Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2020, Blaðsíða 8
Í grófum dráttum má segja að einstaklingur, sem hefur mögulega smitast af
COVID-19 en er ekki með ein-
kenni, fer í sóttkví. Einangrun
á við sjúklinga með einkenni
veirunnar eða staðfest smit.
Þess ber þó að geta að fólk á
það til að bera sína túlkun á
sóttkvíarreglum á milli og
þannig getur upprunaleg út-
færsla skolast mikið til með
alvarlegum afleiðingum. Regl-
ur um sóttkví (heimkomusmit-
gát) við komu til landsins eftir
dvöl erlendis eru til dæmis
aðrar en ef um varnarsóttkví
er að ræða. Varnarsóttkví
á við ef ef að einstaklingur
hefur umgengist manneskju
með staðfest smit.
MUNURINN Á SÓTTKVÍ, HEIMKOMU-
SMITGÁT OG EINANGRUN ER ÓLJÓS
Nú þegar 795 eru í sóttkví er ekki úr vegi að skerpa á því hvað það þýðir í raun að
vera í sóttkví því ljóst er af samtölum við kaffivélina (með tvo metra á milli) að skiln-
ingur manna á sóttkví er mjög misjafn. Hér er stiklað á stóru – sjá nánar á covid.is.
EINANGRUN
EF ÞÚ ERT MEÐ STAÐFEST SMIT
ÞÁ FERÐU Í EINANGRUN
Einangrun er fyrir þá sem eru
með staðfesta COVID-19 sýkingu
en þurfa ekki á sjúkrahúsdvöl að
halda. Þá ertu í einangrun í heima-
húsi eða á stað sem almannavarnir
og heilsugæsla á hverjum stað til-
greina. Á meðan þú ert í einangrun
mun heilbrigðisstarfsfólk vera í
reglulegu sambandi við þig. Fleiri
en einn sem greinst hafa með smit
mega dvelja saman í einangrun.
Einangrun er strangara úrræði
en sóttkví og leggur því auknar
kröfur á þann sem er í einangrun
umfram þær sem gilda um sóttkví.
Annað heimilisfólk getur verið í
sóttkví á sama stað ef það vill ekki
fara af heimilinu. En þá þarf að
takmarka snertingu við þann sem
er í einangrun eins og raunhæft er,
helst að halda sig í tveggja metra
fjarlægð frá hinum smitaða. Ef fleiri
veikjast á heimilinu lengir það tím-
ann sem annað heimilisfólk þarf að
vera í sóttkví.
HVERNIG ER EINANGRUN AFLÉTT
EFTIR COVID-19 SÝKINGU?
Læknar COVID-19-teymis Land-
spítala sjá um útskriftarsímtöl fyrir
fólk sem útskrifast úr einangrun.
Viðkomandi þurfa bæði að uppfylla
eftirfarandi skilyrði og staðfesta
það í samtali við lækni:
• Að komnir séu a.m.k. 14 dagar frá
greiningu/jákvæðu sýni (grein-
ingarsýni).
• Að hafa verið einkennalaus í 7
daga.
Allar frekari upplýsingar er að
finna á covid.is. Leiki grunur á
smiti skal hafa samband í síma
1700.
Þorbjörg
Marinósdóttir
tobba@dv.is
HEIMKOMUSMITGÁT
Frá og með hádegi 31. júlí ber öllum
sem til landsins koma frá áhættu-
svæðum og dvelja hér 10 daga eða
lengur að fara í tvöfalda sýnatöku
vegna COVID-19 með ráðstöfunum
í samræmi við það sem nefnt hefur
verið heimkomu smitgát þar til nei-
kvæð niðurstaða fæst úr seinni
sýnatöku. Fyrri sýnatakan fer
fram við landamæri og sú seinni
á heilsugæslustöð 4-6 dögum
síðar. Ber fólki að viðhafa heim-
komu smitgát þar til niðurstöður úr
seinni sýnatöku eru kunnar. Seinni
sýnatakan er gjaldfrjáls og er hægt
að fara í sýnatöku víðs vegar um
landið.
Á MEÐAN Á HEIMKOMUSMITGÁT
STENDUR SKALTU:
1. ekki fara á mannamót eða í
veislur þar sem fleiri en tíu
manns eru saman komnir.
2. ekki vera í samneyti við fólk sem
er í aukinni áhættu fyrir alvarleg
veikindi og viðkvæma hópa.
3. gæta að tveggja metra reglunni
í samskiptum við aðra.
4. ekki heilsa með handabandi og
forðast faðmlög.
5. huga vel að einstaklingsbundn-
um sóttvörnum.
ÞÚ MÁTT:
• nota almenningssamgöngur til að
komast á áfangastað.
• fara í bíltúra.
• fara í búðarferðir.
• hitta vini og kunningja með ofan-
greindum takmörkunum.
Ef niðurstaða úr síðara prófi er nei-
kvæð er heimkomusmitgát hætt en
jákvæð niðurstaða leiðir alltaf til
einangrunar.
Veist þú hvers er ætlast af þér í sóttkví? MYND/GETTY
8 FRÉTTIR 7. ÁGÚST 2020 DV