Morgunblaðið - 28.01.2020, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.01.2020, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 8. J A N Ú A R 2 0 2 0 Stofnað 1913  23. tölublað  108. árgangur  SÓLIN SKÍN Á RÁÐHÚS- TORGIÐ Á NÝ BILLIE EILISH SÚ YNGSTA HAFA LENGI RENNT TIL HANS HÝRU AUGA Í́ SÉRFLOKKI Á GRAMMY-HÁTÍÐINNI 29 VIÐAR TIL TYRKLANDS 26SÓLARDAGUR Á SIGLUFIRÐI 10 Betolvex Fæst án lyfseðils 1mg (cyanocobalamin) filmuhúðaðar töflur Betolvex inniheldur 1 mg af cyanocobalamin (B12-vítamíni). Betolvex er gefið við B12-vítamínskorti og þegar hætta er á slíkum skorti. Viðhaldsskammtar/ fyrirbyggjandi meðferð: Venjulega 1 tafla á dag. Töflurnar skal helst taka á fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfja- fræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upp- lýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is B-12 A c ta v is 9 1 4 0 3 2 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Vegna óvissuástands er nú verið að fjölga mæli- tækjum við fjallið Þorbjörn nærri Grindavík, gera áætlanir um hugsanlega rýmingu bæjarins og styrkja viðbragð lögreglu í bænum. Eins og sakir standa er ólíklegt að eldgos brjótist út, enda hefur ekki verið staðfest að landris við Þorbjörninn sé vegna kvikusöfnunar í jörðu. Möguleiki á gosi er þó ekki útilokaður en þykir fjarlægur, að minnsta kosti eins og staðan er nú. Tryggja velferð íbúa Á annað þúsund manns mættu á íbúafund sem haldinn var í íþróttahúsinu í Grindavík í gær, þar sem bæjarstjóri og lögregla útskýrðu fyrir fólki hvað væri að gerast. Jafnframt var lögð áhersla á að tryggja velferð íbúa, þá sérstaklega barna og ungmenna. „Aðstæðurnar núna eru óvenjulegar og við hög- um undirbúningi samkvæmt því,“ segir Bogi Adolfsson, formaður björgunarsveitarinnar Þor- björns í Grindavík. Fólk úr sveitinni hefur meðal annars aðstoðað lögreglu við skipulag þess ef flytja þarf íbúa byggðarlagsins á brott, en bænum hefur í því tilliti verið skipt upp í alls 33 reiti. Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðing- ur við Háskóla Íslands, sem talaði á fundinum í gær, segir að ef til eldgoss á þessum slóðum komi verði það líklega vestan við Þorbjörn. Ósennilegt sé að gos á þessum slóðum yrði stórt og hraun varla meira en 20 ferkílómetrar, væri mið tekið af öðrum hraunflákum á þessum slóðum. „Það er nauðsynlegt að allir séu búnir undir eldgos,“ sagði Magnús Tumi og bætti við að líklegast kæmi þarna hraungos og slíkt fæli ekki í sér bráðahættu fyrir nærstadda. Þó gæti orðið mikið eignatjón. Hugað að innviðum Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráð- herra var meðal þeirra sem sóttu Grindavíkur- fundinn í gær. Hún segir að þar hafi mikilvægum spurningum verið svarað enda sé mikilvægt að halda íbúum upplýstum um stöðu mála. „Í ríkisstjórninni fylgjumst við vel með vinnu al- mannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra. Núna þarf meðal annars að huga að þeim innviðum sem gætu beðið hnekki í náttúruhamförum, eins og fjarskiptakerfi og veitum. Ýmislegt hefur nú þeg- ar verið gert, eins og að löggæsla og vetrar- þjónusta vega verður efld á svæðinu,“ sagði dóms- málaráðherra. Jarðskjálfti sem mældist 3,1 að styrk varð 5,6 kílómetra norðnorðaustur af Grindavík rétt fyrir klukkan 19 í gærkvöldi. Nokkrir eftirskjálftar mældust í kjölfarið en þeir voru mun vægari. Óvissuástand í Grindavík Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Íbúafundur Á annað þúsund manns mættu í íþróttahúsið í Grindavík í gær, þar sem lögreglan og fleiri greindu fólki frá stöðu mála og framvindu allri. Umbrot Mælitækjum við Grindavík var fjölgað strax í gær. Fjallið Þorbjörn hér í baksýn.  Brugðist við hættu á Reykjanesi  Varðstaða efld og mælitækjum fjölgað  Rýming bæjar skipulögð  Hugað að velferð íbúa  Ríkisstjórnin fylgist með MLandris á Reykjanesskaga »4, 6, 8  Íslenskt par hefur verið lagt inn á sjúkrahús í Torrevieja á Spáni vegna gruns um að annað þeirra sé sýkt af kórónaveirunni. Frá þessu var greint í spænska fjölmiðlinum Cadenaser í gær- kvöld. Þar segir að parið, 66 ára kona og 52 ára karlmaður, hafi verið í fríi á Alicante þegar annað þeirra fékk hita og kvef. Fólkið leitaði á heilsugæsluna í Alicante vegna þessa og þegar í ljós kom að þau höfðu verið í Wuhan í Kína áður en þau komu til Spán- ar var ákveðið að leggja þau inn. Fólkið hefur verið flutt í ein- angrun á sjúkrahús í Torrevieja og sýni úr þeim sent til Madrídar, að því er segir í frétt spænska miðilsins sem hafði ekki fengist staðfest þegar Morgunblaðið fór í prentun í gærkvöld. »2, 13 Íslenskt par í einangrun á Spáni vegna kórónaveiru  Áætlað er að fyrirtæki landsins muni greiða rúmlega 28 milljarða í fasteignaskatta í ár, næstum því 1% af landsframleiðslu. Í skýrslu Samtaka iðnaðarins kemur fram að fasteignaskattar hafi hækkað um 50% að raunvirði frá árinu 2015 og vakin er athygli á að þeir taki sífellt stærri skerf af tekjum fyrirtækja. Mikill meirihluti atvinnuhús- næðis er skattlagður með lög- bundnu hámarki álagningar, eða 1,65%. Reykjavíkurborg er eina sveitarfélagið af tíu stærstu sem hefur ekki hnikað til álagningar- prósentu fasteignaskatta á fyrir- tæki síðasta áratug. Er nú svo komið að helmingur fasteigna- skatta á fyrirtæki landsins rennur í borgarsjóð, samkvæmt skýrsl- unni, enda hafi fasteignamatið hækkað hratt. Vakin er athygli á því að bæjar- stjórnir Hafnarfjarðar og Kópa- vogs hafi lækkað umrædda skatta á fyrirtæki síðustu ár. »2 Önnur hver króna rennur í borgarsjóð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.