Morgunblaðið - 08.04.2020, Síða 1

Morgunblaðið - 08.04.2020, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 8. A P R Í L 2 0 2 0 Stofnað 1913  84. tölublað  108. árgangur  PLATAN ER SJÁLFSTÆTT LISTAVERK FAGNAR FLJÚGANDI FLÆKINGUM TALSVERÐUR TITRINGUR Á ÁLMÖRKUÐUM SJALDGÆFIR FUGLAR 28-29 VIÐSKIPTAMOGGINNVÍKINGUR Á TOPPNUM 58 Betolvex Fæst án lyfseðils 1mg (cyanocobalamin) filmuhúðaðar töflur Betolvex inniheldur 1 mg af cyanocobalamin (B12-vítamíni). Betolvex er gefið við B12-vítamínskorti og þegar hætta er á slíkum skorti. Viðhaldsskammtar/ fyrirbyggjandi meðferð: Venjulega 1 tafla á dag. Töflurnar skal helst taka á fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfja- fræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upp- lýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is B-12 A c ta v is 9 1 4 0 3 2 ALLT FYRIR PÁSKANA Í NÆSTU NETTÓ! Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 8. - 13. apríl Wellington Nautalund 5.999KR/KG ÁÐUR: 9.998 KR/KG Hamborgarhryggur Kjötsel 1.199KR/KG ÁÐUR: 1.598 KR/KG MIKIÐ ÚRVAL AF PÁSKAEGGJUM! -40% -25% Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is „Það hefur orðið viðsnúningur. Fólk áttar sig á að fæðuöryggi er ekki bara eitthvert hjal og sömu- leiðis hefur orðið mikil vitundar- vakning um mikilvægi hreinleika matvælanna og þar er Ísland í allra fremstu röð á heimsvísu,“ segir Ari Edwald, forstjóri Mjólk- ursamsölunnar. Í samtali við Við- skiptaMoggann segist hann lengi hafa skynjað aukna velvild í garð landbúnaðar. Ari rifjar upp komu Dominics Bartons, forstjóra alþjóðlega ráð- gjafarfyrirtækisins McKinsey, sem sagði á 100 ára afmælisfundi Við- skiptaráðs árið 2017 að landbún- aður væri atvinnugrein framtíðar- innar. „Ísland er vissulega harðbýlt og dýrt, veðurfar er óblítt og fjar- lægðir oft miklar, en á móti kemur að við höfum marga styrkleika, gnægð af fersku vatni, gott pláss og næga orku.“ En hvað segir Ari um sjónarmið fólks sem vill óheftan innflutning á landbúnaðarvörum hingað til lands? „Þetta er bæði efnahagslegt og heilsufarslegt málefni. Umræð- an hefur verið svolítið grunn um heilsufarsþáttinn. Íslendingar njóta þar góðs af ákvörðunum um fyrirkomulag mála sem teknar voru á síðustu öld.“ Minni sýklalyf og eiturefni Ari bendir á að Íslendingar séu til dæmis ekki með sýklalyf í mat- vælum í sama mæli og víða annars staðar, eða eiturefni við framleiðsl- una. „Það eru sex milljarðar á ári greiddir með nautgriparækt hér á landi. Það er há tala, en ef heil- brigði hrakar erum við að tala um aðrar stærðargráður hvað kostnað varðar. Ég tel að það sé engin fásinna fyrir ríkið að fjár- festa í bættri lýðheilsu með stuðningi við vistvæna fram- leiðslu á landbúnaðarvörum og hvatningu til landsmanna um neyslu á hreinum íslenskum mat- vælum.“ Fæðuöryggi ekkert hjal  Engin fásinna fyrir ríkið að fjárfesta í bættri lýðheilsu með stuðningi við vist- væna framleiðslu á landbúnaðarvörum  Landbúnaður atvinnugrein framtíðar MFæðuöryggi »ViðskiptaMogginn Gulur er litur sólar, sannleikans og himinsins og grænn litur táknar vonina. Blómabændur sáðu snemma vetrar fyrir páskablómunum sem nú eru fullvaxin, sprungin út og komin í verslanir. Chrysanthemum, sem á íslensku er stundum kölluð sólbrá, er ræktuð í gróðrarstöðinni Ficus í Hveragerði og þar var Katherine Lara Knight í gær að finna til fallega sendingu til blóma- unnenda. Í stöðinni hafa einnig verið ræktaðar gular begoníur og ástareldur – falleg blóm sem gera sig vel á heimilum landsmanna um hátíðina sem nú fer í hönd. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Litir blómanna boða landsmönnum betri tíð Næstu dagar munu skera úr um það hvort toppi kórónuveirufaraldursins hafi verið náð hérlendis, en óvenjufáir einstaklingar höfðu greinst með ný smit þegar tölur voru kynntar í gær, eða 24 talsins. Þetta sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á blaða- mannafundi í gær. Toppur í innlögnum á gjörgæslu á eftir að koma fram en í gær voru 13 á gjörgæslu samkvæmt vefnum covid.is. 27 gjörgæslurými eru á Landspítala og fimm á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Sjúklingar sem berjast nú við Covid-19 liggja í um 40% gjörgæslu- rýma á landsvísu. Covid-göngudeild var opnuð á Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk) á mánudag. Hún tekur á móti smituðum sem dvelja utan sjúkrahúss en þurfa eftirlit. Fjórir sýktir lágu á SAk í gær, þar af tveir á gjörgæslu og báðir í önd- unarvél. Í Þýskalandi hafa vottorð verið gef- in út fyrir þá sem hafa fengið veiruna og myndað mótefni. Þórólfur segir að það sé til skoðunar að veita slík vottorð hérlendis. Mótefnamælingar muni ekki hefjast hér fyrr en faraldurinn er farinn að réna. Það gæti mögulega verið um miðjan þennan mánuð. Fáir höfðu greinst með kór- ónuveiruna MKórónuveira »2-6, 12, 16, 32-34

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.