Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2020, Page 29
Una í eldhúsinu
Aldrei er hægt að fá nóg af kjúklingi og ilmandi
eplabaka slær allaf í gegn. Una Guðmundsdóttir,
matgæðingur DV, deilir gómsætum uppskriftum.
MYNDIR/AÐSENDAR
Kjúklingur með rjómaosti, döðlum og sólþurrkuðum tómötum
Þennan kjúklingarétt smakkaði ég
í veiði um verslunarmannahelgina,
þetta er að mínu mati einn besti
réttur sem ég hef smakkað og má
ég til með að deila honum með
ykkur.
800 g úrbeinuð kjúklingalæri
Salt og pipar til kryddunar
150 g sólþurrkaðir tómatar
5-6 msk. rjómaostur
4-5 döðlur
80 g parma-skinka
1 rauð paprika
½ blaðlaukur
1 hvítlauksrif
½ peli rjómi
30 g smjör
1 kjúklingateningur
Ferskt timían
Leggið kjúklingabitana í eldfast mót
og saltið og piprið. Takið 1 msk. af
rjómaosti og leggið á hvern bita.
Skerið sólþurrkaða tómata og
döðlur smátt og setjið smá af hvoru
á hvern bita, rúllið bitunum inn í
parma-skinkustrimla, einn strimill
á hvern bita, gott að nota grillpinna
til að halda þeim lokuðum.
Skerið niður papriku, blaðlauk og
hvítlauk fínt og setjið í pott, ásamt
smjörinu og rjómanum, hrærið vel
saman og látið hitna áður en kjúkl-
ingateningnum er bætt saman við.
Hellið blöndunni yfir kjúklingabit-
ana og setjið inn í ofn á 180 gráður
og eldið í um 40 mínútur.
Klippið ferskt timían yfir réttinn rétt
áður en hann er borinn fram.
Berið fram með hrísgrjónum, hvít-
lauksbrauði eða góðu salati. Verði
ykkur að góðu.
Dýrindis eplakaka
3 epli (meðalstór)
50 g sykur
3 egg
100 g smjör
200 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. vanilludropar
5 msk. kanilsykur
30 g súkkulaðispænir
20 g kókosmjöl
Byrjið á því að hita ofninn í 180
gráður.
Smyrjið eldfast form vel að innan
með smjöri.
Afhýðið eplin og skerið í þunnar
sneiðar og leggið 2 epli í botninn
á forminu og stráið um 2-3 msk. af
kanilsykri yfir eplaskífurnar og 15 g
af súkkulaðispónunum.
Bræðið um 90 g af smjöri í potti og
leyfið að kólna.
Þeytið saman egg og sykur þar til
blandan verður létt og ljós.
Blandið saman hveitinu, lyftiduft-
inu og vanilludropunum, ásamt
smjörinu þegar það hefur aðeins
fengið að kólna. Blandið þessu öllu
vel saman með sleif.
Leggið deigið í formið yfir epla-
skífurnar, setjið svo restina af
eplaskífunum yfir deigið ásamt
restinni af súkkulaðispónunum
og kókosmjöli. Að lokum er 10 g
af smjöri klipin í litla búta yfir allt
deigið og kakan sett í ofninn.
Bakið kökuna við 180 gráður í um
30 mínútur.
MATUR 29DV 7. ÁGÚST 2020