Morgunblaðið - 02.01.2020, Side 19
Neyslumynstur okkar tekurstöðugum breytingum og hefurneysla jurtafæðis á kostað
dýraafurða aukist töluvert. Fæði án allra
dýraafurða getur verið afar heilsusamlegt en
þó þarf að huga sérstaklega að ákveðnum
næringarefnum sem gæti skort í þess háttar
fæði. Í flestum tilfellum geta grænkerar
uppfyllt næringarþörf sína en nauðsynlegt
er að kynna sér vel hvaða annmarka þetta
fæði getur haft með tilliti til þarfa líkamans.
Grænmetisætur/vegan
Þeir sem sneyða hjá öllum dýraafurðum
þurfa að hafa augun sérstaklega vel opin
fyrir því að fæðan innihaldi nægilegt magn
af próteinum, járni, sinki, kalki, joði, B12
vítamíni og D-vítamíni. D-vítamín þurfa
allir að taka á bætiefnaformi, alltaf, en
hin efnin má finna í ýmsum matvælum,
hvort sem það er hluti af náttúrulegu
innihaldi vörunnar eða viðbætt. Hvað
próteinið varðar þá finnast þau í flestum
fæðuflokkum en mælt er með þvi að baunir,
sem eru afar próteinríkar, séu notaðar í
jurtafæðinu í svipuðu mæli og kjöt og fiskur
eru í blönduðu fæði.
B12 vítamínskortur
Fjöldi fólks sem borðar matvæli úr
öllum fæðuflokkum er ekki að taka upp
lágmarksmagn af því B12 og járni sem
nauðsynlegt er til að viðhalda eðlilegri
líkamsstarfsemi. Skortur á B12 getur verið
vegna einhæfrar fæðu eða vegna þess að
líkaminn getur ekki unnið það úr fæðunni.
Þetta er það vítamín sem flesta skortir á
efri árum og er það oftast vegna skorts á
efninu „ Intrinsic Factor“ sem er mikilvægt
prótein, framleitt í maganum sem sér um
upptöku á þessu lífsnauðsynlega vítamíni.
Það þýðir að þó svo að við borðum
dýraafurðir eða tökum vítamínpillur,
verður upptakan engin og við lendum í
skorti.
Einkenni járnskorts
Járnskortur er einn algengasti
næringarefnaskortur í heiminum og snertir
u.þ.b. 25% jarðarbúa. Það eru þó nokkur vel
þekkt og algeng einkenni járnskorts sem gott
er að vera vakandi yfir:
n Orkuleysi
n Svimi & slappleiki
n Hjartsláttartruflanir
n Föl húð
n Andþyngsli
n Minni mótstaða gegn veikindum
n Handa- og fótkuldi
Ástæða járnskorts er oftast vegna ónógs
járns í fæðunni, blóðmissis, áveðinna
sjúkdóma eða aukinnar járnþarfar (t.d.
vegna meðgöngu). Frásog getur líka verið
lélegt af ýmsum ástæðum en svo eru líka
margir sem fá ekki nóg af járnríkum mat
eins eins og rauðrófum, rauðu kjöti, grænu
grænmeti, baunum, hnetum, fræjum ofl.
Gott er að hafa í huga að til að frásoga járn
úr fæðunni, hjálpar til að taka C-vítamín
þar sem það eykur frásog. Að sama skapi
skal forðast mjólkurvörur þar sem þær
hindra eða draga verulega úr upptöku.
Joðskortur og skjaldkirtill
Vegna breytts mataræðis er í fyrsta sinn
farinn að mælast joðskortur á Íslandi og
er það fyrst og fremst rakið til samdráttar
á neyslu mjólkurvara og fisks. Joðskortur
getur verið mjög alvarlegur og hjá börnum
getur hann valdið þroskasskerðingu. Joðið
hefur helst áhrif á skjaldkirtilsvirkni og eru
helstu einkenni skorts þreyta, aukin þyngd
og aukin næmi fyrir kulda svo dæmi sé
tekið. Það eru ekki til margar joðuppsprettur
svo að það getur verið nauðsynlegt að fá
það úr bætiefnum, sérstaklega ef neysla á
mjólkurvörum og fiski er undir útgefnum
ráðleggingum um mataræði.
Vegan Health frá Better You
Vegan Health er fyrsti sinnar tegundar í
heiminum en með þessum munnúða fer
öll upptaka gegnum slímhúð í munni,
magaónot verða engin og hámarksupptaka
er tryggð. Þessi blanda inniheldur:
n D3 vítamín (vegan)
n B12 (methylcobalamin & adenozylcobalamin)
n Járn
n Joð
Fjórir úðar daglega gefa 5mg af járni, 3000
ae af D-vítamíni, 6μg af B12 og 150μg af
joði. Vegan Health hentar öllum, einnig á
meðgöngu.
Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir og
heilsuhillur verslana
Vegan Health munnúðinn frá Better You er samsettur úr
D-vítamíni og joði ásamt B12 og járni fyrir þá sem eiga erfitt með
upptöku þess úr fæðunni og þá sem neyta ekki dýraafurða.
Valið BESTA NÝJA BÆTIEFNIÐ á
Natural & Organics í London 2019.
Umbúðir eru gerðar úr endurunnu plasti úr
sjónum og stefna fyrirtækisins er að í lok
árs 2019 verði allar umbúðir sem fyrirtækið
notar úr kolefnis-neikvæðu (carbon
negative)- eða endurunnu plasti og að allt sé
endurvinnanlegt.
Vissir þú að:
Til framleiðslu á rauðum blóðkornum þarf m.a. járn, B12 vítamín og fólínsýru en ef skortur er á
einhverju þessara efna, minnkar framleiðsla rauðra blóðkorna. Við þetta minnkar flutningsgeta
þeirra á súrefni um líkamann og frumurnar tapa orku sem getur valdið ýmsum líkamlegum kvillum.
ERTU MEÐ STERK BEIN?
BEINVERND ER MIKILVÆG ALLA ÆVI
OSTEO ADVANCE er
fullkomin blanda fyrir beinin
• Kalk og magnesíum í
réttum hlutföllum
• D vítamín tryggir upptöku
kalksins
• K2 vítamín sér um að
kalkið skili sér í beinin
Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir og heilsuhillur verslana
Fær líkaminn
þinn alla þá
næringu sem
hann þarf?