Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2020, Qupperneq 32
Matseðill
Vigdísar
Morgunmatur
Ég er mjög lystarlaus á morgn-
ana, ef það er fundur þá fæ ég
mér þær veitingar sem passa inn
í prógrammið, sem sagt eggja-
hræru og grænmeti. Ef ekki er
fundur þá fæ ég mér eitt harð-
soðið egg.
Hádegismatur
Ef ég er á fundum þá fæ ég mér
aðalrétt og grænmeti. Ef ég er
heima þá fæ ég mér gjarnan tún-
fisk, egg og svartar ólívur.
Kvöldmatur
Annaðhvort kjöt eða fiskur og
fullt af grænmeti, soðið, svissað
eða ósoðið.
Tandoori kjúklingabringur
Fyrir 4
4 kjúklingabringur
200 g smjör
Tandoori-krydd
Salt og pipar
Kjúklingabringurnar skornar langs-
um svo úr verði átta bitar.
200 g smjör sem brætt er í potti
ásamt miklu af tandoori-kryddi –
a.m.k. ¼ úr glasinu. Salt og pipar
eftir smekk sett í pottinn.
Kjúklingabringunum er raðað í eld-
fast mót og smjörkryddleginum
hellt yfir. Passið að pensla yfir
bringurnar ef þær standa upp úr.
Setjið álpappír yfir og hafið á 200
gráðu hita í 30-45 mínútur.
Meðlæti
Salat eftir því hvað er í boði hverju
sinni, ásamt fetaosti og svörtum
ólífum. Franskar kartöflur (sem ég
borða ekki) og stundum býð ég líka
upp á naan-brauð.
Kjúklingurinn er einstaklega mjúk-
ur og gómsætur þegar hann er eld-
aður upp úr smjöri og er það síðan
notað sem „sósa“ út á kjúklinginn
og frönsku kartöflunar.
Það þarf
hörku sjálfs
aga í að byrja
í svona átaki
– en mér tókst
það.
32 MATUR 7. ÁGÚST 2020 DV
Vigdís Hauks breytti um
lífsstíl og kílóin fuku burt
Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, fylgir lágkolvetnamataræði. Hún
ákvað að breyta um lífsstíl því hún var orðin allt of feit að eigin sögn, eftir kyrrsetuár í
borgarstjórn. Hún deilir hér hvað hún borðar á venjulegum degi og girnilegri uppskrift.
Ég er í sumarfríi þannig að dagarnir hjá mér núna eru mjög frjálsir. Starf
borgarfulltrúans einkennist af
miklum fundarsetum og geta
fundirnir stundum verið lang-
ir og strangir. En ég kvarta
ekki því þetta er skemmti-
legt starf og árangursríkt, ef
maður sinnir því vel. Oftast
byrja fundirnir klukkan níu og
ég reyni að komast á æfingu
fyrir þá, því ég er ekki síð-
degistýpan í ræktinni. Mikil
undirbúningsvinna fylgir
hverjum fundi, því það eru
gríðarlega mörg mál á dagskrá
og mikið lesefni með hverjum
dagskrárlið sem maður þarf að
setja sig inn í, og oft að skrifa
bókanir líka. Ég er því oft að
vinna langt fram á kvöld dag-
inn fyrir fundi, þá sérstaklega
í borgarráði og skipulags- og
samgönguráði,“ segir Vigdís.
„Þann 1. mars á síðasta ári
ákvað ég að breyta um lífsstíl,
því ég var orðin allt of feit eft-
ir kyrrsetuár í borgarstjórn.
Ég hóf að æfa af krafti, hreyfa
mig mikið úti við og fór á lág-
kolvetnafæði. Það reyndist
mér mjög happadrjúgt og ég
er allt önnur manneskja í dag.
Kílóin bókstaflega fuku. Núna
reyni ég að fara á æfingu að
minnsta kosti þrisvar í viku.
Þegar ég var að byrja átakið
fór ég fimm sinnum í viku til
að koma öllu í gang. Það þarf
hörku sjálfsaga í að byrja í
svona átaki – en mér tókst
það.“
Lágkolvetnamataræði
Vigdís er nær eingöngu á lág-
kolvetnafæði og forðast sykur
og annan kolvetnaríkan mat.
„Það er svo lítið mál þegar
maður venur sig á það. Ein-
falda lýsingin á þessu fæði er
óunnar afurðir, kjöt og fiskur
og svo ríkulegt grænmeti.
Passa verður upp á að borða
mikið af fitu, sem sagt feitt
kjöt, mikið af smjöri og svo
framvegis. Ég á alltaf harð-
fisk í ísskápnum til að narta
í ef matarlöngun kemur yfir
mig á kvöldin. Feitir ostar eru
líka mitt uppáhald. Í stað þess
að hafa kartöflur með máltíð
sýð ég annaðhvort blómkál
eða brokkolí. Einföld regla
í þessu fæði er að ekki á að
borða grænmeti sem vex og
þroskast neðanjarðar, sem
sagt gulrætur, rófur, kartöflur
og annað slíkt. Bara á að borða
grænmeti sem ræktað er ofan-
jarðar,“ segir hún.
Vigdís eyðir miklum tíma
í eldhúsinu og segir að uppá-
haldsheimilisstarf hennar sé
eldamennska. „En ég er enginn
bakari. Ég fer aldrei eftir upp-
skriftum, heldur set ég mitt
mark á matinn. Ég held ég sé
góður kokkur því fólk elskar
að koma til mín í mat.“ n
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
Blómadísin Vigdís Hauksdóttir breytti um lífsstíl og kílóin fuku. MYNDIR/EYÞÓR