Morgunblaðið - 04.01.2020, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 04.01.2020, Blaðsíða 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2020 ICQC 2020-2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is LOKAKAFLINN Í SKYWALKER SÖGUNNI Ævintýramyndin Jum-anji, frá árinu 1995,hlaut heldur dræmarviðtökur gagnrýn- enda en mikla aðsókn, enda ævin- týramyndir fyrir alla fjölskylduna heldur fátíðar, því miður. Segir í henni af tveimur börnum sem sogast inn í ævintýraheim borðspilsins Jumanji og hitta þar fyrir karl sem hvarf með dularfullum hætti fyrir aldarfjórðungi. Þurfa þau að klára spilið með aðstoð hans og móður þeirra til að koma í veg fyrir miklar hörmungar. 22 árum síðar, árið 2017, kom svo út sjálfstætt framhald kvikmyndar- innar, Jumanji: Welcome to the Jungle. Þótti hún nokkru skárri en samt sem áður rétt yfir meðallagi í gagnrýni. Segir í myndinni af fjórum unglingum, tveimur stúlkum og tveimur drengjum, sem sogast inn í tölvuleikinn Jumanji og birtast þar í formi fullorðins fólks sem leikið er af Dwayne Johnson, Karen Gillan, Kevin Hart og Jack Black. Þessir fjórir leikarar endurtaka leikinn í nýjustu myndinni, Jumanji: The Next Level, sem hlotið hefur svip- aðar viðtökur og sú síðasta. Nú missti ég af fyrri myndinni með Johnson og félögum en geri ráð fyrir að hún sé býsna svipuð þeirri nýjustu. Að þessu sinni eru táning- arnir fjórir um tvítugt og einn þeirra, Spencer, byrjaður í háskóla og hefur slitið fjarsambandi við kær- ustuna sína, Mörthu. Hann heldur heim til mömmu sinnar í jólafrí og ákveður þar að flýja grámyglulegan hversdagsleikann og halda á ný inn í ævintýraheim Jumanji. Afi hans, Eddie, leikinn af hinum bráð- skemmtilega Danny DeVito, býr hjá mömmu hans og fær gamlan vin í heimsókn, Milo, leikinn af Danny Glover. Er sá heldur hægur í hugsun og gefinn fyrir að segja langar sög- ur. Glover og DeVito ná vel saman og eru langskemmtilegustu leikarar myndarinnar sem er miður þar sem þeir koma mjög stutt við sögu. Fyrir mistök sogast gömlu mennirnir inn í Jumanji-heiminn en annarri vin- kvennanna, Bethany, tekst ekki að komast inn. Hún kemur síðar við sögu í leiknum í líki hests. Afi gamli tekur sér bólfestu í Johnson, vinur hans Milo í Kevin Hart, Martha birt- ist í gervi hörkukvendisins Ruby sem Karen Gillan leikur og Fridge, annar strákanna, í gervi prófessors sem Jack Black leikur. Gengur svo hið takmarkaða grín myndarinnar að mestu út á hversu sátt eða ósátt þau eru við þessa líkama. Afi gamli er hæstánægður með að vera hinn stóri og sterki Johnson og reynir vöðvatröllið sitt besta þegar kemur að því að herma eftir DeVito. Út- koman er heldur slök enda Johnson takmarkaður leikari sem fer betur að leika í hasarmyndum. Hart fær úr heldur litlu að moða en stendur sig ágætlega líkt og Black. Inn á milli atriða sem eiga að vera fyndin eða sniðug koma æsileg hasaratriði þar sem tölvuteiknibrellur eru notaðar óspart, t.d. þegar mikið stóð ofvax- inna strúta er á eftir söguhetjunum eða þegar sægur af blóðþyrstum mandrílum reynir að éta þær. Þessi atriði ættu að skemmta yngri áhorf- endum en hamagangurinn verður þreytandi þegar á líður og gagnrýn- andi stóð sig ítrekað að því að líta á úrið. Grunnhugmynd Jumanji-mynd- anna, að sogast inn í ævintýraheim borðspils eða tölvuleiks og þurfa að leysa þrautir til að komast út aftur, ætti að vera efniviður í eitthvað snið- ugt og skemmtilegt, möguleikarnir óþrjótandi en því miður virðast handritshöfundar, þrír talsins, hafa þjáðst af hugmyndaskorti og and- leysi. Sagan er fyrirsjáanleg og allt- of mikið um endurtekið grín og þunna brandara. Jack Black er feit- ur prófessor, Johnson ræður varla við eigin líkamsstyrk og Hart getur ekki hætt að tala. Og til að bæta gráu ofan á svart er Ruby varla með persónuleika, hún er sæta stelpan í hópi hetjanna og rödd skynseminn- ar. Þrautin sem á að leysa er síðan svo óspennandi og vondi karlinn svo litlaus að syfjan sækir að manni. Kvikmyndin hefur þó náð því sem hlýtur að hafa verið aðalmarkmiðið með gerð hennar: að græða sem mest og lokka fjölskyldur í bíó í des- ember. Tekjur af miðasölu eru, þeg- ar þetta er skrifað, að minnsta kosti þrefalt hærri en framleiðslukostn- aður sem þýðir væntanlega, og því miður, að enn ein slaka Jumanji- myndin verður framleidd. Við skul- um þó halda í vonina um að nú sé sagan öll og að Johnson og félagar finni sér eitthvað betra að gera. Andlaust ævintýri Endurtekning Black, Hart, Johnson og Gillan í Jumanji: The Next Level sem er endurtekningasöm og spennulítil. Sambíóin Egilshöll, Laugarás- bíó, Háskólabíó og Smárabíó Jumanji: The Next Level bbnnn Leikstjórn: Jake Kasdan. Handrit: Jake Kasdan, Jeff Pinkwner og Scott Rosen- berg. Aðalleikarar: Karen Gillan, Dwayne Johnson, Jack Black, Kevin Hart og Awkafina. Bandaríkin, 2019. 123 mín. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR Pétur Ármannsson hefur verið ráð- inn dramatúrg í listrænu teymi Borgarleikhússins, að því er fram kemur í tilkynningu frá leikhúsinu og hefur hann störf 8. febrúar og mun jafnframt leikstýra einni sýn- ingu á næsta leikári, 2020-2021. „Mér finnst þetta spennandi áskorun fyrir mig sem listamann og ætla að reyna að takast á við hana af alúð,“ er haft eftir Pétri og að í hans listsköpun hafi hann verið mjög upp- tekinn af dramatúrgíu og auk þess haft mikinn áhuga á öllum hlutum leikhússins. „Ég hef reynslu af því að vinna í mismunandi kimum list- formsins, m.a. í dansi og gjörninga- leikhúsi, þannig að mér finnst spennandi að koma með þá þekk- ingu inn í Borgarleikhúsið,“ segir Pétur sem útskrifaðist sem leikari frá Listaháskóla Íslands árið 2012 og sótti starfsnám í leikstjórn hjá samtímaleikhúsinu Schaubühne í Berlín árið 2013. Hann rekur sviðs- listahópinn Dance For Me ásamt eig- inkonu sinni Brogan Davison og hlutu þau menningarverðlaun DV árið 2013 fyrir sýninguna Dansaðu fyrir mig. Pétur og Brogan hafa sýnt verk sín víða um heim og hefur Pétur einnig unnið sem leikstjóri fyrir Íslenska dansflokkinn og Borgarleikhúsið og var tilnefndur sem leikstjóri ársins 2019 fyrir Club Romantica sem hlaut Grímuna í fyrra sem leikrit ársins. Dramatúrg Pétur Ármannsson. Pétur ráðinn dramatúrg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.