikarmeistari. Eftir mörg góð ár í Stjörnunni ákvað
Ásgerður að leita á önnur mið og skipti yfir í Val. Hún varð Íslandsmeistari
með Val á síðustu leiktíð, sem var hennar fyrsta með félaginu.
VESNA ELÍSA FYLKIR
SMILJKOVIC
217 Önnur lið
leikir í Valur
efstu deild ÍBV
Þór/KA
Keflavík
Vesna er fædd í Serbíu og kom fyrst til Íslands árið
2005 og samdi við Keflavík. Hún spilaði með Keflavík
í fjögur ár. Árið 2009 fór hún norður á Akureyri þar
sem hún spilaði með Þór/KA í tvö ár. Vesna samdi
við Eyjakonur árið 2011 og spilaði með liðinu í fjögur
ár. Árið 2015 skipti Vesna yfir í Val, þar sem hún
fagnaði sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli í fyrra.
Fyrir tímabilið í ár skipti Vesna yfir í Fylki, þar sem
hún dregur meðalaldur liðsins töluvert upp. Vesna
er elsti leikmaður deildarinnar, fædd árið 1983.
Vesna fékk íslenskan ríkisborgararétt árið 2014.
SONNÝ LÁRA BREIÐABLIK
ÞRÁINSDÓTTIR
185 Önnur lið
leikir í Haukar
efstu deild Afturelding/Fjölnir
Fjölnir
Sonný Lára hóf ferilinn með Fjölni árið 2002 en
spilaði sinn fyrsta leik í efstu deild árið 2004. Hún
spilaði með Fjölni og sameinuðu liði Aftureldingar/
Fjölnis til ársins 2009. Hún spilaði eitt tímabil með
Haukum árið 2010, en fór aftur í Fjölni ári síðar.
Sonný spilaði með Fjölni í 1. deild í þrjú ár áður en
hún fór í Breiðablik árið 2014, þar sem hún spilar í
dag. Sonný hefur fagnað tveimur Íslandsmeistara-
titlum og tveimur bikarmeistaratitlum með Breiða-
bliki.
MÁLFRÍÐUR ERNA VALUR
SIGURÐARDÓTTIR
238 leikir í efstu deild Önnur lið
Breiðablik
Málfríður er uppalin í Val og hefur spilað á Hlíðarenda alla tíð, fyrir utan
tvö tímabil, árin 2015 og 2016, sem hún spilaði með Breiðabliki. Fyrra árið
með Blikum varð Málfríður Íslandsmeistari og það síðara varð hún bikar-
meistari með Kópavogsliðinu. Með Val hefur Málfríður sjö sinnum fagnað
Íslandsmeistaratitli og sex sinnum bikarmeistaratitli.
HALLBERA GUÐNÝ VALUR
GÍSLADÓTTIR
194 Önnur lið
leikir í Breiðablik
efstu deild ÍA
Hallbera er uppalin á Akranesi þar sem hún hóf ferilinn
með ÍA. Hún spilaði sinn fyrsta leik með meistaraflokki
árið 2002. Fyrsti leikur Hallberu í efstu deild var árið
2005 með ÍA. Eftir tímabilið árið 2005 skipti Hallbera
yfir í Val. Með Val fagnaði hún fimm Íslandsmeistara-
titlum og fjórum bikarmeistaratitlum á árunum 2006-
2011, áður en hún hélt út í atvinnumennsku. Árið 2014
spilaði Hallbera aftur með Valskonum. Hún spilaði með
Breiðabliki árin 2015 og 2016, þar sem hún fagnaði
einum Íslandsmeistaratitli og einum bikarmeistara-
titli. Nú hefur Hallbera leikið með Val frá árinu 2018
og fagnaði hún Íslandsmeistaratitli með liðinu í fyrra.
ARNA SIF ÞÓR/KA
ÁSGRÍMSDÓTTIR
199 Önnur lið
leikir í Valur
efstu deild
Arna Sif er yngsti leikmaðurinn á listanum, fædd árið
1992. Arna hefur alla tíð leikið með Þór/KA, fyrir utan
tvö tímabil með Val árin 2016 og 2017. Arna fagnaði
Íslandsmeistaratitli með Þór/KA árið 2012, sem var
fyrsti titill í sögu félagsins.
FANNDÍS VALUR
FRIÐRIKSDÓTTIR
203 leikir í efstu deild Önnur lið
Breiðablik
Fanndís hóf feril sinn í Breiðabliki árið 2005. Hún varð tvöfaldur meistari
á sínu fyrsta tímabili í meistaraflokki, 15 ára gömul. Hún fagnaði aftur Ís-
landsmeistaratitli árið 2015 með Breiðabliki. Árið 2016 varð Fanndís bikar-
meistari með Kópavogsliðinu. Í dag spilar Fanndís með Val, þar sem hún
hefur verið frá árinu 2018. Hún fagnaði Íslandsmeistaratitli með Val í fyrra.
LAUFEY KR
BJÖRNSDÓTTIR
226 Önnur lið
leikir í HK/víkingur
efstu deild Valur
Fylkir
Breiðablik
Þór/KA/KS
Laufey er reynslumikill leikmaður sem hefur spilað
með sex mismunandi félagsliðum. Hún hóf ferilinn fyrir
norðan í sameinuðu liði Þórs/KA/KS. Eftir eitt tímabil
fyrir norðan samdi Laufey við Breiðablik. Hún varð Ís-
lands- og bikarmeistari með Breiðabliki árið 2005. Árið
2008 samdi Laufey við Fylki og spilaði hún með liðinu
í fjögur ár. Árið 2012 skipti Laufey yfir í Val, þar sem
hún upplifði mikla titlaþurrð í sögu Vals. Laufey spilaði
með HK/Víkingi sumarið 2018, en skipti yfir í KR eftir
sumarið og spilar nú með Vesturbæjarliðinu.
MYND/GETTY