Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.01.2020, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.01.2020, Blaðsíða 19
AFP Tvíhnepptir jakkar verða málið næsta vetur. 19.1. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 LÍFSSTÍLL FORNUBÚÐIR 12, HAFNARFIRÐI | S: 555 0800 | SIGN@SIGN.IS | SIGN.IS Það er ekki seinna vænna að fara aðkynna sér strauma og stefnursumartískunnar svo við séum við- búnar þegar allt góssið lendir í verslun- um landsins og í netverslunum víða um heim. Bleiki liturinn er einn af þeim litum sem verða hvað mest áberandi í vor og sumartískunni. Það er ekki einhvern einn bleikur tónn heldur má taka allt litakort- ið. Allt frá daufbleikum upp í ljósfjólu- bláan. Það fer svolítið eftir húðlitnum okkar hvað hentar okkur best. Síðustu misseri hafa samlitar flíkur verið vinsælar og er þá átt við að vera í jakka og buxum í sama lit eða jafnvel buxum og skyrtum. Víðir kjólar hafa líka verið töluvert vinsælir og verður það áfram. Það góða við víða kjóla er að það er svolítið eins og að vera í jogging-galla að vera í víðum kjól, ekkert þrengir að og manneskjan getur verið frjáls. Ef þú ert ekki búin að koma þér upp einum víðum kjól þá er alveg hugmynd að bæta ein- um í safnið. Bleiki liturinn keyrir upp kvenlega fegurð og ef þú ert í mjög miklu stuði er ekki verra að bæta aðeins á kinnalitinn til að fá fersk- ara útlit. Svo má setja svo- lítið sólar- púður meðfram enninu og niður að eyrum og þá erum við færar í flestan sjó. Bleikur fleytir okkur lengra Tískudrottningar þessa lands eru strax farnar að láta sig dreyma um tískuföt komandi mánaða þótt flestar vaði snjó upp að hnjám þessa dagana. Marta María mm@mbl.is Valentino sló í gegn með The Rockstud- skónum. Þessir ljósbleiku með gull-göddunum eru ansi sum- arlegir og fallegir. Þessi kjóll fæst í H&M. Eins og sést á myndinni er hann bæði fallegur og mjög þægilegur. Munstraður kjóll frá Baum und Pferdgarten kemur með vorið til þín. Bleik dragt frá AKRIS. Hún fæst á Net-A- Porter.com. Leikkonan Karen Gillan var fallega förðuð þegar hún mætti á frumsýn- ingu á Frozen 2. Hér sést hvernig andlitið er skyggt með sólarpúðri og hvernig kinnalitur dregur fram náttúrulega fegurð.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.