Morgunblaðið - 04.01.2020, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.01.2020, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2020 BRUNCH Allar helgar kl. 11:00-16:00 Amerískar pönnukökur Beikon, egg og ristað brauð Franskt eggjabrauð Hafragrautur Skyr Omeletta Big Brunch Eggs Benedict Gerðu þér dagamun og komdu á Sólon ársins 2019, en hún gekk til liðs við félagið í byrjun ársins og blómstraði. Strax í fyrsta leik í Íslandsmótinu Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Íslandsmeistarar, burðarás,leiðtogi, fyrirmyndir, óstöðv-andi, afrek og stórkostlegurárangur. Þetta er meðal þeirra orða sem notuð eru til lýs- inga á afrekum og sætum sem og sigrum þeirra sem að undanförnu hafa verið valdir sem íþróttafólk einstakra félaga eða byggðarlaga fyrir árið 2019. Morgunblaðinu hafa að undanförnu borist fjölmargar til- kynningar um slíkt sem allar vitna um blómlegt starf og að íþróttirnar skipta samfélagið miklu. Æfingar og keppni eru sem eftirlíking af líf- inu sjálfu og því þroskandi fyrir börn og unglinga. Einu má svo gilda á hvaða aldri fólk er; heyfing er nauðsyn. Handboltakonan Stein- unn Björnsdóttir er íþróttamaður Fram 2019; rétt eins og 2018 og 2016. Hún er fædd 1991 og hefur alltaf leikið með Fram. Hóf að leika með meistaraflokki félagsins í hand- knattleik kvenna veturinn 2009-2010 og á þar nú að baki hátt í 300 leiki, auk 35 landsleikja. Er lýst sem leik- manni er geri samherja sína betri og er því góður fulltrúi glæsilegra íþróttakvenna í Fram. Linda gaf tóninn Í Val var körfuknattleikskonan Helena Sverrisdóttir íþróttamaður ársins. Helena átti stóran þátt í að Valur varð á árinu 2019 deildar-, bik- ar- og Íslandsmeistari. Helena gekk í raðir Vals á miðju síðasta tímabili og voru Valskonur óstöðvandi eftir það. Í Þrótti var knattspyrnukonan Linda Líf Boama valin íþróttamaður skoraði hún þrennu og gaf tóninn fyrir sumarið. Var lykilmaður í meistaraliði Þróttar og skoraði alls 22 mörk í 18 leikjum. Er nú komin í úrvalslið 1. deildar og í U19 lands- liðið. Fyrirmyndir og árangur Í íþróttafélögum og byggðum landsins hafa íþrótta- menn ársins 2019 verið valdir að undanförnu. List- inn er langur og afrekin mikil. Að gera samherja sína betri hlýtur að vera eftirsóknarverð umsögn. Ljósmynd/Einar Ásgeirsson Fylkir Tilefnd sem íþróttafólk ársins. Frá vinstri: Ólafur Engilbert Árnason karate, Valdimar Þór Ingimundarson og Cecilía Rán Rúnarsdóttir úr knattspyrnudeild, Katharina Sybilla Jóhannsdóttir fimleikar, Gabríel Einarsson bróðir Margrétar Einarsdóttur handboltakonu, Iveta Ivanova karate og Björn Gíslason, formaður Fylkis. Fjölnir Eygló Ósk Gústafsdóttir sundkona og Úlfar Jón Andrésson íshokkí- maður voru valin íþróttafólk félagsins. Eygló stefnir nú í þriðja sinn á ÓL. Ljósmynd/Þorgils G. Gunnþórsson Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Valur Helena Sverrisdóttir er kná í körfubolta og íþróttamaður ársins. Hjónin Lilja Björk Ólafs-dóttir og GuðmundurMagni Þorsteinsson voru valin Fjölnismaður ársins 2019. Íþróttamenningin í Grafarvogi er sterk og hlaupahópur Fjölnis hef- ur lengi verið við lýði. Þau hjónin byrjuðu að hlaupa árið 1995, þá um fertugt. Þá voru börnin þeirra fjögur komin á legg og tíminn til að leggja rækt við eigin áhugamál orðinn rýmri en var. Sex stærstu maraþonhlaup heims eru í London, New York, Boston, Berlín, Tókýó og Chicago og hafa þau Linda Björk og Guð- mundur Magni lokið þeim öllum. Það hafa um 30 aðrir Íslendinga gert sem allir eru í klúbbnum Abbott World Marathon Majors. Um 6.000 manns í heiminum geta státað af að hafa tekið öll þessi stærstu hlaup heims. Þóttu þau því vel að því komin að vera valin Fylkisfólk ársins. Bolti og bókarastörf Starf með íþróttafélögum er meira en bara æfingar og þátt- taka í leiknum. Mörgu þarf að sinna í fjölmennum félögum þar sem oft er talsverður asi og fyrir- gangur. Í hópi þeirra sem fengu viður- kenningu Fylkis í Árbænum um áramót var Jakob Halldórsson sem fékk heiðurskross, æðstu viðurkenningu félagsins. Krossinn geta aðeins 20 manns borið í senn og er Jakob sá 12. sem viðurkenn- inguna hlýtur. Jakob var á sínum tíma leikmaður félagsins í knatt- spyrnu og þjálfari þess flokks í fótboltanum sem vann fyrsta titil félagsins. Þá var Jakob formaður Fylkis 1981-1982 og starfaði þar að auki sem bókari knattspyrnu- deildar og bókari félagsins í um tuttugu ár, auk annarra félags- starfa. Magnað maraþonfólk og öflugur Fylkismaður Heimshlaup og heiðurskross Ljósmynd/Einar Ásgeirsson Þátttaka Jakob Halldórsson hefur sinnt margvíslegum störfum á vettvangi Fylkis. Með á myndinni hér er Elsa dóttir Jakobs, fjármálastjóri félagsins. Ljósmynd/Þorgils G. Gunnþórsson Hlauparar Lilja Björk Ólafsdóttir og Guðmundur Magni Þorsteinsson eru Fjölnisfólkið 2019. Hér eru þau með Jóni Karli Ólafssyni, formanni félagsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.