Morgunblaðið - 04.01.2020, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.01.2020, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2020 Mikil sala! Góður sölutími framundan. Óskum eftir öllum tegundum eigna á skrá. Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is www.gimli.is Halla Unnur Helgadóttir Viðskiptafræðingur / löggiltur fasteignasali s 659 4044 / halla@gimli.is Nánari upplýsingar og aðstoð má fá með því að senda fyrirspurn á netfangið upplysingar@reykjavik.is eða í síma 411 1111. www.reykjavik.is Á vef Reykjavíkurborgar undir „mínar síður“ geta fasteignaeigendur: • skoðað álagningarseðil fasteignagjalda (eftir 27. janúar 2020) og alla breytingarseðla þar á eftir • skráð sig í boðgreiðslu fasteignagjalda • gefið upp reikningsnúmer ef til endurgreiðslu kemur • óskað eftir að fá senda greiðsluseðla fyrir fasteignagjöldum þar sem þeir verða, líkt og áður, ekki sendir út til greiðenda, 18-77 ára • sent inn erindi vegna fasteignagjalda Fasteignagjöld ársins 2020, yfir 25.000 kr., greiðast með níu jöfnum greiðslum á gjalddögum 1. febrúar, 2. mars, 4. apríl, 3. maí, 1. júní, 5. júlí, 2. ágúst, 1. september og 3. október. Gjalddagi fasteignagjalda undir 25.000 kr. er 1. febrúar. Fasteignagjöld í Reykjavík verða innheimt í netbönkum. Fasteignaeigendum er jafnframt bent á beingreiðslur hjá öllum bankastofnunum og boðgreiðslur af greiðslukortum. Álagningar- og breytingarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík 2020 verða aðeins birtir á vefsíðunni island.is og á Rafrænni Reykjavik á árinu 2020. Álagningar- og breytingarseðlarnir verða ekki sendir í pósti í samræmi við breytingu sem gerð var á lögum nr. 4/1995 sem tók gildi 1. janúar 2019, en þá er sveitarstjórn heimilt að senda tilkynningu um álagningu fasteignaskatts rafrænt. Nú standa yfir viðgerðir á sjó- varnargarðinum við Norðurströnd á Seltjarnarnesi, rétt hjá hákarla- hjallinum, sem setur svip sinn á umhverfið. Heildarlengd sjóvarna sem verða endurnýjaðar er um 220 metrar. Oft er brimasamt á þessum stað, enda fyrir opnu hafi. Að sögn Gísla Hermannssonar, sviðsstjóra umhverfissviðs bæj- arins, í frétt á heimasíðu hans, hef- ur sjóvarnargarðurinn á þessum stað látið á sjá og kvarnast veru- lega upp úr honum á nokkrum stöðum. Vegagerðin sér um eftirlit með þessu viðhaldsverkefni sem mun standa yfir næstu vikur. JG vélar, Reykjavík sjá um fram- kvæmdina, en fyrirtækið átti lægsta tilboð í verkið. Alls bárust fimm tilboð í verkið. Lægsta tilboðið var 6,8 milljónir króna, eða 77,5% af kostnaðar- áætlun, sem var 8,8, milljónir. Til- boð JG véla var langlægst. Næst- lægsta tilboðið var frá E. Gíslason ehf., Reykjavík, 10,8 milljónir króna. sisi@mbl.is Morgunblaðið/sisi Sjóvörn Starfsmenn JG véla nota stórvirka gröfu til viðgerða á sjóvarnar- garðinum við Norðurströnd. Fjær sést í hákarlaskúrinn og Gróttuvitann. Sjóvarnargarður á Nesinu lagfærður  Kvarnast hafði úr varnargarðinum Einstaklega fögur glitský mynduðust á Suð- urlandi í gærmorgun og var himinninn í öll- um regnbogans litum í ljósaskiptunum. Jónas Erlendsson, fréttaritari Morgunblaðsins, náði þessari mögnuðu mynd austan við Vík í Mýr- dal á tíunda tímanum. Hann kveðst áður hafa séð glitský á þessu svæði en ekki jafn sterka liti og í gærmorgun. Samkvæmt upplýsingum af vef Veðurstofu Íslands myndast glitský helst um miðjan vet- ur, við sólaruppkomu eða sólarlag. Þau myndast þegar óvenjukalt er í heiðhvolfinu, í 15 til 30 metra hæð. Skýin eru úr ískristöllum eða samböndum ískristalla og saltpéturs- sýruhýdrötum. Síðarnefndu skýin eru þó ekki bara falleg því þau geta valdið ósoneyð- ingu. Mögnuð glitský við Vík í Mýrdal Morgunblaðið/Jónas Erlendsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.