Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2020, Side 20
ÍSLENSKAR KONUR
MOKA INN SEÐLUM
Á ONLYFANS.COM
Nokkrar íslenskar konur eru að gera það gott á
Only Fans, síðu sem er þekkt fyrir að selja nekt að
sögn einnar þeirra. Hún segir að hægt sé að græða
ævintýralegar upphæðir á síðunni og þetta sé um
leið skemmtilegasta vinna sem hún hefur unnið.
O nlyFans er miðill sem gerir notendum kleift að selja efni sitt til
áskrifenda gegn mánaðarlegu
gjaldi. Klámstjörnur eru vin-
sælar á miðlinum en einnig
áhrifavaldar sem selja djarf-
ar myndir af sér. Aðdáendur
geta einnig sent notendum
skilaboð og lagt fram beiðni
um myndefni gegn gjaldi.
Það er hægt að græða á tá
og fingri á miðlinum eins og
erlendar OnlyFans-stjörnur
hafa greint frá í viðtölum.
Til að mynda sagðist tvítuga
fyrir sætan Apollonia Llewel-
lyn græða um 1,6 milljónir
króna á mánuði fyrir að selja
djarfar myndir af sér, og svo
má ekki gleyma fyrrverandi
Subway-starfsmanninum
Teagan Kaye sem græðir nú
180 þúsund krónur á dag á
OnlyFans.
Stærstu OnlyFans-stjörn-
urnar græða tugi milljóna á
mánuði fyrir að selja myndir
og myndbönd til aðdáenda
sinna. DV ræddi við íslenska
konu sem kýs að koma fram
nafnlaus. Hún hefur verið á
OnlyFans um nokkurra ára
skeið og er síðan mjög öflug
tekjulind fyrir hana.
Konan byrjaði á OnlyFans
fyrir tveimur til þremur
árum. Hún segir að hægt sé
að selja fjölbreytt efni á síð-
unni en vinsælast er að selja
nekt. „Það er rosaleg fáfræði
um hvað OnlyFans snýst um
og hvað fólk er að gera á
síðunni. Ég get án efa sagt
að þetta sé skemmtilegasta
vinna sem ég hef nokkurn
tíma haft,“ segir hún.
Óraunverulegir peningar
„Ég byrjaði ekki að þéna
meira en 800 þúsund krónur
á mánuði fyrr en ég setti
allan fókus á að gera vel,“
segir hún og bætir við að hún
vilji ekki gefa upp hvað hún
þénar á mánuði, en þetta eru
peningar sem marga dreymir
um og upphæðin hleypur á
milljónum.
Aðspurð hvaða ráð hún gefi
þeim sem vilja byrja að selja
efni á síðunni segir konan „að
fá sér smáforritið Telegram
og finna OnlyFans-hópa til að
læra hvernig allt virkar og
finna fólk til að vinna með.“
Helsti gallinn við OnlyFans
að hennar sögn eru enda-
lausar villumeldingar sem
koma upp á síðunni. „Það
gerir notendum lífið leitt. Ís-
lenskum kortum er líka mjög
oft hafnað og það gerir þetta
að leiðinlegu og erfiðu ferli.
Ég hata síðuna jafn mikið og
ég elska hana. Helsti kostur-
inn er að það er ekkert smá
auðvelt að búa til peninga
sem eru svo miklir að það er
óraunverulegt.“
Konan segir að það trufli
hana ekkert að áhrifavaldar
og stjörnur séu að bætast í
hóp þeirra sem selja efni sitt
á síðunni. „Mín eina sam-
keppni er ég sjálf þannig að
ég tel þetta mjög jákvætt að
fleiri bætast við,“ segir hún.
Nekt vinsælust
Konan segir að það sé án efa
óskað langmest eftir nekt á
þessari síðu „OnlyFans er
þekktust fyrir að vera síða
sem selur nekt. En það er að
breytast með fjölgun frægra
einstaklinga á síðunni.“
Hún segist sjálf búa til alls
konar efni. „Aðallega myndir,
en mér finnst alveg rosa-
lega gaman að taka og vinna
myndir,“ segir hún.
Á OnlyFans geta aðdáendur
lagt fram beiðnir gegn gjaldi.
Konan segist reglulega fá
beiðnir en hún verður ekki
við þeim öllum.
„Ég fæ mjög mikið af
skrýtnum beiðnum sem fara
yfir mörkin á því sem má
á OnlyFans. Ég svara bara
kurteislega að þetta megi
ekki á síðunni. En mér finnst
oft mjög gaman að fá beiðnir
og get hlegið mikið yfir stell-
ingunum sem ég er beðin um
að gera,“ segir hún.
Furðulegasta beiðnin sem
hún hefur fengið var þegar
hún var „beðin um að kúka á
myndbandi og pissa í glas og
drekka það. Ég myndi aldrei
gera það,“ segir hún og hlær.
„Ég svara samt öllum skila-
boðum og spjalla við aðdá-
endur sem eru að eyða pen-
ing,“ segir hún.
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
OnlyFans líkist
Instagram að
miklu leyti,
fyrir utan að
þú þarft að
borga til að
fá að fylgja
manneskju
og efnið er
djarfara.
MYND/GETTY
FORSÍÐA
Svona lítur forsíða OnlyFans út.
TOPPKONURNAR
Nokkrar þeirra kvenna sem njóta sérstakra vinsælda á OnlyFans.
20 FÓKUS 7. ÁGÚST 2020 DV