Morgunblaðið - 02.01.2020, Side 6
6
FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2020
V E R S L U N S N O R R A B R A U T 5 6 · 1 0 5 R E Y K J A V Í K · F E L D U R . I S
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Nýjum Grundfirðingum, fæddum á
árinu 2019, var fagnað með
skemmtilegum og hefðbundnum
hætti á gamlársdag. Áralöng hefð er
fyrir því að boðið sé til samkomu í
lok ársins þar sem börnin eru boðin
velkomin í heiminn með gjöfum frá
sveitungum sínum. Það er Grundar-
fjarðarbær sem að þessu stendur í
samstarfi við Leikskólann Sólvelli,
Heilbrigðisstofnun Vesturlands í
Grundarfirði og Slysavarnadeildina
Snæbjörg.
Sjö drengir og níu stúlkur
Alls eru börn ársins 2019 í
Grundarfirði 16 talsins: sjö drengir
og níu stúlkur. Börnin 2018 voru tíu
talsins og þegar aðflutningur fólks í
byggðarlagið er tekinn með eru þau
nú alls orðin fjórtán.
„Grundfirðingum er að fjölga,“
segir Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri
í samtali við Morgunblaðið. „Í okkar
litlu samfélögum skiptir hver ein-
staklingur miklu máli. Þetta er sú
leið sem samfélag okkar fer til að
bjóða nýjustu íbúana sérstaklega
velkomna. Það þarf nefnilega heilt
þorp til að ala upp barn, eins og oft
er sagt. Þannig er þetta líka hugsað
til að minna okkur öll á gildi þess að
hlúa hvert að öðru, ekki síst börn-
unum, til að rækta gott samfélag.“
Hverju barni og foreldrum þess
eru færð að gjöf hagnýtur fatnaður,
tannbursti, bækur og bæklingur frá
leikskólanum, auk þess sem með
fylgja endurskinsmerki og leiðbein-
ingar til foreldra, til dæmis gátlisti
um öryggi barna á heimili. Gjöfin
hefur verið kölluð „sængurgjöf sam-
félagsins“ og er hluti af fjölskyldu-
stefnu Grundfirðinga, sem sett var
2006. Hugmyndin átti þá rætur sínar
að rekja til Finnlands, þar sem tíðk-
ast hafði að gefa börnum hagnýtar
gjafir í kassa sem mátti síðan breyta
í vöggu. Fleiri sveitarfélög á Íslandi
hafa tekið upp þennan sið, svo sem
Borgarbyggð.
Grundfirðingar eru nú skv. nýj-
ustu tölum á vef Hagstofu Íslands
um 880 talsins.
Vöxtur og viðgangur
„Staðan er góð og framtíðin er
björt. Við vitum ekki á þessum tíma-
punkti hve margra nýbura er að
vænta í bæinn á næstunni, en taka
ber fram að í Grundarfirði er fjöldi
ungs fólks á barneignaaldri sem ætti
að gefa vísbendingar. Já, við erum
vel sett með leikskóla, þar sem öll
börn komast að tólf mánaða og fara
fimm ára gömul í deild sem er sam-
rekin með grunnskólanum,“ segir
Björg Ágústsdóttir og getur þess að
flest í byggðarlaginu hafi á liðnu ári
einkennst af vexti og viðgangi. Nýir
bátar hafi komið í skipastól út-
gerðarinnar í bænum, hátæknivætt
frystihús verið tekið í notkun og
ferðaþjónustan blómstri. Aðkallandi
verkefni sé því að fleiri íbúðir verði
byggðar, því margir vilji flytja í
bæinn en hafi ekki fengið þak yfir
höfuðið.
Nýjum Grundfirðingum
fæddum 2019 fagnað
16 nýir bæjarbúar Heilt þorp þarf til að ala upp barn
Ljósmynd/Olga S. Einarsdóttir.
Barnalán Grundarfjarðarbörn ársins 2019 með foreldrum sínum. Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri er lengst til hægri.
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Töluvert var um að illa flokkuðu rusli
væri skilað til endurvinnslustöðva
SORPU yfir hátíðirnar, en plast sem
barst í pappírsgáma með jólapappír
var sérstaklega áberandi vandamál.
Mun þetta valda því að hluti þess
farms sem átti að vera endurunninn
verður þess í stað sendur til urðunar.
Guðmundur Tryggvi Ólafsson,
rekstrarstjóri endurvinnslustöðva
SORPU, staðfestir þetta í samtali við
Morgunblaðið.
Vill hann hvetja fólk til að flokka
umbúðir af jólagjöfum betur og gæta
að plastböndum og öðru sem geti
flækst með jólapappír.
„Það er mjög óheppilegt þegar
plastinu er blandað svona saman við.
Við viljum sjá sterkari merki um að
fólk flokki þetta betur. Ef það finnur
ekki út úr þessu á að setja þetta í
blandað rusl en ekki sem flokkað efni.
Óflokkaður og illa flokkaður úrgang-
ur skemmir fyrir flokkaða efninu,“
segir Guðmundur.
Meira vandamál nú en áður
Hann segir illa flokkaðan úrgang
valda aukinni vinnu og staðfestir að
hluti ruslsins verði felldur og sendur
til urðunar að þessu sinni.
Guðmundur segir vandamálið ekki
vera nýtt af nálinni en það hafi verið
áberandi núna. Kveðst hann ekki
geta sagt til um það hver ástæðan
fyrir því sé.
„Það gengur mikið á á jólunum.
Sumir gera þetta rosalega vel. Þetta
er liggur við samanbrotið og straujað
og alveg upp á tíu. En svo eru aðrir
sem eru ekki alveg með hugann við
það sem þeir eru að gera og þá fer
þetta ekki vel,“ segir hann.
Flugeldar blandaður úrgangur
Úrgangur í tengslum við flugelda
byrjaði að sögn Guðmundar að skila
sér í gær, en hann segir að Lands-
björg og aðrar flugeldasölur hafi
komið til móts við SORPU og sett
upp nokkra gáma við sölustaði sína í
gær til að taka á móti flugeldaúr-
gangi. Endurvinnslustöðvar og al-
mennir móttökustaðir SORPU eru
þó opnir almenningi í dag og vill Guð-
mundur hvetja fólk til að skila inn úr-
gangi frá áramótum sem fyrst.
„Við hvetjum fólk til að drífa í því á
meðan það er ekki snjór yfir öllu að
hreinsa þetta upp og koma þessu í
réttan farveg,“ segir Guðmundur og
bendir á að stærstur hluti flugelda-
úrgangs eigi að fara í blandaðan úr-
gang en spýtur flokkist með timbri og
kassar utan af flugeldunum flokkist
yfirleitt sem bylgjupappi.
„Það væri alveg frábært, áður en
þetta frýs fast og treðst niður,“ segir
Guðmundur að lokum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jólaflokkun Mikið var um að plastbönd og plastpokar fylgdu jólapappír í
pappírsgáma um jólin og þarf því að urða hluta þess sem átti að endurvinna.
Plast áberandi
með jólapappír
SORPA þarf að urða hluta farmsins
Svanhildur Erla J.
Levy, fyrrverandi
kaupmaður og hús-
móðir, lést á Hjúkr-
unarheimilinu Grund í
Reykjavík aðfaranótt
gamlársdags, 82 ára
að aldri.
Erla var fædd í
Hrísakoti á Vatnsnesi
í Vestur-Húnavatns-
sýslu 4. september ár-
ið 1937, dóttir hjón-
anna Jóhannesar
Helga Eggertssonar
Levy oddvita og
Marsibilar Sigurrósar
Jennýjar Jóhannesdóttur Levy,
sem voru bændur í Hrísakoti allan
sinn starfsaldur.
Eftirlifandi eiginmaður Erlu er
Gunnlaugur Guðmundsson, fædd-
ur í Vesturhópshólum í Vesturhópi
í sömu sveit 8. febrúar 1931, fyrr-
verandi kaupmaður í Reykjavík.
Þau voru gefin saman 8. desember
árið 1956. Þau eignuðust fimm
börn og lifa fjögur þeirra móður
sína. Garðar, fæddur 11. desember
1956, drengur fæddur 29. desem-
ber 1957, dáinn 31.
desember 1957,
Gunnlaugur Sævar,
fæddur 29. desember
1958, Hildur, fædd
25. júní 1965, og Ás-
laug, fædd 23. októ-
ber 1973.
Erla og Gunn-
laugur ráku um ára-
tugaskeið mat- og ný-
lenduvöruverslunina
Gunnlaugsbúð, sem
lengst af starfaði á
Freyjugötu 15 á
horni Baldursgötu en
síðar í verslunar-
miðstöðinni við Hverafold 1 til 5 í
Grafarvogi, en þau reistu það hús
og áttu að stærstum hluta um ára-
bil. Þá ráku þau söluturninn
Foldaskálann í Hverafold og
Sportbúð Grafarvogs.
Erla var virk í starfi Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík og sat
um árabil í stjórn Sjálfstæðis-
félagsins í Smáíbúða- og Foss-
vogshverfi. Þá tók hún virkan þátt
í starfi Kvenfélags Bústaðasóknar
og sat í stjórn þess um árabil.
Andlát
Svanhildur Erla J. Levy
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS