Morgunblaðið - 02.01.2020, Blaðsíða 17
17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2020
Árni Sæberg
Áramót Flugeldar glitruðu á næturhimninum á nýársnótt og spegluðust í Reykjavíkurtjörn þegar íbúar höfuðborgarsvæðisins fögnuðu áramótunum á sinn hefðbundna hátt.
Veturinn 2008 var
illa komið fyrir ís-
lensku þjóðinni.
Bankakerfið var að
miklu leyti hrunið og
bresk stjórnvöld höfðu
fryst eignir íslenskra
banka í Bretlandi með
hryðjuverkalögum.
Gordon Brown, for-
sætisráðherra Bret-
lands, sagði Ísland á
barmi gjaldþrots og erlendir fjöl-
miðlar tóku í sama streng. Þeir
sökuðu Íslendinga um að ætla að
smeygja sér undan alþjóðlegum
skuldbindingum við sparifjáreig-
endur í bankaútibúum erlendis. Allt
lagðist þetta á eitt við að ógna
utanríkisverslun Íslands, tefja
endurreisn fjármálakerfisins og
spilla orðstír íslenska ríkisins og
þjóðarinnar um heim allan. Stjórn-
völd sýndust af ýmsum ástæðum
treg eða lítt fær um að taka fylli-
lega á þessum vanda, og það féll í
grýttan jarðveg þegar Davíð Odds-
son seðlabankastjóri (brátt leystur
frá embætti af nýrri ríkisstjórn) lét
að því liggja að íslenska þjóðin ætl-
aði ,,ekki að borga skuldir óreiðu-
manna“ í útlöndum.
Nokkrum framtakssömum mönn-
um í Reykjavík, sem flestir áttu
það sameiginlegt að hafa hlotið há-
skólamenntun sína í Bretlandi,
þótti hér í óefni komið. Þeir stofn-
uðu með sér samtökin InDefence of
Iceland með það að markmiði að
virkja almenning til varnar landinu.
Íslenska ríkið gæti aldrei náð við-
unandi samningum um ágreinings-
efnin við Breta og Hollendinga og
reist fjármálakerfið úr rústum
nema Íslendingar styrktu stöðu
sína út á við – ekki aðeins gagnvart
erlendum stjórnvöldum heldur
einnig gagnvart fjölmiðlum og al-
menningi á Vesturlöndum. Sókn
væri besta vörnin, og hana hófu
samtökin með því að setja upp
frumlega netsíðu, þar sem fram fór
undirskriftasöfnun og kröftugur
málflutningur gegn ákvörðun
Bretastjórnar um að beita hryðju-
verkalögum gegn íslenskum
bönkum. Íslendingar vildu virða
skuldbindingar íslenska ríkisins við
evrópska innstæðutryggingakerfið,
en tækist ekki að leysa úr ágrein-
ingi um það efni ætti að vísa málinu
til dómstóla eftir hefðum réttar-
ríkisins, undirstöðu vestræns lýð-
ræðis.
Í mars 2009 afhentu
forvígismenn In-
Defence-hópsins
breskum þingmönnum
undirskriftir rúmlega
83.000 manna gegn
beitingu bresku
hryðjuverkalaganna
gagnvart íslenskum
aðilum. Nokkru síðar,
5. júní 2009, gerðu
ríkisstjórnir Bret-
lands, Hollands og Ís-
lands með sér svo-
nefndan Icesave-
samning um uppgjör á bresku
þrotabúi Landsbankans. In-
Defence-hópurinn lagðist eindregið
gegn þessum samningi, þar sem
hann bryti m.a. í bága við fullveldi
landsins og stefndi endurreisn fjár-
málakerfisins og lífskjörum ís-
lensku þjóðarinnar í hættu. Ís-
lenska ríkið hefði að ósekju fallist á
ábyrgð á ólögmætri Icesave-kröfu
Breta og Hollendinga, samnings-
vextir væru allt of háir og gjaldfell-
ingarákvæði afar varasöm. Þrátt
fyrir þessi þungvægu rök töldu þeir
félagar ólíklegt að samningnum
yrði hnekkt og beittu sér þess
vegna fyrir því að Alþingi setti
ýmsa fyrirvara við efni hans.
Nú fór svo að ríkisstjórnir Bret-
lands og Hollands höfnuðu fyrirvör-
unum, en féllust til sátta á við-
aukasamning, Icesave II.
InDefence-hópurinn hóf hins vegar
harða baráttu gegn þessum samn-
ingi með því að hann gerði nánast
að engu fyrirvara til að takmarka
ábyrgð íslenska ríkisins á umsömd-
um skuldbindingum. Stjórnarand-
staðan á Alþingi og hluti stjórnar-
þingmanna undir forystu Ög-
mundar Jónassonar lagðist á sveif
með hópnum og var samningurinn
því að lokum samþykktur með að-
eins þriggja atkvæða meirihluta á
þingi í árslok 2009.
InDefence-hópurinn efndi hins
vegar til undirskriftasöfnunar, þar
sem skorað var á Ólaf Ragnar
Grímsson forseta Íslands að synja
lögum um samninginn staðfest-
ingar. Þátttaka í söfnuninni reynd-
ist með fádæmum og 2. janúar
2010, fyrir réttum tíu árum, af-
hentu forsvarsmenn InDefence for-
setanum undirskriftirnar, alls
56.089. Fjöldi manns hafði þá safn-
ast saman úti fyrir Bessastöðum og
hafði blys á lofti. Þessi aðgerð átti
sinn þátt í að móta það álit erlendra
fjölmiðla að meirihluti íslensku
þjóðarinnar væri að taka málið í
sínar hendur með friðsamlegum og
lýðræðislegum hætti, eins og
stjórnarskrá landsins tryggði.
Þremur dögum síðar fór forset-
inn að áskorun undirskrifenda með
þeirri röksemd að vilji þjóðarinnar
væri hornsteinn lýðræðisins.
Skömmu síðar kom fram að Bretar
og Hollendingar væru nú skyndi-
lega reiðubúnir að bjóða Íslend-
ingum hagstæðari samningskjör,
enda fór þjóðaratkvæðagreiðslan
svo að 98,1% þátttakenda greiddi
atkvæði gegn Icesave-samningnum.
Á þesssum erfiðu tímum hafði
InDefence tekist að sameina þjóð-
ina um það grundvallaratriði að ís-
lenska ríkið ætti ekki að leggja út
fé fyrir skuldum sem það hefði
aldrei stofnað til.
Samningsstaða Íslands hafði
styrkst við sóknina gegn bresku
hryðjuverkalögunum og efldist nú
enn frekar við úrslit þjóðar-
atkvæðagreiðslunnar og skörulegan
málflutning forseta Íslands í er-
lendum fjölmiðlum. Fjármála-
geirinn alþjóðlegi hafði augljóslega
fengið allt of lausan tauminn og
ógnað að lokum sjálfu hagkerfi
Vesturlanda með græðgi sinni og
hroka. Allt gróf þetta nú undan
kröfugerð Breta og Hollendinga á
hendur Íslendingum. Þeim varð
ekki lengur lýst sem sérstökum
syndaselum, sem flokka bæri með
hryðjuverkamönnum.
Eftir úrslit þjóðaratkvæða-
greiðslunnar 2010 hófust að nýju
samningaviðræður ríkisstjórna,
sem lauk með þriðja Icesave-
samningnum, svonefndum Buch-
heit-samningi, í desember 2010.
InDefence-hópurinn var ekki á eitt
sáttur um ýmis ákvæði þessa samn-
ings og tók því ekki sem heild beina
afstöðu til hans samkvæmt starfs-
reglum sínum.
Buchheit-samningurinn, sem
samþykktur var með yfirgnæfandi
meirihluta á Alþingi, þótti almennt
til bóta miðað við tvo hina fyrri Ice-
save-samninga. Engu að síður
ákvað forseti Íslands að fara að
áskorunum í víðtækri undirskrifta-
söfnun nýrra samtaka, kjósum.is,
og synja lögunum um samninginn
staðfestingar. Í þjóðaratkvæða-
greiðslu í apríl 2011 var III. Ice-
save-samningnum síðan hafnað með
60% atkvæða. Þótt InDefence sæti
hjá í þessari lotu réðust úrslitin lík-
lega að talsverðu leyti af öflugu
kynningarstarfi og málflutningi
hópsins gegn fyrri Icesave-
samningnum. Þar við bættist skörp
gagnrýni sumra félaga úr hópnum
á ýmis grundvallarákvæði samn-
ingsins.
Eftirlitstofnun Fríverslunar-
samtaka Evrópu (ESA) brást hart
við niðurstöðu þjóðaratkvæða-
greiðslunnar. Hóf stofnunin mál-
sókn fyrir EFTA-dómstólnum gegn
íslenska ríkinu með stuðningi Evr-
ópusambandsins vegna meintra
brota á tilskipun þess um inn-
stæðutryggingar bankareikninga. Í
janúarlok 2013 sýknaði dómstóllinn
íslenska ríkið hins vegar af öllum
kröfum þessara aðila, eins og al-
kunna er. Með þeim dómi hafði
málstaður InDefence hlotið endan-
legan sigur.
Dr. Carl Baudenbacher, fyrrver-
andi forseti EFTA-dómstólsins,
komst síðar svo að orði í blaða-
viðtali að III. Icesave-samningur-
inn hefði verið ,,skrifaður á máli
Versalasamninganna“, sem bundu
enda á fyrri heimsstyrjöld. Rök
hafa verið færð fyrir því að Ver-
salasamningarnir séu einhverjir
ógæfulegustu nauðungarsamningar
veraldarsögunnar. Orð dómsforset-
ans sýna því skýrt hvílíkt nauð-
synjaverk þeir menn unnu sem með
stuðningi forseta Íslands tryggðu
íslensku þjóðinni lokaorðið um Ice-
save-samningana. Í krafti þessarar
baráttu og fullveldis landsins gat
ríkissjóður krafið þrotabú föllnu
fjármálafyrirtækjanna (að mestu í
eigu erlendra vogunarsjóða) um
svokölluð stöðugleikaframlög af út-
greiðslum andvirðis eigna í íslensk-
um krónum. Sl. haust námu tekjur
af þessum framlögum alls 445 millj-
örðum króna, þar af hafði um 200
milljörðum verið varið til greiðslu
ríkisskulda. Til viðbótar því eru
aðrar greiðslur föllnu fjármála-
fyrirtækjanna til hins opinbera og
áætlað er að framlögin geti numið
að minnsta kosti 600 milljörðum
króna. Stöðugleikaframlögin eiga
því ríkan þátt í hinni einstöku end-
urreisn íslenska fjármálakerfisins,
en ekki er minna um vert hvernig
óeigingjörn barátta InDefence-
hópsins reisti við heiður þjóð-
arinnar gagnvart umheiminum. Ís-
lendingar eiga forvígismönnum
hópsins mikla þökk að gjalda og
framtaks þeirra verður minnst á
meðan þjóðin telur það nokkurs
virði að fá ráða mikilvægustu hags-
munamálum sínum.
Eftir Þór
Whitehead » Tíu ár eru liðin frá
því að InDefence-
hópurinn ruddi brautina
fyrir fulla endurreisn
íslenska fjármálakerf-
isins.
Þór Whitehead
Höfundur er prófessor emeritus í
sagnfræði.
Morgunblaðið/RAX
Tímamót Nokkur hundruð manns söfnuðust saman með blys við Bessastaði
þegar InDefence-menn afhentu forsetanum undirskriftalista með áskorun
um þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-samninginn fyrsta og versta. Þessi
atburður markaði tímamót í endurreisn úr rústum bankahrunsins.
Forvígismenn InDefence
Agnar Helgason
Davíð Blöndal
Eiríkur S. Svavarsson
Jóhannes Þ. Skúlason
Kristján Gíslason
Magnús Árni Skúlason
Ólafur Elíasson
Ragnar F. Ólafsson
Sigurður Hannesson
Þeir vörðu Ísland