Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2020, Síða 2
Er þetta unga fólkinu að kenna?
Svarthöfði hefur fylgst mikið með umræðunni í þjóðfélaginu síðustu
daga. Það er eitt mál sem
hefur verið á vörum lands-
manna hvað mest. Það er að
sjálfsögðu spurningin um það
hverjum eigi að kenna um
faraldurinn. Er þetta íþrótta-
fólki að kenna eða er þetta
tónlistarfólki og djömmurum
að kenna? Er þetta túristun-
um að kenna? Er þetta unga
fólkinu eða miðaldra fólkinu
að kenna?
Svarthöfði fór að rýna svo-
lítið í þetta mál. Eflaust hafa
margir áhyggjur af því að
Svarthöfði sé hlutdrægur en
hafa skal í huga að Svarthöfði
fyrirlítur nokkurn veginn allt
og alla. Hann þolir hvorki
íþróttafólk né tónlistarfólk.
Hann hefur óbeit á bæði ungu
og miðaldra fólki þar sem
hann er sjálfur kominn á eftir-
laun.
Ef smitið í samfélaginu er
skoðað þá sést að þetta er eng-
um sérstökum hópi að kenna.
Jú, það var vissulega smit á
ReyCup og jú, það hefur komið
upp smit hjá ungu fólki og svo
framvegis og svo framvegis.
Þetta er samt ekki bara ein-
hverjum einum hópi að kenna.
Þetta er öllum að kenna.
Já, ég er líka að tala við þig.
Þú veist það vel sjálf/sjálfur/
sjálft að það hafa allir sofnað
á verðinum. Það eru ekki
allir að halda tveggja metra
reglunni og það eru ekki allir
að þvo sér um hendur öllum
stundum. Fólk er ennþá að
hittast og djamma, auk þess
sem fólk er ennþá að mingla
við annað fólk úti um allar
trissur.
Myndi það drepa ykkur að
sleppa því bara að hitta nýtt
fólk á hverjum degi? Svart-
höfði veit það vel hvað það er
leiðinlegt að hitta sama fólkið
dag eftir dag en það verður
bara að vera þannig. Þessi
veira er ekkert minna hættu-
leg þó svo að það séu ekki
jafn margir smitaðir hér akk-
úrat núna. Það deyja þúsundir
manna á hverjum degi vegna
veirunnar. Þúsundir manna
sem hefðu ekki þurft að deyja
úr sjúkdómnum. Þúsundir
manna sem eiga fjölskyldur
og börn.
Þess vegna er það fyrir
öllu að fólk passi sóttvarnir
sínar og hætti að leita að söku-
dólgnum, hvað ætliði að gera
þegar þið finnið sökudólginn?
Hverju breytir það ef þetta er
einhverjum að kenna?
Staðreyndin er bara sú að
það er að koma upp fullt af
smiti úr öllum áttum og því
eiga bara allir að passa upp á
þessa helvítis tveggja metra
reglu. Er það til of mikils mælt
að fólk hætti að væla og geri
bara það sem það á að gera?
Þetta er nefnilega ekki flókið,
bara þvo sér um hendur og
passa þessa tvo metra. Fólk
gæti líka gert eins og Svart-
höfði og verið í galla frá toppi
til táar, með grímu yfir öllu
andlitinu, en það er samt
kannski einum of mikið. Þvoið
ykkur bara um hendur og hald-
iði tveggja metra fjarlægð.
Svarthöfði vonar að fólkið
í landinu geti gert það skyn-
sama og hætt þessu bulli um
hverjum þetta er að kenna. Því
það skiptir ekki máli akkúrat
núna.
Svarthöfði fyrirlítur kannski
allt og alla en honum er ákaf-
lega vel við tveggja metra regl-
una og spritt. n
SVART HÖFÐI
Aðalnúmer: 550 5060
Auglýsingar: 550 5070
Ritstjórn: 550 5070
FRÉTTA SKOT
550 5070
abending@dv.is
Að „passa“ saman
Þ
egar ég býð fólki í mat á ég það til að
hugsa um hvaða fólk „passi“ saman.
Hverjir myndu eiga vel saman skoð-
analega séð og geta átt góða kvöld-
stund saman. Það er samt í raun alveg
glötuð aðferðafræði og ekki til þess
fallin að skapa líflegar umræður. Auðvitað vill
enginn bjóða í öskurorgíu en fjölbreytileikinn
í öllum myndum skiptir svo miklu máli. Hvaða
tilgangi þjónar það að sitja með mismunandi út-
gáfum af sjálfum sér og lufs ast með gaffalinn í
heimagerðu tagliatelle og vera æðislega sammála
heilt kvöld?
Það er þessi hræðsla við það sem maður þekkir
ekki vel sem gerir okkur svo lítil. Það er engin leið
til þess að vaxa, læra, éta hatt sinn og verða meiri
manneskja ef það er stanslaust verið að jánka ofan
í pastadiskinn. Að raða í kringum sig já-fólki gerir
ekki neitt fyrir neinn né að sitja heilu
kvöldstundirnar yfir spegilmyndum
sínum. Slíkt sendir líka frekar mátt-
laus skilaboð til afkomendanna við
borðið.
Það er ekki laust við að það
læðist að manni léttur kvíði við
að sjá fram á samvistir við fólk
sem er manni sjálfum frábrugðið.
Alls konar fólk með alls konar
hugmyndir og tilfinningar líkt og
fyrirfinnst í skólastofum. En
þar lærir maður. Ekki aðeins
á bókina heldur að vinna
með alls konar fólki, læra
af alls konar fólki, bæði
hvernig maður vill vera,
og hvernig maður vill
ekki vera.
Í forsíðuviðtali
blaðsins ræðir Erla
Hlynsdóttir, frétta-
stjóri DV, við Hrafn-
hildi Gunnlaugsdóttur
kvikmyndagerðarkonu. Hún
eignaðist dóttur með eiginkonu
sinni og samkynhneigðum
vinum þeirra. Saman mynda
þau fimm manna fjölskyldu
sem hreinlega geislar af. Foreldrarnir vinna vel
saman og segja það ekki vera vandamál að vera
fjögur um uppeldið enda eru alls konar fjölskyldu-
samsetningar sífellt algengari, sem litar lífið svo
sannarlega bjartari litum.
Ástin er það mikilvægasta í heiminum og hana
ber að heiðra. Til hamingju með Hinsegin daga
og gerum alla daga Alls konar daga. Alls konar er
best með ástina í fararbroddi. n
UPPÁHALDS
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir
RITSTJÓRI: Þorbjörg Marinósdóttir, tobba@dv.is FRÉTTASTJÓRI: Erla Hlynsdóttir, erlahlyns@dv.is AUGLÝSINGAUMSJÓN: Ruth Bergsdóttir, ruth@dv.is
PRENTUN: Torg prentfélag DREIFING: Póstdreifing | DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. DV, Kalkofnsvegi 2, 101 Reykjavík Sími: 550 7000.
Kolbrún Ósk Skaftadóttir
deilir hér fimm af sínum
uppáhaldsbókum en hún
er annálaður bókaormur,
starfaði hjá Forlaginu í
lengri tíma og hélt úti bóka-
gagnrýni. Þessar bækur eru
sannarlega ávísun á góðar
stundir við kertaljós eða með
síðustu sumarsólargeisl-
unum.
1 Ljósa
Kristín Steinsdóttir
Uppáhaldsbókin mín alltaf,
eftir uppáhaldshöfundinn
minn.
2 Jólasystur
Sarah Morgan
Ég ELSKA jólin og ég
ELSKA fallegar bækur, þar
af leiðandi er þessi í miklu
uppáhaldi.
3 Týnd í paradís
Mikael Torfason
Ógleymanleg bók skrifuð
af einlægni sem snerti mig
mjög djúpt, um líf höfundar í
Vottum Jehóva.
4 Kapítóla
E.D.E.N Southworth
Algjörlega „hendur niður“
uppáhaldsbókin mín í flokki
klassískra bókmennta.
5 Hús tveggja fjölskyldna
Lynda Cohen Loigman
Stórkostleg bók sem heldur
manni frá fyrstu síðu. Lagði
hana ekki frá mér og hef
mælt með henni síðan.
BÆKURNAR
2 7. ÁGÚST 2020 DV