Morgunblaðið - 04.01.2020, Blaðsíða 40
Knattspyrnumaðurinn Jón Ingason
er genginn til liðs við fyrstudeild-
arlið ÍBV á nýjan leik. Þetta kom
fram á heimasíðu félagsins í gær.
Varnarmaðurinn skrifaði undir
tveggja ára samning við Eyjamenn
en hann kemur til félagsins frá
Grindavík þar sem hann hefur spil-
að frá árinu 2017.
Jón, sem fæddist árið 1995, á að
baki 96 leiki í efstu deild með
Grindavík og ÍBV þar sem hann
hefur skorað eitt mark.
Jón kemur til ÍBV í maí þegar
hann lýkur námi í Bandaríkjunum.
Varnarmaðurinn
snýr aftur til ÍBV
Morgunblaðið/Ófeigur
Heimakær Jón Ingason er kominn
aftur til uppeldisfélagsins.
HANDBOLTI
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Eini undirbúningsleikur íslenska
karlalandsliðsins í handknattleik fyr-
ir Evrópukeppnina sem hefst í
næstu viku fer fram í Mannheim í
dag þegar liðið mætir Þýskalandi í
vináttulandsleik.
Ísland mætir Danmörku í Malmö í
fyrsta leik sínum á EM eftir slétta
viku, laugardaginn 11. janúar. Þjóð-
verjar hefja hinsvegar keppni strax
á fimmtudaginn, 9. janúar, þegar
þeir mæta Hollandi, undir stjórn Er-
lings Richardssonar, í Þrándheimi.
Þýska liðið mun þó spila annan
leik áður en keppnin hefst en Þjóð-
verjar mæta Austurríkismönnum í
Vínarborg á mánudaginn áður en
þeir halda til Þrándheims.
Guðmundur Þ. Guðmundsson
skildi tvo leikmenn úr 19 manna æf-
ingahópi sínum eftir heima. Það voru
markvörðurinn Ágúst Elí Björg-
vinsson frá Sävehof, sem hefur spil-
að 31 landsleik, og línumaðurinn
Sveinn Jóhannsson frá Sönder-
jyskE, sem á sjö landsleiki að baki, og
eftir stendur líklega sá 17 manna hóp-
ur sem heldur til Malmö seinnipart
næstu viku.
Fimmtán ára aldursmunur
Talsverðar vangaveltur hafa verið
um hvaða tvo markverði Guðmundur
taki með sér og liðsvalið fyrir þennan
leik bendir til þess að Björgvin Páll
Gústavsson, sem á 221 landsleik að
baki, og Viktor Gísli Hallgrímsson,
sem hefur spilað níu landsleiki, muni
verja mark íslenska liðsins á EM. Ald-
ursmunurinn á þeim er fimmtán ár.
Guðmundur veðjar því á reynslu
Björgvins annarsvegar og hinsvegar
á að hinn 19 ára gamli Viktor Gísli,
sem ver mark GOG í Danmörku, sé
tilbúinn á stórmót. Fyrir ári var það
Ágúst Elí sem lék á HM ásamt Björg-
vini Páli, sem um tíma virtist vera bú-
inn að syngja sitt síðasta með lands-
liðinu. Góð frammistaða hans með
Skjern undanfarnar vikur hefur hins-
vegar breytt stöðunni á ný.
Auk markvarðanna tveggja fóru
eftirtaldir leikmenn til Þýskalands í
gær, landsleikjafjöldi í svigum:
Vinstra horn: Bjarki Már Elísson (63)
og Guðjón Valur Sigurðsson (356).
Vinstri skyttur: Aron Pálmarsson
(141) og Ólafur Andrés Guðmunds-
son (115).
Miðjumenn: Elvar Örn Jónsson (26),
Haukur Þrastarson (12) og Janus
Daði Smárason (37).
Hægri skyttur: Alexander Peters-
son (173) og Viggó Kristjánsson (2).
Hægra horn: Arnór Þór Gunnarsson
(105) og Sigvaldi Björn Guðjónsson
(20).
Línumenn: Arnar Freyr Arnarsson
(45), Kári Kristján Kristjánsson
(137) og Ýmir Örn Gíslason (33).
Varnarmaður: Daníel Þór Ingason
(30).
Þetta er aðeins annar leikurinn
milli Íslands og Þýskalands á fjórum
árum en Þjóðverjar unnu leik lið-
anna á heimsmeistaramótinu í Köln í
janúar 2019, 24:19.
Fram að því höfðu liðin mæst sex-
tán sinnum á átta árum, frá 2008 til
2016.
Þjóðverjar hafa unnið sex af síð-
ustu átta viðureignum þjóðanna frá
mars árið 2011. Þar á undan hafði Ís-
land unnið sjö leiki og gert eitt jafn-
tefli í átta leikjum í röð gegn Þýska-
landi, frá og með sigrinum á
Ólympíuleikunum í Peking í ágúst
2008 og fram að ósigri í vináttuleik í
Halle í mars árið 2011.
Veðjað á
reynslu Björg-
vins á EM?
Björgvin og Viktor fóru til Þýska-
lands en Ágúst varð eftir heima
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ungur Viktor Gísli Hallgrímsson er 19 ára gamall og spilar sinn tíunda
A-landsleik gegn Þýskalandi í dag. Hann er væntanlega á leið á EM.
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2020
Spánn
Real Valladolid – Leganés....................... 2:2
Sevilla – Athletic Bilbao........................... 1:1
Staðan:
Barcelona 18 12 3 3 47:21 39
Real Madrid 18 10 7 1 33:12 37
Sevilla 19 10 5 4 24:18 35
Atlético Madrid 18 8 8 2 20:11 32
Real Sociedad 18 9 4 5 32:23 31
Getafe 18 8 6 4 26:17 30
Athletic Bilbao 19 7 8 4 20:13 29
Valencia 18 7 7 4 28:25 28
Levante 18 8 2 8 25:27 26
Villarreal 18 7 4 7 31:25 25
Granada 18 7 3 8 24:25 24
Osasuna 18 5 8 5 25:24 23
Real Betis 18 6 5 7 25:31 23
Real Valladolid 19 4 9 6 17:23 21
Alavés 18 5 4 9 19:28 19
Eibar 18 5 4 9 18:28 19
Mallorca 18 4 3 11 18:32 15
Celta Vigo 18 3 5 10 15:28 14
Leganés 19 3 5 11 16:30 14
Espanyol 18 2 4 12 12:34 10
KNATTSPYRNA
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Origo-höllin: Valur – Fjölnir ............. S18.30
Höllin Ak: Þór Ak. – Haukar............. S19.15
Njarðtaksgryfjan: Njarðvík – ÍR ..... S19.15
Mustad-höllin: Grindavík – KR ........ S19.15
MG-höllin: Stjarnan – Þór Þ ............. S20.15
Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin:
Mustad-höll: Grindavík – Breiðablik .... L16
Stykkishólmur: Snæfell – Keflavík....... L16
Ásvellir: Haukar – KR ........................... L16
Origo-höllin: Valur – Skallagrímur .. S16.15
1. deild kvenna:
Sauðárkrókur: Tindastóll – Fjölnir ...... L16
Hveragerði: Hamar – Njarðvík............. L16
Hertz-hellirinn: ÍR – Keflavík b............ L16
KNATTSPYRNA
Reykjavíkurmót karla:
Egilshöll: Fjölnir – Þróttur R........... L15.15
Egilshöll: Fylkir – ÍR ........................ S15.15
Norðurlandsmót ka., Kjarnafæðismótið:
Boginn: KA 2 – Magni ....................... L15.15
Boginn: Dalvík/Reynir – Völsungur L19.15
Boginn: Þór – Leiknir F .................... S13.15
Norðurlandsmót kv., Kjarnafæðismótið:
Boginn: Þór/KA – Völsungur............ S15.15
ÍÞRÓTTIR FATLAÐRA
Hið árlega Nýárssundmót Íþróttasam-
bands fatlaðra fer fram í Laugardalslaug í
dag og hefst kl. 15.
UM HELGINA!
HANDBOLTI
Gulldeild karla
Leikið í París:
Danmörk – Noregur ............................ 28:26
Frakkland – Serbía .............................. 40:26
Vináttulandsleikir karla
Túnis – Holland .................................... 30:29
Erlingur Richardsson þjálfar Holland.
Rússland – Pólland............................... 30:25
Bosnía – Katar ...................................... 27:30
Slóvenía – N-Makedónía...................... 33:28
Spánn – Portúgal.................................. 30:25
Sviss – Úkraína..................................... 32:22
Evrópudeildin
Valencia – Alba Berlín........................ 91:77
Martin Hermannsson skoraði 13 stig og
gaf fimm stoðsendingar fyrir Alba Berlín á
þeim 26. mínútum sem hann lék.
Staðan: Anadolu 14/3, Real Madrid 14/3,
Barcelona 13/4, Maccabi Tel Aviv 11/6,
CSKA Moskva 11/6, Panathinaikos 10/7,
Olimpia Mílanó 9/8, , Rauða stjarnan 8/9,
Khimki Moskva 8/9, Valencia 8/9, Lyon-Vil-
leurbanne 8/9, Baskonia 7/10, Olympiacos
6/11, Fenerbahce 6/11, Bayern München 6/
11, Zalgiris Kaunas 5/12, Alba Berlín 5/12,
Zenit Pétursborg 4/13.
Svíþjóð
Köping Stars – Borås.......................... 92:76
Elvar Már Friðriksson skoraði 7 stig,
tók eitt frákast og gaf sjö stoðsendingar
fyrir Borås.
NBA-deildin
Cleveland – Charlotte ...................... 106:109
Indiana – Denver.............................. 116:124
Miami – Toronto ................................... 84:76
Minnesota – Golden State ................... 99:84
Chicago – Utah ................................... 98:102
Dallas – Brooklyn ............................. 123:111
San Antonio – Oklahoma City ......... 103:109
Sacramento – Memphis ................... 128:123
LA Clippers – Detroit ...................... 126:112
Efstu lið í Austurdeild:
Milwaukee 31/5, Boston 23/8, Miami 25/9,
Toronto 23/12, Philadelphia 23/13, Indiana
22/13, Brooklyn 16/17, Orlando 15/19.
Efstu lið í Vesturdeild:
LA Lakers 27/7, Denver 24/10, LA Clip-
pers 25/11, Houston 23/11, Dallas 22/12, Ut-
ah 22/12, Oklahoma City 19/15.
KÖRFUBOLTI
óvissu en janúarglugginn verður op-
inn út mánuðinn og ég hef þess
vegna ágætistíma til þess að ákveða
næstu skref á ferlinum.“
Ragnar hefur leikið með Göte-
borg í Svíþjóð, FCK í Danmörku,
Fulham á Englandi og loks Kras-
nodar, Rubin Kazan og Rostov í
Rússlandi á atvinnumannsferli sín-
um og segist vera opinn fyrir því að
prófa eitthvað nýtt.
„Það er oftast þannig að þegar
manni líður vel spilar maður vel.
Mér hefur gengið ágætlega á mín-
um atvinnumannsferli og ég er alls
ekki að einblína á það að vera í ein-
hverjum þægindaramma á þessum
tímapunkti. Ég er alveg til í að
prófa nýja hluti og spila í Asíu sem
dæmi. Eins set ég það ekki fyrir
mig að vera áfram í Rússlandi og þá
leið mér alltaf mjög vel í Skandinav-
íu þegar ég spilaði þar þannig að
það má alveg segja sem svo að ég sé
í raun opinn fyrir nánast öllu.“
FÓTBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Ragnar Sigurðsson, landsliðs-
maður Íslands í knattspyrnu, er án
félags eftir að hann fékk samningi
sínum við rússneska úrvalsdeild-
arfélagið Rostov rift á dögunum.
Ragnar, sem er 33 ára gamall, er
uppalinn hjá Fylki í Árbænum en
miðvörðurinn öflugi hefur verið at-
vinnumaður frá árinu 2007. Hann
vonast til þess að framtíð sín skýrist
fljótlega en ítrekar að hann ætli sér
ekki að taka neina skyndiákvörðun
um næsta áfangastað.
„Ég er búinn að vera í fríi núna
sem hefur verið bæði gott fyrir mig
og líka nauðsynlegt. Það er mikil-
vægt að hlaða batteríin öðru hverju
og það er alltaf gott að koma heim
til Íslands. Að sama skapi er alltaf
óþægilegt þegar framtíðin er í smá
Þrátt fyrir að janúarglugginn hafi
verið opnaður 1. janúar síðastliðinn
er Ragnar nú þegar með nokkur til-
boð í höndunum en hann hefur með-
al annars verið orðaður við endur-
komu til FC Kaupmannahafnar þar
sem hann lék á árnum 2011 til árs-
ins 2014..
„Mér leið mjög vel í Kaup-
mannahöfn og það er ein af mínum
uppáhaldsborgum í dag. Eins og
ég sagði áðan er ég opinn fyrir
flestu og ég er með nokkur tilboð í
höndunum, meðal annars frá
Skandinavíu og Tyrklandi. Það er
hins vegar nægur tími til stefnu og
ég þarf að fá eitthvert virkilega
spennandi tilboð á þessum tíma-
punkti ef ég á að stökkva á það
núna. Ég er rólegur í tíðinni og al-
veg tilbúinn að bíða aðeins eftir
rétta tilboðinu og taka minn tíma í
að ákveða næstu skref,“ bætti
landsliðsmaðurinn við í samtali við
Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Eggert
Óvissa Ragnar Sigurðsson er án
félags um þessar mundir.
Opinn fyrir flestu og með
nokkur tilboð í höndunum
Ragnar fékk samningi sínum við Rostov rift á dögunum
Eyjólfur Ásberg Halldórsson er
genginn til liðs við Íslandsmeistara
KR í körfuknattleik og mun hann
leik með liðinu á seinni hluta tíma-
bilsins í úrvalsdeild karla. Eyjólfur
kemur til félagsins frá Skallagrími
en hann hefur ekkert spilað á þess-
ari leiktíð vegna meiðsla.
Hann skoraði 12 stig, tók sex frá-
köst og gaf sex stoðsendingar að
meðaltali með Skallagrími í efstu
deild á síðasta tímabili. Eyjólfur er
uppalinn í Vesturbænum en hann
hefur einnig leikið með ÍR og
Skallagrími á ferlinum.
Eyjólfur aftur í
Vesturbæinn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Endurkoma Eyjólfur Ásberg Hall-
dórsson hefur snúið aftur til KR.