Morgunblaðið - 04.01.2020, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 04.01.2020, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2020 ✝ Friðrika Guð-rún Karlsdóttir (Día) fæddist 28. júní 1933 á Ytra- Hóli í Fnjóskadal. Hún lést á Lög- mannshlíð á Ak- ureyri 14. desem- ber 2019. Foreldrar henn- ar voru Karl Jó- hannesson, f. 13. janúar 1900, d. 3. júlí 1975, og Guðný S. Bene- diktsdóttir, f. 27. mars 1897, d. 28. nóvember 1946. Systkini Díu eru Þorsteinn Gunnar, f. 6. maí 1929, d. 8. desember 1929, Unnur Kristín, f. 6. maí 1929, Jóhanna Sigurrós, f. 16. september 1930, d. 13. apríl 1931, Sigurhanna Þórgunnur, f. 27. apríl 1932, d. 29. apríl 2019, Bene- dikt, f. 11. októ- ber 1934 og Jó- hannes, f. 28. janúar 1938, d. 18. júlí 1972. Día var ógift og barnlaus. Útför hennar fer fram frá Draflastaðakirkju í dag, 4. jan- úar 2020, klukkan 14. Mér finnst ég vera fangi oft og tíðum og fagna yfir hverri stund sem dvín og kysi helst með aftanblænum blíðum að berast heim í æskulöndin mín. Ég reika í huga vítt á vetrarkvöldum og venjulega staðar numið fæ á lágri strönd hjá úthafsbláum öldum, í óskadýrð við lítinn moldarbæ. Allt sem ég ann við þennan bæ er bundið og bernskusporin liggja kringum hann ég horfði þaðan seiddur út á sundið er sólin bakvið fjallahringinn rann. Mér fannst ég bergja af bikar gleði full- um í blómasæng við vorsins ástarljóð því æskan finnur nóg af nýjum gullum í náttúrunnar ótæmandi sjóð. Það væri sælast fjarri heimsins harmi við hafsins tign og dýrð að una sér og hallast mega að blíðrar móður barmi er brandur ömurleikans hjartað sker. Ég vildi geta björgum lífsins bifað og brotist yfir örlaganna hjarn og síðan frjáls við litla bæinn lifað og leikið mér og verið alltaf barn. (Kristján frá Djúpalæk) Elsku Día mín. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Þórdís Þórhallsdóttir. Friðrika Guðrún Karlsdóttir ✝ Björn MagniBjörnsson fæddist 24. apríl ár- ið 1956 á Egils- stöðum. Hann lést á Landspítalanum í Reykjavík 24. des- ember 2019. For- eldrar hans voru Björn Þór Pálsson bílstjóri, f. 22. des- ember 1926, d. 28. september 2012, og Petra Friðrikka Björnsdóttir verkakona, f. 12. janúar 1933. Björn Magni var elstur þriggja systkina; Jóna Pála, f. 20. sept- ember 1964 og Björg, f. 31. ágúst 1969. Björn Magni og Ið- unn Þóra Friðriksdóttir, f. 31. bjó hann um hríð í Sleðbrjótsseli í Jökulsárhlíð. Björn Magni fór einnig til sjós bæði frá Grímsey og Fáskrúðsfirði auk þess sem hann vann sem verkamaður. Þá var hann vinsæll gangnamaður og margir bændur á Fljótsdals- héraði leituðu til hans á haustin. Síðustu 17 ár ævi sinnar vann Björn Magni sem bílstjóri fyrir Fljótsdalshérað og sinnti þar ferðaþjónustu fyrir aldraða og fatlaða, líkt og faðir hans hafði gert. Björn Magni dansaði um árabil með þjóðdansafélaginu Fiðrildunum og ferðaðist víða um heim með þeim. Þá hafði hann mjög gaman af spila- mennsku, bæði bridge og lom- ber og síðustu ár sótti hann oft lombermót norður í land auk þess sem Björn Magni spilaði lomber á sínum heimaslóðum. Útför hans fer fram frá Egils- staðakirkju í dag, 4. janúar 2019, klukkan 11 en jarðsett verður á Valþjófsstað. mars 1970, opin- beruðu trúlofun ár- ið 2000 og giftust árið 2014. Þau eignuðust engin börn. Björn Magni og Iðunn Þóra bjuggu á Egils- stöðum, Árskógum 24a. Björn Magni fór í Framhalds- skólann á Laugum og lauk þaðan námi árið 1973, því næst lá leiðin í Bændaskólann á Hvanneyri það- an sem Björn Magni útskrifaðist sem búfræðingur árið 1975. Björn Magni vann ýmis störf um ævina, lengi vel stóð hugur hans til þess að verða bóndi og Þau tíðindi bárust um líkt leyti og jólakortin voru opnuð að vinur okkar Magni Björnsson hefði látist á aðfangadag. Jólakveðjan sem hljóðaði svo: „Okkar bestu óskir um gleðileg jól og gott og farsælt komandi ár. Þökkum góðu samverustundirnar. Þær eru ógleymanlegar. Jóla- kveðjur. Þóra og Magni“ var lesin trega blandin og á hugann leituðu minningar. Þau Þóra og Magni – en þannig eru þau ævinlega nefnd saman – komu inn í líf okkar fyrir 20 árum þegar við fluttum austur á Hérað og settumst að í Fljótsdal. Frá fyrstu tíð tengdumst við vinabönd- um – traust bönd vináttu, hlýju og kærleika. Magni var hæglátur maður og traustur, vingjarnlegur og hjálp- samur. Slíkum mönnum er gott að kynnast og verða samferða spöl- korn á ævileiðinni. Magni tók að sér að taka þátt í smalamennsku fyrir okkur nokkur haust og létti þannig á skyldum okkur sem fjárbænda og var jafnan boðinn og búinn að greiða götu okk- ar. Þegar við sem áttum heima inn- anvert í Fljótsdalnum áttum að sjá um þorrablótið gekk Magni í lið með okkur og naut þess að taka þátt í þeim galsafengna undirbún- ingi. Hann var dyggur félagi í lom- bernum á Héraði og lét sig ekki vanta þegar Héraðsmenn og spila- félagar úr Húnaþingi leiddu sam- an hesta sína á útmánuðum og hittust á Eyjafjarðarsvæðinu. Við áttum þess kost að deila með Magna og Þóru minnisverð- um stundum. Stundum voru það stundir sorgar við andlát náinna ættmenna en ógleymanleg er stund í Valþjófsstaðarkirkju þegar þau Þóra og Magni staðfestu heit sitt við altari Guðs um að lifa í hjónabandi. Það var ekki margmenni við þá athöfn en eitthvað var það sem fyllti rými þessarar fallegu kirkju þegar þau játuðust hvort öðru og staðfestu það tryggðaband sem þau löngu áður höfðu bundist. Það var eins og orð Páls postula – Kær- leikurinn fellur aldrei úr gildi – tæki yfir stund og stað. Við erum ósegjanlega þakklát fyrir að hafa fengið að eignast hann Magna að vini og við kveðjum hann með söknuði. Fólkinu hans, móður hans henni Petru, systrum hans þeim Björgu og Jónu Pálu og svo eiginkonunni henni Þóru færum við samúðar- kveðjur okkar og biðjum góðan Guð að leiða þau og styrkja í sorg og söknuði. Í Valþjófsstaðarkirkju er oft á jólum sunginn sálmur eftir Fljóts- dælinginn Rögnvald Erlingsson. Í þeim sálmi segir segir á einum stað: Á dimmustu nóttinni Drottinn gaf ljós er dagsbirtu sárast við tregum, og lind þá er sérhverja lífgað fær rós sem ljómar á kærleikans vegum. Það er bæn okkar að þetta ljós sem Rögnvaldur lýsir svo megi lýsa veg allra þeirra sem tengdust honum Magna vinaböndum. Lára G. Oddsdóttir, Sigmar H. Ingason. Við fjölskyldan fluttum vorið 1975 að Fjárræktarbúinu Hesti í Borgarfirði þegar Jón varð þar til- raunastjóri. Fyrsta verkefnið var að ráða fjármenn til þriggja fjár- húsa. Yngsti fjármaðurinn kom austan af Fljótsdalshéraði aðeins nítján ára gamall. Það var Magni Björns- son frá Egilsstaðaþorpi. Hann kom um haustið, fékk að hafa hestinn sinn með sér er hann fékk frá Pétri á Egilsstöðum, hafði verið hjá hon- um um veturinn. Magni varð fjármaður í svoköll- uðum Austurhúsum, fjárhúsin voru frá gamla tímanum og þurfti að stinga út með reku. Það var haft vo- tey í þessum húsum og heyið gefið til fóðurtilrauna. Slæm vinnuað- staða var þar, Magni þurfti að moka heyinu úr gryfjunni og vigta, færa heyið að jötunni og bera það á garðana. Magni var hægur og fylginn sér kvartaði ekki, leysti hlutverkið sem fjármaður prýðilega þrátt fyrir í rauninni óboðlega vinnuaðstöðu. Við áttum sameiginlegt áhuga- mál, hestamennskuna, en ekki höfð- um við mikinn tíma til útreiða. Fór- um stundum um vorið fyrir vinnudag, hann á folanum sínum frá Pétri er hann tamdi um veturinn, fallegur kraftmikill fimm vetra foli. Magni var prúður í samskiptum, góður heimilismaður og varð hon- um vel til vina við syni mína er voru þá innan við fermingu og minnast þeir hans með gleði og söknuði. Um vorið héldu honum engin bönd, hann vildi austur. Síðan hittumst við Magni fyrir austan 2015, höfðum ekki sést í marga áratugi. Hann var bílstjóri fyrir Ferðaþjónustu fatlaðra á Fljótsdalshéraði. Ég naut þjónustu hans stund- um og rifjuðum við upp árið á Hesti. Hann sami samviskusami drengurinn eins og ég þekkti hann. Hans er sárt saknað af þeim fötluðu er nutu þjónustu hans enda mjög ástsæll í starfi. Að leiðarlokum þakka ég Magna trygga vináttu og góð sam- skipti – hann var kallaður burt fyrir aldur fram. Guð blessi minningu hans. Innilegar samúðarkveðjur til eiginkonu, Þóru Friðriksdóttur, móður og systra. Sigríður Laufey Einarsdóttir. Það segir kannski meira um fyrirferðina á okkur systrum en um Magna bróður að til voru þeir sem höfðu ekki hugmynd um vensl okkar. Mangi var stóri bróð- ir okkar, rólegur og aldrei til vandræða. Fámáll og traustur. Þegar von var á yngri systurinni tilkynnti Mangi að honum væri al- veg sama hvort litla barnið yrði drengur eða stúlka, bara að það yrði ekki eins frekt og eldri syst- irin. Honum varð ekki að ósk sinni. Hann lærði því að draga andann djúpt, tók okkur í bónda- beygju þegar honum var nóg boð- ið og hélt okkur þar uns við róuð- umst eða kitlaði okkur þar til við gátum ekki meir. Hann var stríðinn. Gerði góð- látlegt grín að okkur dagana langa allt fram á síðasta dag. En Mangi var líka alltaf til staðar fyrir okkur ef við þurftum hans með. Bóngóð- ur þótt stundum fyndist honum við vera með óttalegt vesen. Hann var ekkert fyrir vesen. Eitt sinn sáum við systur leik- sýningu í Þjóðleikhúsinu í Reykja- vík þar sem Örn Árnason steig fram og söng á sinn einstaka hátt um draumalandið himinheiða. Eftir flutninginn litum við hvor á aðra társtokknar og eftir sýn- inguna kom í ljós að báðum hafði orðið hugsað til brósa okkar undir flutningnum því hvergi leið Manga betur en í sveitinni, uppi á heiði, í náttúrunni. Þar fann hann sig og þar naut hann sín, fróður um allt sem fyrir augu bar. Þar angar sú blómabreiða sem við vitum að umlykur hann nú. Hvíl í friði, elsku bróðir. Jóna Pála og Björg. Björn Magni Björnsson HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Sálm. 6.3 biblian.is Líkna mér, Drottinn, því að ég er magnþrota, lækna mig, Drottinn, því að bein mín tærast af ótta. Ástkær eiginmaður minn, BIRGIR MARINÓSSON, lést á öldrunarheimilinu Hlíð fimmtudaginn 26. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Anna María Jóhannsdóttir Eiginmaður minn, HREINN HAUKSSON, Bræðratungu 11, Kópavogi, lést laugardaginn 21. desember. Að ósk hins látna hefur útförin farið fram í kyrrþey og minningagreinar afþakkaðar. Ragnheiður Þorbjörnsdóttir börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Hugheilar þakkir fyrir samúð, stuðning og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru móður, tengdamóður, dóttur, systur, mágkonu, frænku og afasystur, GUÐLAUGAR BJÖRGVINSDÓTTUR kennara, Laufengi 23, Reykjavík. Sérstakar þakkir fá starfsmenn krabbameinsdeildar LSH, líknardeildar LSH í Kópavogi og HERU, sérhæfðrar líknarþjónustu, fyrir einlæga umhyggju og aðstoð. Megi árið 2020 færa ykkur öllum gæfu, gleði og góðar stundir. Þorgeir Örn Tryggvason Hulda Ósk Bergsteinsdóttir Þ. Björgvin Kristjánsson Matthildur Gestsdóttir Kristján Björgvinsson Hrefna Gunnarsdóttir Matthildur Gunnarsdóttir Jóhann Vignir Gunnarsson Björgvin Smári Kristjánsson Iðunn Elva Ingibergsdóttir Gunnhildur Kristjánsdóttir Hekla Sóley, Snædís Lilja og Friðrik Hrafn Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RAGNAR GUNNLAUGSSON Hátúni, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánudaginn 30. desember. Útförin fer fram frá Glaumbæjarkirkju föstudaginn 10. janúar klukkan 14. Björg Baldursdóttir Finna Guðrún Ragnarsdóttir Garðar Smárason Valgarður Ingi Ragnarsson Jórunn Sigurðardóttir Ragna María Ragnarsdóttir Guðmundur Hreinsson afa- og langafabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ELÍN JÓNSDÓTTIR kennari, til heimilis að Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, lést annan jóladag. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 7. janúar klukkan 13.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög. Aníta L. Þórarinsdóttir Jón Helgi Þórarinsson Erna Þórarinsdóttir Ingibjörg Svafa Siglaugsdóttir og fjölskyldur. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ARNHILDUR JÓNSDÓTTIR, Kópavogsbraut 1a, Kópavogi, lést 26. desember á líknardeildinni í Kópavogi. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 10. janúar klukkan 15. Sigurður Kjartansson Kjartan Örn Sigurðsson Svanborg Matthíasdóttir Sigurborg Sigurðardóttir Sigurður Þorsteinsson og ömmubörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.