Morgunblaðið - 05.03.2020, Blaðsíða 25
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARS 2020
Möguleg
lokun Vínbúðanna
vegna verkfalls BSRB
Nánari upplýsingar um opnunartíma á vinbudin.is
Vegna fyrirhugaðra verkfallsaðgerða BSRB
biðjum við viðskiptavini okkar að hafa í huga
að komið gæti til lokunar Vínbúðanna
mánudaginn 9. mars og þriðjudaginn 10. mars.
MÁN. ÞRI. MIÐ. FIM. FÖS. LAU. SUN.
9 10 11 12 13 14 15
VERKFALL
OPIÐM
A
R
S
Þrjú framboð
hafa borist til
formanns hjá Fé-
lagi eldri borg-
ara í Reykjavík,
FEB, en Ellert B.
Schram mun láta
af formennsku á
næsta aðalfundi,
12. mars.
Í framboði til
formanns eru
Ingibjörg H.
Sverrisdóttir,
Borgþór Kjærne-
sted og Haukur
Arnþórsson.
Sjaldgæft er að
kosið sé um for-
mann í FEB, því
yfirleitt hefur
hann verið sjálf-
kjörinn. Sjö sitja
í stjórn félagsins,
að meðtöldum
formanni, og þrír
eru í varastjórn.
Uppstilling-
arnefnd bárust
16 framboð til
stjórnar, einnig
frá Hauki og
Borgþóri ef þeir
skyldu ekki ná
kjöri til for-
manns.
Fyrir í stjórn FEB eru Ólafur
Örn Ingólfsson og Róbert Bender,
sem kosnir voru í fyrra til tveggja
ára. Aðrir frambjóðendur til stjórn-
ar eru Steinþór Ólafsson, Sverrir
Örn Kaaber, Viðar Eggertsson,
Finnur Birgisson, Geir A. Guð-
steinsson, Gísli Baldvinsson, Ingi-
björg Óskarsdóttir, Jón Kristinn
Cortes, Kári Jónasson, María Krist-
jánsdóttir, Sigrún Unnsteinsdóttir,
Sigurbjörg Gísladóttir, Sigurður H.
Einarsson og Steinar Harðarson.
Þrjú gefa
kost á sér
hjá FEB
Ellert B. Schram
hættir sem formaður
Ingibjörg H.
Sverrisdóttir
Borgþór
Kjærnested
Haukur
Arnþórsson
„Pólverjar bera mikinn hlýhug til
Íslendinga sem eru vel liðnir hér í
landi. Og svo eru líka 20 þúsund
manns frá Póllandi heima á Ís-
landi,“ segir Guðni Th. Jóhann-
esson, forseti Íslands, í samtali við
Morgunblaðið.
Guðni og Eliza Reid, eiginkona
hans, eru nú með föruneyti sínu í
þriggja daga opinberri heimsókn í
Póllandi og komu til Gdansk í gær.
Forsetinn hefur í heimsókninni
meðal annars heimsótt Lýðræðis-
og mannréttindaskrifstofu Örygg-
is- og samvinnustofnunar Evrópu,
sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
veitir forstöðu, sem og Háskólann í
Varsjá. Forsetafrúin hefur rætt við
pólska rithöfunda og þá var efnt til
hátíðarkvöldverðar sem Andrzej
Duda, forseti Póllands, og Agata
Kornhauser-Duda, eiginkona hans,
stóðu fyrir.
Með forsetanum í þessari heim-
sókn er meðal annars Lilja Alfreðs-
dóttir menntamálaráðherra sem
ræðir við ýmsa í Póllandi um
menntun og menningarmál.
„Í viðræðum við fólk hér höfum
við vakið máls á ýmsum mögu-
leikum sem bjóðast í samskiptum
þjóðanna. Einnig hef ég í ávörpum
minnt á ýmis þau sameiginlegu
gildi sem þjóðir heims eiga að hafa í
hávegum; það er umburðarlyndi,
víðsýni, mannréttindi og ástfrelsi,“
segir forsetinn Íslands, sem í dag
mun skoða meðal annars Stríðs-
minjasafnið í Gdansk. Heimsókn-
inni lýkur síðdegis, en þá verður
flogið heim til Íslands í gegnum
Kaupmannahöfn. sbs@mbl.is
Ræddi víðsýni og ástfrelsi
AFP
Forsetar Andrzej Duda Póllandsforseti og Guðni Th. Jóhannesson.
Forseti Íslands er í opinberri heimsókn í Póllandi
Samkeppniseftirlitið hefur veitt
Samtökum ferðaþjónustunnar, SAF,
undanþágu frá banni við samkeppn-
ishindrandi aðgerðum og samráði
fyrirtækja, til að samtökin geti auð-
veldað ferðaþjónustufyrirtækjum að
bregðast við breyttum aðstæðum
vegna kórónuveirunnar.
Með þessu er Samkeppniseft-
irlitið að bregðast við beiðni SAF
þessa efnis, þannig að fyrirtækin
geti betur gripið til aðgerða sem ætl-
að er að verja eða auka eftirspurn
eftir íslenskri ferðaþjónustu.
Þetta gerir SAF m.a. kleift að
standa fyrir umfjöllun um leiðir til
að auðvelda viðskiptavinum aðild-
arfyrirtækja að taka ákvarðanir um
kaup á ferðaþjónustu og auka svig-
rúm viðskiptavina til að bregðast við
áhættu af útbreiðslu veirunnar.
SAF geti
brugðist við