Morgunblaðið - 08.04.2020, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTAHáaleitisbraut 58–60 • haaleiti@bjorg.is • Sími: 553 1380
Hreinsum allar yfirhafnir,
trefla, húfur og fylgihluti
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
Covid-göngudeild var opnuð form-
lega á Sjúkrahúsinu á Akureyri á
mánudag, en hún mun taka á móti
smituðum einstaklingum sem
dvelja utan sjúkrahúss en þurfa á
skoðun að halda. Fjórir lágu inni á
sjúkrahúsinu í gær, þar af tveir á
gjörgæslu og báðir í öndunarvélum.
Bjarni Jónasson, forstjóri
Sjúkrahússins á Akureyri, segir að
svo virðist sem kórónuveirufarald-
urinn sé allt að tveimur vikum
seinna á ferðinni á Norðurlandi en
á suðvesturhorninu. Sá tími hafi
nýst vel til undirbúnings og skapað
rými til að yfirfara og aðlaga þær
lausnir sem þar hafi gefist vel í bar-
áttunni við faraldurinn, hvort held-
ur sem er innan sjúkrahússins eða
skiptingu verka milli sjúkrahússins
og annarra heilbrigðisstofnana.
Fyrsta kórónuveirusmitið á
Norðurlandi greindist 15. mars og
fyrsta innlögn smitaðs einstaklings
var 26. mars. Smit á Norðurlandi
eystra eru nú orðin 43 og alls hafa
sjö smitaðir lagst inn á Covid-deild
sjúkrahússins. Frá því að fyrsti
starfsmaður sjúkrahússins fór í
sóttkví 29. febrúar hafa alls 59
starfsmenn verið í sóttkví og þar af
sex í einangrun. Í gær lágu fjórir
smitaðir af veirunni á Sjúkrahúsinu
á Akureyri, þar af tveir á gjör-
gæsludeild og báðir í öndunarvél.
Sautján starfsmenn í sóttkví
Þá voru 17 starfsmenn sjúkra-
hússins í sóttkví og fimm í ein-
angrun, eða alls 22 starfsmenn.
Bjarni segir að vel hafi tekist að
halda úti nauðsynlegri þjónustu og
sjúkrahúsið sé vel í stakk búið til að
taka á móti sjúklingum. Mönnunar-
mál hafi enn sem komið er gengið
upp m.a. með tilfærslu starfsmanna
og þátttöku heilbrigðisstarfsfólks
úr bakvarðasveitinni.
„Ljóst er að enn frekar reynir á
mönnunarmálin á komandi dögum
og ánægjulegt er að finna að í þeim
efnum liggur enginn á liði sínu,“
segir Bjarni enn fremur.
Mikil eftirspurn í sýnatöku
„Það gengur vel og það er
ánægjulegt að sjá að fólk vill fyrir
alla muni koma í sýnatöku. Ásóknin
er mjög mikil og greinilegt að þörf
var fyrir þetta á svæðinu,“ segir
Ingibjörg Isaksen, framkvæmda-
stjóri Læknastofu Akureyrar, sem
framkvæmir sýnatöku fyrir Ís-
lenska erfðagreiningu (ÍE) vegna
kórónuveirunnar.
Sýnatakan fer fram í húsnæði á
Glerártorgi. ÍE leggur til pinna
ásamt tölvubúnaði sem til þarf og
Embætti landlæknis útvegar
hlífðarbúnað en starfsfólk á vegum
Læknastofu Akureyrar sér um
sýnatökuna.
Frumkvæði starfsfólks
„Þessi hugmynd kom að frum-
kvæði starfsfólksins okkar. Nú
þegar við framkvæmum ekki að-
gerðir skapaðist ráðrúm til að
hjálpa til og það eru allir tilbúnir að
leggja hönd á plóg. Við erum að
gera þetta fyrir samfélagið hér á
Akureyri og finnum fyrir því að það
er þakklátt fyrir þetta framtak,“
segir Ingibjörg.
Hún segir að þau hafi tekið smá
æfingu á föstudag í liðinni viku, en
útlit sé fyrir að í lok dymbilviku
hafi verið safnað um 900 sýnum.
„Eftirspurnin eftir því að komast í
sýnatöku var það mikil að við bætt-
um næstu viku við, það tók fimmtán
mínútur að fylla þá tíma sem þar
eru í boði,“ segir hún.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun
um hvort framhald verði á sýnatök-
um þegar lengra líður á apríl. Ingi-
björg segir að eftir næstu viku hafi
verið tekin sýni úr um það bil 2.500
manns.
Tveir lágu í öndunarvél á
Sjúkrahúsinu á Akureyri
Covid-göngudeild opnuð á Akureyri Fjórir lágu inni í
gær, þar af tveir á gjörgæslu Mikil ásókn í sýnatöku
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Sýnataka Aníta Stefánsdóttir var ein þeirra sem gripu tækifærið í gær og
fóru í sýnatöku sem Læknastofa Akureyrar sér um á Glerártorgi.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Lögreglan á Suðurlandi mun halda
uppi öflugu eftirliti um páskana.
Slíkt helst í hendur við tilmæli al-
mannavarna um að fólki haldi sig
heima þessa
daga, segir Odd-
ur Árnason yfir-
lögregluþjónn.
Með eftirliti til
dæmis úti á þjóð-
vegum er reynt
að halda hrað-
akstri í skefjum
sem og sporna
gegn ölvunar-
akstri, en slys af
þeim orsökum eru vel þekkt vanda-
mál. Meðal annars mun lögreglan
beina sjónum að uppsveitum Árnes-
sýslu, þar sem eru þúsundir sumar-
húsa hvar vinsælt er yfirleitt að
dvelja um páska.
„Slys myndu skapa aukið álag á
heilbrigðiskerfið, sem nóg er fyrir af
öðrum ástæðum. Við munum því
ekkert gefa eftir í löggæslunni, þrátt
fyrir að mun færri séu á ferðinni nú
en áður,“ segir Oddur. Nefnir því til
staðfestingar að í síðustu viku hafi
Suðurlandslögreglan tekið 14 öku-
menn fyrir of hraðan akstur – en al-
geng vikutala sé 60-100.
„Fólk tekur vel í þau tilmæli að
fara sér hægt meðan kórónuveiru-
faraldurinn og samkomubann standa
yfir. Langflestir eru með í liðinu og
slíkt hefur gert róðurinn auðveld-
ari,“ segir Oddur sem býst við að lög-
reglulið annars staðar á landinu
standi að með svipuðu móti og nú
gerist á Suðurlandi. Eftirlitið verði
öflugt með það fyrir augum að álag á
innviði samfélagsins aukist ekki.
Lögreglan öflug
um páskana
Fylgjast vel með sumarhúsasvæðum
Selfoss Ekið yfir Ölfusárbrúna.
Oddur
Árnason
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Misjafnt er hvernig stóru trygginga-
félögin þrjú, VÍS, TM og Vörður,
hyggjast bregðast við útspili Sjóvár
nú um helgina. Hefur síðastnefnda
félagið ákveðið að lækka iðgjöld af
bifreiðatryggingum einstaklinga
með því að fella niður gjalddaga
þeirra í maí. Í tilkynningu frá Sjóvá
var ástæðan sögð vera umtalsvert
minni umferð í kjölfar samkomu-
banns vegna kórónuveirunnar, sem
jafnframt skilaði sér í færri tjónum.
Aðspurður segir Helgi Bjarnason,
forstjóri VÍS, að fyrirtækið muni
einblína á að aðstoða viðskiptavini
sem lenda í greiðsluerfiðleikum. Þá
sé umfang greiðsluvandans ekki að
fullu komið fram. „Á þessum tíma-
punkti leggjum við höfuðáherslu á að
vera til staðar fyrir viðskiptavini
okkar sem ástandið bitnar verst á og
lenda mögulega í greiðsluerfiðleik-
um. Í því felst t.a.m. að veita við-
skiptavinum okkar greiðslufresti,
þeim að kostnaðarlausu. Þetta úr-
ræði gildir fyrir alla viðskiptavini
okkar, einstaklinga og fyrirtæki. Úr-
ræðið gildir einnig fyrir allar trygg-
ingarnar,“ segir Helgi.
Vörður hyggst bregðast við
Svipað er upp á teningnum hjá
TM að sögn Kjartans Vilhjálmsson-
ar, framkvæmdastjóri einstaklings-
ráðgjafar og markaðsmála hjá TM.
„Við erum núna að aðstoða þá við-
skiptavini okkar sem þurfa á aðstoð
að halda. Það er forgangsmál núna.
Þegar óvissunni léttir og við getum
metið heildaráhrifin verður ákveðið
hvernig koma á til móts við við-
skiptavini.“
Ólíkt VÍS og TM ráðgerir Guð-
mundur Jóhann Jónsson, forstjóri
Varðar, að fyrirtækið muni bregðast
við á næstu dögum. „Við erum búin
að vera með vinnu í gangi um að-
gerðir sem hægt er að grípa til. Við
berum hag viðskiptavina okkar fyrir
brjósti og munum mæta þeim með
svipuðu móti. Það munu ekki líða
margir dagar þar til við kunngerum
hvað við hyggjumst gera,“ segir
Guðmundur, sem kveðst ekki vilja
fara nánar í útfærsluna að svo
stöddu. Um ívilnun af einhverju tagi
sé þó að ræða.
Komið verður til móts við viðskiptavini
Vörður hyggst bregðast við útspili Sjóvár á næstu dögum Tryggingafélögin leggja áherslu á að
koma til móts við viðskiptavini í greiðsluvanda Áhrif vegna kórónuveirunnar ekki komin fram
Morgunblaðið/Eggert
Tómlegt Sökum samkomubanns er
umtalsvert minni umferð.
KÓRÓNUVEIRUSMIT Á ÍSLANDI