Morgunblaðið - 04.01.2020, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 04.01.2020, Blaðsíða 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2020 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Víóluleikarinn Ásdís Valdimarsdóttir hefur hlotið lofsamlega gagnrýni fyr- ir hjómplöturnar The Voice of the Viola in Times of Oppression, Vol. I og II, sem hún vann í samstarfi við hollenska píanóleikarann Marcel Worms og gefnar voru út af hol- lenska plötuútgáfunni Zefir Records. Hefur útgáfan verið tekin til kost- anna af hinum ýmsu tónlistar- gagnrýnendum, m.a. á hollensku vefjunum Opus Klassiek og Basia con fuoco. Ásdís er einn fremsti víóluleikari Íslands, hlaut meistaragráðu frá hin- um virta listaháskóla Juilliard í New York og lauk síðar einleikaraprófi í Þýskalandi, árið 1987. Hún hefur komið víða við á glæsilegum ferli sín- um, leikið í sex heimsálfum og var um átta ára skeið í hinum heimsþekkta strengjakvartett Chilingirian sem hún lék með hér á landi á Listahátíð í Reykjavík árið 1998. Þá hefur hún leikið í mörgum bestu tónleikasölum heims, m.a. Carnegie Hall í New York og Wigmore Hall í London, leitt víóluhópinn Deutsche Kammerphil- harmonie og unnið með fjölda þekktra tónlistarmanna. Stærri rödd „Þetta er tónlist samin að mestu í kringum millistríðsárin af tón- skáldum sem þurftu að flýja ein- hverra hluta vegna,“ segir Ásdís um The Voice of the Viola in Times of Oppression sem gefin var út á tveim- ur diskum, sem fyrr segir, hinum fyrri í september 2018 og hinum seinni í apríl 2019. Á diskunum má m.a. finna verk eftir Mieczysław Weinberg, Dick Kattenburg, Max Vredenburg, Dmitri Shostakovitsj og Felix Mendehlsson. Spurð út í hina jákvæðu dóma seg- ir Ásdís að útgáfan hafi ratað á nokkra lista yfir þær bestu á árinu 2018 og nefnir einnig að hollenska tímaritið Luister, sem þýðir „hlust- ið“, hafi gefið plötunni fullt hús stiga, eins og fleiri miðlar. Ásdís hefur leikið inn á margar plötur með kammersveitum en þess- ar eru þær fyrstu sem hún gerir með píanista. Hún segir að mörgu leyti skemmtilegra að vinna að plötu með einum tónlistarmanni en mörgum. „Þetta er meira þitt eigið,“ útskýrir hún, „í kammermúsíkinni er ég meira í milliröddunum sem víóluleikari en ef maður er bara að spila sónötur hefur maður stærri rödd, leikur stærra hlutverk.“ Næsta hljómdisk tekur hún upp í febrúar strengjatríói sínu, Quimias Trio og mun hann innihalda öll strengjatríó Beethovens. Diskurinn verður gefinn út af sama fyrirtæki og The Voice of the Viola in Times of Oppression, Zefir Records, í haust. Leikur í Hörpu 15. mars Ásdís býr og starfar í Amsterdam en var stödd á Íslandi þegar blaða- maður sló á þráðinn til hennar. Hún kennir nú við Konunglega tónlistar- háskólann í Haag en í tæp tíu ár flaug hún vikulega til Manchester til að kenna þar við Royal Northern Coll- ege of Music, einn þekktasta tónlist- arskóla heims. Hún er önnum kafin sem víóluleikari, leikur í einum kammerhópi í London og tveim öðr- um í Amsterdam, auk þess að leika með hinum og þessum hér og þar. „Í mars kem ég með vini mína til Íslands að spila tvo stóra píanókvint- etta fyrir Kammermúsíkklúbbinn,“ segir Ásdís. Tónleikarnir fara fram í Hörpu 15. mars og verða það sjöttu tónleikar Kammermúsíkklúbbsins á tónleikaárinu 2019-20. Rússneski píanóleikarinn Elisa- veta Blumina kemur fram á tónleik- unum ásamt fiðluleikurunum Daniel Sepec og Konsatnze Lerbs. Sepec er konsertmeistari þýsku kammer- fílharmóníusveitarinnar í Bremen og Lerbs leikur einnig þar. Eiginmaður Ásdísar, Michael Stirling, sem leiðir sellóin í Hollensku útvarpsfílharm- óníunni, leikur einnig með og munu þau flytja píanókvintett op. 18 eftir M. Weinberg og píanókvintettinn fræga op. 81 eftir A. Dvorák. Saknar sundlauganna Ásdís hefur búið erlendis frá 18 ára aldri, allt frá því hún hélt til náms í New York. Hún er spurð að því hvort hún sé laus við heimþrána og segir hún svo ekki vera. „Ég var alltaf á leiðinni heim en alltaf kom eitthvað spennandi upp á sem hélt mér úti lengur,“ segir hún kímin. Nú síðast hafi hún keypt sér rándýra flugmiða til Íslands á síðustu stundu til að geta heimsótt fjölskylduna og farið í sund. „Eitt af því sem ég sakna mest frá Ís- landi er að komast í laugarnar. Það eru sundlaugar í Amsterdam en þær eru bara engan veginn sambærilegar, hafa ekki þetta íslenska heita vatn sem er svo æðislegt. Ég kem heim eins oft og ég get, líka næstkomandi sumar til að vera með í Reykholts- hátíðinni,“ segir Ásdís. Rödd víólunnar á tímum kúgunar  Ásdís Valdimarsdóttir víóluleikari hefur hlotið lofdóma fyrir tvær hljómplötur sem hún vann með píanóleikaranum Marcel Worms  Verk eftir tónskáld sem sættu ofsóknum  Leikur í Hörpu í mars Ljósmynd/Ben Bonouvrier Einbeitt Ásdís á tónleikum með hljómsveit sinni á International Viola Congress í Rotterdam árið 2018. Flutti hún þar sónötu eftir Weinberg og fleiri verk. Við hlið hennar sést hollenski píanistinn Marcel Worms sem vann með henni að diskunum The Voice of the Viola in Times of Oppression. Stórsveit Reykjavíkur fagnar nýju ári með hinum árlegum sveiflu- aldartónleikum sínum í Eldborgar- sal Hörpu, annað kvöld, sunnudag og hefjast þeir kl. 20. Þetta verður í sjöunda sinn sem sveitin heldur slíka stórtónleika helgaða swing-tímabilinu eða gull- öld sveiflunnar en svo er tímabil ár- anna 1930 til1950 iðulega kallað, en ný efnisskrá er flutt á hverju ári. Í tilkynningu segir að þetta verði glæsilegir galatónleikar þar sem ekkert verði „til sparað við að end- urskapa frumgerðir glæsilegustu laga gullaldarinnar. Leikin vera mörg af þekktustu lögum merkustu stórsveita swing-stílsins“ svo sem eftir Benny Goodman, Artie Shaw, Jimmy Lunceford, Cab Calloway, Charlie Barnet, Les Brown, Glenn Miller, Duke Ellington og Count Basie. Gestasöngvarar með stórsveit- inni á tónleikunum verða þau Björgvin Franz Gíslason, KK og Stína Ágústsdóttir. Einnig koma dansarar í heimsókn. Stjórnandi og kynnir eins og svo oft áður verður saxófónleikarinn og tónskáldið Sigurður Flosason. Í frétt í blaðinu í gær var rang- lega getið um dagsetningu tón- leikanna og hverjir yrðu gestir á tónleikunum. Er beðist velvirð- ingar á þeim mistökum. Sveiflumeistarar Meðlimir Stórsveitar Reykjavíkir á góðum degi. Þeir flytja sívinsæla gullaldarsveiflutónlist í Hörpu á morgun. Gullaldarsveifla  Stórsveit Reykjavíkur í Eldborg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.