Morgunblaðið - 04.01.2020, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2020 33
Embætti dómara við Landsrétt
laust til umsóknar
Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti dómara við Landsrétt. Stefnt er að því að skipa í
embættið hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti hefur lokið störfum. Um
launakjör fer samkvæmt lögum um dómstóla nr. 50/2016, sbr. lög nr. 79/2019.
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 21. gr. laga nr. 50/2016. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 620/2010,
um störf dómnefndar sem fjallar um hæfni umsækjenda um dómaraembætti, er áskilið að í umsókn komi fram
upplýsingar um 1) núverandi starf 2) menntun og framhaldsmenntun, 3) reynslu af dómstörfum, 4) reynslu
af lögmannsstörfum, 5) reynslu af stjórnsýslustörfum, 6) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum
akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv.,
7) reynslu af stjórnun, 8) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við
undirbúning lagasetningar o.fl., 9) upplýsingar um almenna og sérstaka starfshæfni, 10) upplýsingar um and-
legt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum, 11) upplýsingar um tvo fyrrverandi eða núverandi samstarfsmenn
eða yfirmenn sem geta veitt dómnefnd bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni
umsækjanda og 12) aðrar upplýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem
máli skipta fyrir störf landsréttardómara.
Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) afrit af prófskírteinum, 2) afrit dóma í munnlegum fluttum málum
sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 3) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem um-
sækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 4) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem umsækjandi
hefur samið síðustu 12 mánuði og 5) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjenda. Þess er óskað
að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 6) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega
færni umsækjanda til starfa sem landsréttardómari.
Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 20. janúar 2020. Til þess að hraða afgreiðslu um-
sókna og bréfaskiptum er áskilið að umsóknir og fylgigögn berist dómsmálaráðuneytinu með rafrænum hætti
á netfangið starf@dmr.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Dómsmálaráðuneytinu,
3. janúar 2020.
Stjórnarráð Íslands
Dómsmálaráðuneytið
Forstöðumaður tæknideildar Faxaflóahafna sf.
Auglýst er laust til umsóknar starf forstöðumanns tæknideildar Faxaflóahafna sf.
Leitað er eftir tækni- eða verfræðimenntaðri manneskju
sem hefur eftirfarandi til að bera:
• Háskólamenntun í tækni- eða verkfræði sem nýtist í starfi.
• Reynslu af verklegum framkvæmdum og mannvirkjagerð,
sem jafna má til verkefna á sviði hafnarmála.
• Skipulagshæfni og hagnýtri reynslu af áætlanagerð.
• Færni í samskiptum við fólk og fyrirtæki.
• Góða tölvukunnáttu og færni í ensku.
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Í starfinu felst m.a.:
• Umsjón og eftirlit hönnunar og hafnarframkvæmda
• Eftirlit með hafnarmannvirkjum Faxaflóahafna sf.
• Áætlanagerð um skilgreindar viðhalds- og nýframkvæmdir
• Umsjón og uppfærsla tæknigagna í eigu Faxaflóahafna sf.
• Önnur þau störf, sem viðkomandi kunna að vera falin og falla
innan eðlilegs starfsviðs forstöðumanns tæknideildar
Umsóknarfrestur er til og með föstudag 10. janúar n.k.
Umsókn og ferilskrá með nöfnum umsagnaraðila skal skilað til:
Faxaflóahafna sf., Tryggvagötu 17, Reykjavík eða þær sendar mannauðs- og launafulltrúa Faxaflóahafna sf. á netfangið olafur@faxafloahafnir.is.
Nánari upplýsingar veitir hafnarstjóri gislig@faxafloahafnir.is eða í síma 525 8900.
Faxaflóahafnir hafa staðist jafnlaunavottun og hlotið Jafnlaunamerki Velferðarráðuneytis.
Hafnarstjóri Faxaflóahafna sf.
capacent.is
Ráðgjafar okkar búa
r ðkr
kkgu
á auu og
a rau
a og
r
u
ga ráðgjf