Morgunblaðið - 04.01.2020, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 04.01.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2020 Söfnum í neyðarmatar- sjóð fyrir jólin til matarkaupa hjá Fjölskylduhjálp Íslands fyrir þá fjölmörgu sem lægstu framfærsluna hafa. Þeim sem geta lagt okkur lið er bent á bankareikning 0546-26-6609, kt. 660903-2590. Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ. Neyðarsöfnun í matarsjóðinn Guð blessi ykkur öll Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is ÚTSALAN 30-50% ER HAFIN Skoðið laxdal.is Skipholti 29b • S. 551 4422 STÓRÚTSALA HAFIN GERRY WEBER - TAIFUN - BETTY BARCLAY JUNGE - FUCHS SCHMITT OG FL. á gæðamerkjavöru 30% - 40% - 50% Dúnúlpur og ullarkápur Opið frá 11-15 Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook ÚTSALA 40-50% afsláttur Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Áhorf á Áramótaskaup RÚV virðist hafa verið mjög sambærilegt við áhorf undanfarinna ára. Samkvæmt bráðabirgðatölum var meðaláhorfið 73%, uppsafnað áhorf 73% og hlut- deild, þ.e. hlutfall þeirra sem voru að horfa á sjónvarp á sama tíma og Ára- mótaskaupið var sýnt og með stillt á RÚV, 99,7%, sem er með mesta hlut- falli sem sést hefur. Þetta segir Skarphéðinn Guð- mundsson, dagskrárstjóri RÚV, í svari við fyrirspurn Morgunblaðsins. Hann segir að þetta þýði að áhorfið tvö síðustu árin hafi verið meira en ár- in á undan þegar meðaláhorf á frum- sýningu mældist um 70%. Að fenginni reynslu síðustu ára megi búast við að endanlegar áhorfstölur verði um eða yfir 80% eftir að tekið hefur verið tillit til hliðraðs áhorfs, eða alls áhorfs utan línulegrar dagskrár, sem verður meira og meira með hverju árinu. „Þá ber að geta þess að áhorf fer jafnan nærri 40% á endursýningu á Skaupinu, auk þess sem áhorf á ein- staka atriði á vefnum og samfélags- miðlum fer ört vaxandi og þá sérstak- lega nú í ár þegar í fyrsta sinn er hægt að nálgast öll atriði Skaupsins ein og sér, til áhorfs og deilingar á samfélagsmiðlum,“ segir Skarphéð- inn. Beinn kostnaður RÚV vegna Ára- mótaskaupsins 2019 var 34 milljónir króna, eða sem nemur því sem RÚV greiddi framleiðslufyrirtækinu Repu- blik fyrir að framleiða Skaupið. Skaupið enn mjög vinsælt  Meðaláhorf á Áramótaskaup RÚV var 73%  Beinn kostnaður við framleiðsluna í ár nam 34 milljónum króna Morgunblaðið/Hari Skaupið Frá upptökum á Áramótaskaupinu í haust. Atvinna Magnús Óskarsson, kennari við Bændaskól- ann á Hvanneyri, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi 28. desember sl. Hann varð 92 ára. Magnús fæddist á Saurum í Hraunhreppi í Mýrasýslu 9. júlí 1927. Foreldrar hans voru Óskar Eggertsson, bú- stjóri í Kópavogi og síð- ar húsvörður við barna- skólann á Kársnesi, og Guðrún Einarsdóttir húsfreyja. Hann útskrifaðist sem búfræði- kandídat frá Bændaskólanum á Hvanneyri árið 1953. Hann var að- stoðarmaður við tilraunastöðina Askov í Danmörku, las sem óreglu- legur nemandi við Búnaðar- háskólann í Kaupmannahöfn og var síðar við landbúnaðarháskóla og stofnanir í öðrum löndum. Ævistarf Magnúsar var kennsla við Bændaskólann á Hvanneyri, síð- ar Landbúnaðarháskóla Íslands. Hann var kennari þar frá árinu 1955 til ársins 1997 að hann lét af störfum vegna aldurs. Hann var yfir- kennari bændadeildar og tilraunastjóri um árabil. Þá sat hann í tilraunaráði landbún- aðarins og búfræðslu- nefnd. Áburðarfræði var aðalgrein Magn- úsar og er hann höf- undur greina og kennslubóka í faginu og fleiri kennslugrein- um. Einnig var hann mikill áhugamaður um matjurtarækt og vann að tilraunum og fræðslu á því sviði. Eftir að Magnús lét af störfum á Hvanneyri kenndi hann við Garð- yrkjuskóla ríkisins og var ráðunaut- ur hjá Áburðarverksmiðju ríkisins. Magnús var í mörg ár fulltrúi í hreppsnefnd Andakílshrepps og eitt ár formaður Náttúruverndar- samtaka Vesturlands. Magnús bjó í Kópavogi eftir að hann lét af störfum á Hvanneyri. Út- för hans verður gerð frá Kópavogs- kirkju 22. janúar nk. kl. 13. Andlát Magnús Óskarsson kennari á Hvanneyri Sex umsóknir bárust um stöðu ríkissáttasemjara sem félagsmála- ráðuneytið auglýsti í síðasta mán- uði. Umsækjendur eru Aðalsteinn Leifsson framkvæmdastjóri, Gylfi Arnbjörnsson, hagfræðingur og fyrrverandi forseti ASÍ, Herdís Hallmarsdóttir lögmaður, Lara De Stefano þjónn, Ólafur Þorsteinn Kjartansson ráðgjafi og Rannveig S. Sigurðardóttir, hagfræðingur og varaseðlabankastjóri. Bryndís Hlöðversdóttir, fráfar- andi ríkissáttasemjari, sagði starfi sínu lausu í haust til að taka við starfi ráðuneytisstjóra í forsæt- isráðuneytinu. Helga Jónsdóttir mun sinna starfinu uns nýr rík- issáttasemjari verður ráðinn. Umsóknirnar verða nú metnar af sérstakri ráðgefandi hæfnisnefnd. Eftirtaldir hafa verið tilnefndir til setu í nefndinni: Drífa Snædal, for- seti ASÍ, og Eyjólfur Árni Rafns- son, formaður SA. Auk þess mun ráðherra skipa Gissur Pétursson ráðuneytisstjóra formann nefnd- arinnar. Rannveig og Gylfi meðal umsækjenda Gylfi Arnbjörnsson Rannveig Sigurðardóttir Tveir karlmenn voru í gær dæmdir í fjögurra og fimm ára óskilorðs- bundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir stórfellt fíkni- efnalagsbrot. Mennirnir, Georgian- Alin Sarban og Sorin Sarban sem eru báðir rúmenskir ríkisborgarar, fluttu tæplega fimm og hálft kíló af kókaíni til landsins sem farþeg- ar með flugi frá Düsseldorf í Þýskalandi til Keflavíkur í sept- ember á síðasta ári. Játuðu þeir þau brot sem þeim voru gefin að sök. Dómur Georgian-Alin Sarban er vægari bæði vegna aldurs hans, en hann var 19 ára þegar brotið var framið, og vegna framburðar Sorin Sarban, bróður hans, þess efnis að hann hefði fengið bróður sinn með í ferðina án þess að greina honum frá því hver tilgangur hennar væri. Bræður í fangelsi fyrir kókaínsmygl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.