Morgunblaðið - 02.01.2020, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 02.01.2020, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2020 Byltingarkennd nýjung í margskiptum glerjum 50–65% stærra lessvæði Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Kim Jong-un, leiðtogi Norður- Kóreu, tilkynnti í gærmorgun að Norður-Kóreumenn ætluðu sér ekki lengur að virða bann við tilraunum með langdrægar eldflaugar sem bor- ið geta kjarnorkuvopn á milli heims- álfa, svonefndar ICBM. Hótaði Kim því jafnframt að bráðum yrði gerð tilraun með nýtt langdrægt vopn, sem myndi bætast við vopnabúr ríkisins. Höfðu stjórnvöld í Norður-Kóreu áður gefið Bandaríkjamönnum frest til áramóta til þess að leggja fram nýjar ívilnanir á borðið, svo að við- ræður um kjarnorkuafvopnun Norður-Kóreu gætu haldið áfram, en ekki fengið nein svör. Kim ákvað fyrir um tveimur árum að hætt yrði einhliða við allar til- raunir Norður-Kóreu með lang- drægar eldflaugar, með þeim orðum að ríkið þyrfti ekki að gera frekari tilraunir með slík vopn. Sú ákvörðun var meðal annars hugsuð til þess að liðka fyrir samskiptum Norður- Kóreu við ríki alþjóðasamfélagsins, sem hafa lagt hart að Norður- Kóreumönnum um að láta kjarn- orkuvopn sín af hendi. Sleppti nýársávarpi sínu Tilkynningin um ákvörðun Kims var flutt í ríkismiðlum Norður- Kóreu, og virðist hafa komið í stað hefðbundins áramótaávarps leið- togans. Greindi norðurkóreska ríkis- sjónvarpið KCNA frá því að Kim hefði greint frá ákvörðun sinni á fundi miðstjórnar norðurkóreska kommúnistaflokksins, en fundir hennar eru oftar en ekki til marks um stefnubreytingu hjá stjórnvöld- um í Norður-Kóreu. Hafði miðillinn eftir Kim að hann sæi ekki lengur ástæðu til að binda hendur Norður-Kóreumanna, sér í lagi þar sem Bandaríkjamenn hefðu sett frekari kröfur um afvopnun á hendur þeim í stað þeirra ívilnana sem stjórnvöld í Pjongjang sóttust eftir. Þá hefðu Bandaríkjamenn ekki hætt við heræfingar sínar, jafnvel þó að Trump hefði lofað Kim því, og jafnframt veitt her Suður-Kóreu há- tæknibúnað. Segir Kim mann orða sinna Viðræður um afvopnun Norður- Kóreu, sem meðal annars hafa leitt til þriggja leiðtogafunda á milli Kims og Donalds Trump Bandaríkjafor- seta, hafa hins vegar ekki skilað neinum haldföstum árangri og hefur í raun lítið þokað áfram frá því að þriðja fundi leiðtoganna í febrúar síðastliðnum lauk án árangurs. Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, svaraði yfirlýsingu Kims og sagði hótanir hans valda Bandaríkjamönnum vonbrigðum og hvatti Norður-Kóreumenn til þess að snúa af þeirri braut sem þeir væru á. Sagðist Pompeo vongóður um að Kim myndi velja „frið og far- sæld fram yfir átök og stríð“. Trump Bandaríkjaforseti reyndi einnig að bera klæði á vopnin og benti á að hann og Kim hefðu undir- ritað samkomulag um að stefna að algjörri kjarnorkuafvopnun Kóreu- skagans. Sagðist Trump treysta því að Kim væri maður orða sinna. Kim leikur sér að eldinum Sérfræðingar í málefnum Norður- Kóreu sögðu við AFP-fréttastofuna að Kim væri að leika sér að eldi með yfirlýsingum sínum, þar sem Banda- ríkjastjórn myndi líklega bregðast við tilraunum með langdræg vopn með því að beita ríkið enn frekari viðskiptaþvingunum. Þá væri líklegt að Bandaríkjaher myndi frekar bæta í viðveru sína í nágrenni Kóreuskag- ans en hitt, hæfust tilraunir með langdrægar eldflaugar á ný. Óvíst er hvaða áhrif tilraunirnar myndu hafa á samskipti Norður- Kóreumanna og Kínverja, sem hafa lagt mikla áherslu á aukinn stöðug- leika á Kóreuskaganum og meðal annars samþykkt refsiaðgerðir gegn Norður-Kóreu í öryggisráði Samein- uðu þjóðanna, þrátt fyrir að þeir séu helstu bakhjarlar norðurkóreskra stjórnvalda. Sú samstaða sem skapast hefur í öryggisráðinu gagnvart kjarnorku- vopnum Norður-Kóreu gæti hins vegar verið senn á enda, en Rússar og Kínverjar lögðu til í ráðinu fyrir tveimur vikum að dregið yrði úr nokkrum af þeim viðskiptaþvingun- um sem nú hafa verið lagðar á Norður-Kóreu, í þeirri von um að það myndi liðka fyrir viðræðum. Taka upp eldflaugatilraunir á ný  Kim Jong-un hótar sýnikennslu á nýju langdrægu vopni á næstunni  Pompeo hvetur Norður-Kóreu til að velja frið og farsæld fram yfir átök  Líklegt að Bandaríkjamenn muni refsa fyrir tilraunaskot AFP Norður-Kórea Kim Jong-un ávarp- ar fund miðstjórnarinnar í vikunni. Bandaríkjaher hyggst senda 750 hermenn til Mið-Austurlanda þegar í stað eftir að ráðist var á sendiráð Bandaríkjanna í Bagdad, höfuð- borg Íraks, á gamlársdag. Um var að ræða mótmælaaðgerðir sem stuðningsmenn vígasamtakanna Hashed al-Shaabi stóðu að vegna loftárása Bandaríkjamanna gegn samtökunum í Írak tveimur dögum áður, þar sem 25 létu lífið. Á gamlársdag þusti fólk óhindr- að inn á varnarsvæði Bandaríkja- manna, kastaði grjóti og kveikti í bandarískum fánum en öryggis- verðir úr sendiráðinu vörðust m.a. með táragasi og særðu minnst 20, hafði fréttastofan AFP eftir Has- hed al-Shaabi. Forsvarsmenn Has- hed al-Shaabi fyrirskipuðu fólkinu í gærmorgun að yfirgefa sendiráðið en það var í fyrstu tregt til og neit- aði að fara. Í gærkvöld höfðu þó all- ir yfirgefið bygginguna. AFP Mótmæli Menn klifra utan á banda- ríska sendiráðinu í Bagdad í gær. Réðust á sendiráð Bandaríkjanna ÍRAK Frans páfi baðst í gær afsökunar á að hafa slegið hönd konu sem greip og togaði í hann þegar hann heilsaði aðdáend- um á gamlárs- kvöld. Átti atvik- ið sér stað stuttu áður en páfi hélt ræðu þar sem hann fordæmdi hvers kyns ofbeldi gegn konum. Myndband náðist af atvikinu, sem fór eins og eldur í sinu um net- heima. „Við missum oft þolinmæðina. Það hendir mig líka,“ sagði Frans. „Ég biðst afsökunar á því slæma fordæmi sem ég sýndi í gær,“ bætti hann við. PÁFAGARÐUR Baðst afsökunar á að slá konu Frans páfi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.