Morgunblaðið - 04.01.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 04.01.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2020 Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Jólin verða kvödd með samkomum víða um land um helgina og á þrett- ándanum sem nú ber upp á mánu- dag. Hefð er fyrir því að efna til úti- skemmtana með brennu, dansi og söng. Þar koma fram álfar, tröll og jólasveinar. Fólk kemur saman við brennurnar með kyndla, skýtur upp síðustu flugeldunum frá áramót- unum og syngur saman áramóta- og álfasöngva. Í Vestmannaeyjum er hátíðin þeg- ar hafin og var þrettándagleði ÍBV og Íslandsbanka haldin í gærkvöldi með flugeldasýningu, blysför og álfabrennu. Kvöldið áður var söng- skemmtun í Höllinni. Flestar samkomurnar verða á þrettándanum sjálfum á mánudag. Svo tekin séu nokkur dæmi þá verð- ur þrettándagleði í Hlöðunni í Gufu- nesbæ í Grafarvogi. Hefst sam- koman kl. 17 og klukkutíma síðar verður kveikt í brennu. Í Hafnarfirði er samkoman á Ásvöllum og hefst kl. 18 og lýkur með flugeldasýningu kl. 19. Í Reykjanesbæ hefst samkoman með blysför frá Myllubakkaskóla kl. 18 að hátíðarsvæði við Hafnargötu 8. Þar verður brenna og boðið upp á kakó. Að auki býður Björgunarsveit Suðurnesja upp á flugeldasýningu. Í Mosfellsbæ hefst samkoman með blysför frá Miðbæjartorginu kl. 17:30. Boðið er upp á brennu og flug- eldasýningu. Mæti í búningum Á Akranesi verður þrettánda- brenna við þyrlupallinn á Jaðars- bökkum. Blysför þangað hefst við Þorpið kl. 17. Eftir brennu er boðið í íþróttahúsið þar sem tilkynnt verður um val á íþróttamanni ársins. Á Sel- fossi verður farin blysför frá Tryggvaskála kl. 20 að brennustæði á tjaldstæði Gesthúsa þar sem kveikt verður í þrettándabálkesti. Einnig verður flugeldasýning. Bæj- arbúar eru hvattir til þess að mæta í trölla-, álfa- eða jólasveinabún- ingum. Í Ólafsvík verður gengið kl. 18 frá Pakkhúsinu að brennu rétt innan við félagsheimilið á Klifi. Flugeldasýning verður við brenn- una. Á Húsavík verður efnt til brennu við Sandvík kl. 17. Grímuball verður í Skúlagarði eftir brennuna. Á Siglufirði hefur þrettándagleði á mánudag verið frestað vegna ofan- komu og slæmrar spár. Samkomur um helgina Akureyringar taka forskot á sæl- una með þrettándagleði Þórs í dag kl. 16. Verður hún á planinu við Hamar og hefst með blysför frá Glerárskóla. Í Borgarnesi verður samkoman kl. 16 á morgun, sunnu- dag, í Hjálmakletti þar sem tilkynnt verður um kjör á íþróttamanni árs- ins. Síðan verður farin kyndilganga að Englendingavík þar sem boðið er upp á flugeldasýningu. Einnig verð- ur þrettándagleði á Ísafirði á morg- un kl. 14 á sal Grunnskólans. Sýnd verða brot úr leikritum og flutt álfa- og þrettándaljóð. Morgunblaðið/Árni Sæberg Þrettándinn Löng hefð er fyrir þrettándabrennum í Mosfellsbæ. Þar var þessi mynd tekin fyrir tveimur árum. Jólin kvödd með sam- komum víða um land  Hefð fyrir þrettándabrennum  Víða flugeldasýningar Atvinna Landsréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að hafna kröfu lögreglunnar um að Kristján Gunnar Valdimarsson, lektor við Háskóla Íslands og lög- maður, sæti áframhaldandi gæslu- varðhaldi. Kristján hefur verið til rannsóknar vegna gruns um að hafa brotið gegn þremur konum kynferðislega og svipt þær frelsi. Hann var handtekinn á jólanótt og sat í gæsluvarðhaldi til 29. desem- ber. Vildi lögreglan að hann yrði áfram í haldi í fjórar vikur og bar við hættu á að Kristján bryti af sér aftur. Í tilkynningu lögreglu segir að rannsókn málsins sé í fullum gangi og miði vel. Kristján Gunnar ekki í varðhald Ten Points 28.990 kr. 20.293 kr. Garðatorg 4 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is 30- 60% afsláttur af útsöluvörum Nú er tími til að etja mannbrodda á skóna þína Eigum mikið úrval Við erum hér til að aðstoða þig! - Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður - Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum EIRVÍK FLYTUR HEIMILISTÆKI INN EFTIR ÞÍNUM SÉRÓSKUM Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is Leit björgunarsveita að Andris Kalvans á Snæfellsnesi og Rimu Grunskyté Feliksardóttur við Dyr- hólaey bar ekki árangur í gær. Ekki verður leitað í dag vegna veðurs. Á annað hundrað björgunarsveit- armenn voru við leitina að Andris í gær og margir voru einnig við leit- ina að Rimu. Leitarskilyrði á báðum stöðum voru frekar slæm, þótt veður hafi verið bjart. Snjóflóðahætta er í fjalllendi Hnappadals. Ekki hefur verið ákveðið með framhald leitar á Snæfellsnesi. Að óbreyttu verður ekki efnt aftur til stórrar leitar við Dyrhólaey. Árangurslaus leit að týndu fólki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.