Morgunblaðið - 02.01.2020, Side 29

Morgunblaðið - 02.01.2020, Side 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2020 GLEÐILEGT NÝTT ÁR Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is LOKAKAFLINN Í SKYWALKER SÖGUNNI FRUMSÝND 10. JANÚAR Bækur ársins Fortíðin var skoðuð, stundum til að spegla samtímann, og framtíðin var líka undir í fjölda bóka fyrir þessi jól, oftar en ekki þær óumflýjanlegu breytingar á veðurfari og búsetu sem bíða okkar. Árni Matthíasson tíndi saman þær bækur sem honum þótti skara fram úr á árinu. Fáir rithöfundar ná eins vel til barna og Ævar Þór Bene- diktsson, sem sann- ast á fjölmörgum bókum hans. Í Stór- hættulega stafrófinu sýnir hann að hann kann líka að tala við börn sem ekki kunna að lesa eða eru að stíga fyrstu skrefin á því sviði. Í bókinni, sem skreytt er framúrskarandi skemmtilegum myndum Bergrúnar Írisar Sævarsdóttur, kynnir hann stafrófið og kryddar með ógurlega ógnvekjandi og jafn- vel ómótstæðilega ógeðslegum hætti. Lesið líka Kennarann sem hvarf eftir Bergrúnu Írisi og Egil spámann eftir Lani Yamamoto. Barnabók ársins Á síðasta ári sagði Hall- grímur Helgason frá upphafsárum síldaræv- intýris Íslendinga í skáldsögu, en staðreynd- irnar tala í hinni miklu bók Páls Baldvins Bald- vinssonar Síldarárin 1867-1969. Í bókinni er gríðarlega miklum upp- lýsingum safnað saman á einn stað, en mestur fengur er þó í hinu stórkostlega myndasafni sem í henni er að finna. Lesið líka Willard Fiske eftir Kristínu Bragadóttur og Listina að vefa eftir Ragnheiði Þórsdóttur. Fræðirit ársins Margir eiga erfitt með að fóta sig í upplýsingaflóði um hnattræna hlýnun á síðustu árum og ekki síst að átta sig á samhengi hlutanna. Andri Snær Magnason kann öðrum fremur að stilla hlutum upp á einfaldan og auðskilinn hátt eins og hann gerði í Draumalandinu og gerir enn betur í bókinni Um tímann og vatnið án þess þó að draga úr vandanum sem bíður okkar alla. Lesið líka Sólarhringl Huldars Breiðfjörð og Skjá- skot Bergs Ebba Benediktssonar. Pælingar ársins Ljónið hennar Hildar Knúts- dóttur var nútímasaga með yfirnáttúrulegu ívafi. Fram- haldið, Nornin, er aftur á móti framtíðarsaga og þó að yfirskilvitlegir hlutir séu á sínum stað er önnur og nær- tækari ógn til staðar þar sem glímt er við afleiðingar ham- farahlýnunar 21. aldar. Af- bragðsvel skrifuð og frumleg bók fyrir for- vitin ungmenni. Lesið líka Villueyjar eftir Ragnhildi Hólmgeirsdóttur og Húsið í september eftir Hilmar Örn Óskarsson. Ungmennabók ársins „Það má teljast viðburður í okkar bókmenntum þegar kona gefur út bók, sem telja má til bókmennta.“ Svo yfir- lætislega hófst umsögn, skrifuð af karli, í Birtingi um ljóðabókina Þröskuldur hússins er þjöl eftir Arnfríði Jónatansdóttur haustið 1958. Arnfríður hafði þá sent frá sér nokkur ljóð í blöðum, en annar skáldskapur barst ekki frá henni. Lesið líka 100 ljóð eftir Geirlaug Magnússon og ljóða- safn Jóns Helgasonar Úr landsuðri. Endurútgáfa ársins Í ljóðabókinni Kærastinn er rjóður yrkir Kristín Eiríks- dóttir um eiginlega og óeiginlega ást og allt þar á milli. Já, og líka hverju við erum tilbúin að fórna fyrir ástina. Sjálfsvirðingin með- talin. Það er ljúfsár tregi í ljóð- unum, smá skvetta af sorg, eða er hún kannski að henda gaman að lesandanum? Er glott á bak við hina írónísku fjarlægð? Ekkert er eins og það sýnist. Ekki heldur ástin. Lesið líka Leðurjakkaveður Fríðu Ísberg og Til þeirra sem málið varðar eftir Einar Má Guð- mundsson. Ljóðabók ársins Skáldsagan Korngult hár, grá augu eftir Sigurjón Birgi Sigurðsson, Sjón, talar beint inn í samtíma okkar með því að segja sögu úr ekki svo fjarlægum tíma sem flest- ir hafa gleymt og margir vilja síst rifja upp. Í bókinni varpar Sjón fram spurningu um óheillaþróun; orsök og afleiðingar þess þegar menn fiska í gruggugu vatni, en ekki síður spurningu um það hvað veldur því að sum ungmenni falla fyrir lýðskrumi og mannhatri sem dæmin sanna á nýliðinu ári. Bókin er knöpp og meitluð, hárbeitt og frábærlega stíluð, og kemur sífellt upp í hugann löngu eftir lesturinn. Lesið líka Svínshöfuð eftir Bergþóru Snæbjörns- dóttur og Aðferðir til að lifa af eftir Guð- rúnu Evu Mínervudóttur. Skáldsaga ársins Fyrir aldarfjórðungi „leiðrétti“ Sigurður Árni Sigurðsson gamalt póst- kort með mynd af hundi sem hann hafði fundið á flóamarkaði, bætti við skugga af gróðri og hund- inum sem náðu út yfir upprunalegan myndflöt. Leiðréttingarnar urðu fleiri með árunum og efniviðurinn fjöl- breyttari eins og rakið er í framúrskarandi bók sem heitir einfaldlega Leiðréttingar. Í bók- inni eru 75 leiðréttingar Sigurðar og fjallað um verkin. Frágangur á bókinni er frábær. Lesið líka Lífsverk – Þrettán kirkjur Ámunda Jóns- sonar eftir Guðrúnu A. Tryggvadóttur og Skúrinn eftir Finn Arnar. Listaverk ársins Jakobína Sigurðardóttir er einn merkasti rithöf- undur okkar og í bókinni Jakobína, saga skálds og konu rekur dóttir hennar, Sigríður Kristín Þorgríms- dóttir, sögu móður sinnar og sögu skáldkonunnar. Saga Jakobínu er að mörgu leyti saga fátæktar og erfiðleika, en aðallega þó saga tíma þegar ritstörf kvenna voru lítils metin. Það er ólán íslenskrar menningar að Jakobína hafi ekki fengið næði til að skrifa meira en hún þó gerði. Lesið líka Systu eftir Vigdísi Grímsdóttur og bréf Mikaels Torfasonar til móður sinnar. Ævisaga ársins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.