Morgunblaðið - 02.01.2020, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 02.01.2020, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2020  Guðni Kjartansson, fyrrverandi landsliðsþjálfari og landsliðsmaður í knattspyrnu, var í hópi þeirra sem fengu riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu á Bessastöðum í gær. Guðni, sem er 73 ára Keflvíkingur, var kjörinn íþróttamaður ársins 1973, fyrstur knattspyrnumanna. Hann var fyrirliði Keflavíkur og Íslandsmeistari með lið- inu þrisvar á fimm árum, lék 31 lands- leik fyrir Íslands hönd, var landsliðs- þjálfari karla og síðan aðstoðarþjálfari bæði karla- og kvennalandsliða Ís- lands, auk þess að þjálfa yngri landslið um árabil og m.a. bæði karlalið Kefla- víkur og KR.  Franski sóknarmaðurinn Karim Benzema hefur framlengt samning sinn við spænska knattspyrnufélagið Real Madrid til ársins 2022. Benzema, sem kom 21 árs gamall til félagsins ár- ið 2009, hefur skorað 160 mörk í 329 deildarleikjum og samtals 238 mörk í 488 mótsleikjum fyrir Real Madrid. Hann hefur verið sjóðandi heitur í vet- ur og skorað 16 mörk á tímabilinu, 12 þeirra í spænsku 1. deildinni.  Kvennalið Fjölnis í körfuknattleik hefur fengið liðsauka frá Bandaríkj- unum, en félagið hefur samið við Ariel Hearn, 26 ára leikstjórnanda, um að leika með liðinu. Hearn kemur frá Saarlouis í Þýskalandi. Fjölniskonur eru á toppi 1. deildar með níu sigra í tólf leikjum, tveimur stigum á undan Tindastóli. Þær voru ekki með erlend- an leikmann fram að áramótum.  Knattspyrnukonan Linda Líf Boama var á gamlársdag valin íþrótta- maður Þróttar í Reykjavík fyrir árið 2019, en hún var í stóru hlutverki í liði Þróttar sem vann sér sæti í úrvals- deildinni í haust. Hún varð næst- markahæsti leikmaður 1. deildar með 22 mörk og skoraði tvö mörk í sjö leikjum fyrir U19 ára landsliðið sem er komið í milliriðil EM 2020.  Helena Sverrisdóttir var á gamlárs- dag útnefnd íþróttamaður Vals árið 2019. Hún hefur verið fremsta körfu- boltakona landsins um árabil og átti drjúgan þátt í að Valur var nánast ósigrandi á árinu 2019, en félagið varð Íslands-, bikar- og deildarmeistari með Helenu í lykilhlutverki.  FH útnefndi líka sitt fremsta íþróttafólk á gamlársdag. Þar var handknattleiksmaðurinn Ásbjörn Frið- riksson valinn íþróttakarl FH árið 2019 og frjálsíþróttakonan Þórdís Eva Steinsdóttir var valin íþróttakona FH 2019.  Nýjasti liðsmaður enska knatt- spyrnuliðsins Liverpool, japanski sóknarmaðurinn Takumi Minamino, er ekki löglegur með liðinu í kvöld þegar það tekur á móti Sheffield United í úr- valsdeildinni. Minamino, sem var keyptur frá Salzburg á dögunum, fær keppn- isleyfi á morg- un og gæti því komið við sögu á sunnudag- inn þegar Liverpool mætir Ever- ton í granna- slag í 3. um- ferð bikar- keppninnar. Eitt ogannað HANDBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Aron Pálmarsson, lykilmaður í ís- lenska landsliðinu sem býr sig undir EM í handknattleik í janúar, hefur leikið virkilega vel með stórliðinu Barcelona á keppnistímabilinu. Liðið er eins og undanfarin ár eitt allra sterkasta félagslið í heimi og er í efsta sæti í A-riðli í Meistaradeild Evrópu. Í þeirri keppni hefur Barce- lona unnið átta leiki af níu en í riðl- inum eru frábær lið eins og Paris Saint-Germain, Pick Szeged og Flensburg. „Já, mjög,“ svaraði Aron þegar hann var spurður hvort hann væri ánægður með keppnistímabilið fram til þessa. „Þetta er svipuð uppskrift og í fyrra hvað það varðar að við töp- uðum fyrsta leiknum í riðlinum í Meistaradeildinni. Eftir það höfum við unnið rest. Við unnum deildabik- arinn um daginn og erum taplausir í deildinni. Við getum orðað það þann- ig að við séum á pari,“ sagði Aron, en Barcelona er með yfirburðastöðu í deildinni. Ekki er hins vegar mikið svigrúm til að misstíga sig í Meist- aradeildinni, eins og liðið kynntist snemma sumars þegar úrslitahelgin fór fram í Köln. „Ekki er nóg fyrir Barcelona að komast í Final Four [úrslitahelgina í Meistaradeildinni]. Það skiptir mestu máli að vera númer eitt. Undanúrslitin í Meistaradeildinni á síðasta tímabili voru gríðarleg von- brigði vegna þess að við vorum á góðri siglingu og höfðum átt gott tímabil en enduðum bara í 3. sæti. Við lítum á það sem vonbrigði, en á hverju tímabili er markmiðið að vinna Meistaradeildina. Engin breyting er þar á núna.“ Spurður hvort lið Barcelona sé enn öflugra en í fyrra telur Aron að svo sé. Hann leikur nú nánast ein- göngu í skyttustöðunni vinstra meg- in. Króatinn Luka Cindric sér um að stjórna spilinu, en hann er af- skaplega klókur leikmaður. Yndislegt að spila með Cindric „Já, ég held það. Við fengum náttúrlega Cindric, Króata, til okkar. Hann hefur tekið við miðju- stöðunni af mér og ég var færður vinstra megin. Mér finnst það virka mjög vel og kann mjög vel við mig í þeirri stöðu. Cindric kemur með öðruvísi spilamennsku inn í liðið. Hann flækir hlutina ekki mikið en leyfir gæðunum að skína í gegn og mér finnst yndislegt að spila með honum. Ég hef spilað á móti Cindric með félagsliði og landsliði. Það er skelfilegt að spila á móti honum. Hann er hrikalega sterkur á fót- unum og fljótur. Hann er af króat- íska skólanum og nýtur þess að spila. Er ekki að setja upp einhver svakaleg leikkerfi. Ég nýt þess að spila með honum og allt liðið. Hann hefur því klárlega styrkt liðð. Ég tel því að við séum með sterkara lið en á síðasta tímabili,“ sagði Aron, sem hefur vaxið í hlutverki sínu hjá stór- liðinu eftir að hann færði sig til Barcelona frá Ungverjalandi seint á árinu 2017. „Ég er í einu af lykilhlutverk- unum. Það er augljóst. Þar vill mað- ur vera og ég kann vel við mig í þeirri stöðu. Maður verður hins veg- ar að halda sér á tánum og allt það. Um leið og þú spilar tvo eða þrjá leiki illa í svona liðið ertu strax kom- inn aftar í goggunarröðinni. Á bekknum bíða hungraðir heims- klassaleikmenn. Auðvitað heldur það manni á tánum en eins og ég segi er ég mjög ánægður með stöðu mína á þessu tímabili,“ sagði Hafnfirð- ingurinn Aron Pálmarsson þegar Morgunblaðið tók hann tali á lands- liðsæfingu á Ásvöllum á dögunum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Barcelona Aron Pálmarsson og félagar eru á sama stað og vanalega, efstir og ósigraðir á Spáni og í toppbaráttu Meistaradeildarinnar. Á bekknum bíða heimsklassaleikmenn  Aron Pálmarsson nýtur sín vel í skyttustöðunni í vetur  Telur lið Barcelona vera enn öflugra en á síðasta tímabili  Nauðsynlegt að halda sér á tánum Katarska knattspyrnufélagið Al- Arabi kvaddi Birki Bjarnason landsliðsmann formlega í gær, en þá lauk tveggja og hálfs mánaðar dvöl hans hjá félaginu. Birkir gerði skammtímasamning við Al-Arabi og var fenginn til að leysa Aron Einar Gunnarsson af hólmi á meðan Aron jafnaði sig af meiðslum. Birkir er því á ný án félags, eins og hann var frá ágúst og fram í október eftir að hann fékk sig leyst- an undan samningi við enska félag- ið Aston Villa. Árið 2019 var sérstakt fyrir Birki því hann spilaði fleiri leiki með ís- lenska landsliðinu á árinu en deild- arleiki með félagsliðum sínum. Birkir fékk aðeins tækifæri í fjór- um leikjum með Aston Villa frá ára- mótum, þegar hann tók þátt í að koma félaginu upp í ensku úrvals- deildina, og spilaði síðan fimm deildarleiki með Al-Arabi frá 16. október til 22. desember. Á sama tíma lék Birkir alla tíu leiki Íslands í undankeppni Evr- ópumótsins á árinu 2019, var í byrj- unarliði í þeim öllum og skoraði þrjú mörk. vs@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ísland Landsliðið var aðalvettvangur Birkis Bjarnasonar á árinu 2019. Spilaði meira með landsliði en félagsliði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.