Morgunblaðið - 08.04.2020, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 08.04.2020, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020 Við gætum fyllsta hreinlætis og fylgjum ráðleggingum um sóttvarnir í öllum okkar viðskiptum. AUSTURSTRÆTI • SKÓLAVÖRÐUSTÍG LAUGAVEGI • AKUREYR VESTMANNAEYJUM Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Landgræðslan og Votlendissjóður- inn endurheimtu rúmlega 150 hektara votlendis á síðasta ári. Er það í fyrsta sinn sem endurheimt er meiri en það land sem ræst er fram. Við rannsóknir Landgræðsl- unnar kemur skýrt í ljós hversu mikill breytileiki er í losun gróð- urhúsalofttegunda frá landi eða allt frá sáralitlu og upp í 180 tonn af hektara. Meðaltalið er nálægt al- þjóðlegum viðmiðum. Árni Bragason landgræðslustjóri segir að svo virðist sem skilningur landeigenda á því að rétt sé að ráð- ast í endurheimt votlendis sé að gera verkefnið tortryggilegt en það sé að breytast. Eitt af vandamálunum er hversu breytileg losun lands er. Land- græðslan hefur unnið að mæling- um á nokkrum svæðum síðastliðin tvö ár, bæði sumar og vetur. „Við erum að fá betri mynd af því hvernig þetta er. Mælingarnar sýna að við erum að færast nær þeirri tölu sem miðað hefur verið við alþjóðlega, að losunin sé 19,5 tonn af gróðurhúsalofttegundum á hektara á ári, að meðaltali. Þær sýna hins vegar að losunin er frá því að vera sáralítil upp í það að vera 180 tonn á ári,“ segir Árni. Hann segir einnig að þessar ná- kvæmu mælingar skapi grundvöll til þess að hægt sé að leggja mat á landið og vatnsstöðuna og geta sagt með nokkurri vissu hver ávinningurinn verður. Því þurfi ekki að leggja í jafn miklar mæl- ingar og undirbúning endurheimtu og áður var talið nauðsynlegt. Enn er ræktað Enn er verið að ræsa fram. Mest eru það bændur að hreinsa upp úr gömlum skurðum til að halda við ræktun en einnig er verið að ræsa fram nýtt land. Árni segir að það sé oft gert án þess að það sé til- kynnt til viðkomandi sveitarfélags eins og skylt er. Talið er að þessi nýræktun sé innan við 100 hekt- arar á ári og hefur endurheimt ekki náð því marki fyrr en á síðasta ári þegar tókst að endurheimta rúmlega 150 ha. Vonast land- græðslustjóri til þess að endur- heimtan aukist í ár og verði nær 200 hekturum. Endurheimt votlendis meiri en nýrækt  Rannsóknir Landgræðslunnar sýna að losun gróðurhúsalofttegunda af landi er afar breytileg  Meðaltalið er nálægt alþjóðlegum viðmiðum  Skilningur á endurheimt votlendis fer vaxandi Ljósmynd/Landgræðslan Endurheimt Mokað ofan í skurð á Mýrum. Samhliða var losun mæld fyrir og eftir framkvæmdir. Umferð á Suðurlandvegi hefur dregist svo mikið saman að undan- förnu að Svanur Gunnarsson, veit- ingamaður í Litlu kaffistofunni í Svínahrauni, er búinn að loka staðnum fyrir öðrum en harðasta kjarna viðskiptavina sinna. „Vegna smithættu þótti okkur varlegast að loka, en svo var salan alveg dottin niður. Smurða brauðið fór bara í ruslið,“ segir Svanur. Þau Katrín Hjálmarsdóttir kona hans eru þó með opið í hádeginu fyrir fasta viðskiptavini sem koma í mat; svo sem snjóruðningsmenn sem eru á ferðinni, vörubílstjóra og fleiri slíka. „Kjúklingur og hamborgarar í dag og næst fær mannskapurinn fisk,“ segir Svanur, sem tekur 20 manns inn í einu. Fólk situr dreift um kaffistofuna; húsið við veginn sem er vinsæll viðkomustaður. „Við opnum fyrir almenningi aftur um leið og samkomubanninu lýkur. Þessi ósköp ganga yfir eins og ann- að,“ segir Svanur sem með sínu fólki hefur staðið vaktina í Litlu kaffistofunni síðan í nóvember 2016. sbs@mbl.is Lítil umferð í Svínahrauni og Svanur Gunnarsson í Litlu kaffistofunni nánast búinn að loka staðnum Morgunblaðið/Eggert Matur fyrir harðasta kjarnann Hörður Arnarson, forstjóri Lands- virkjunar, segir að það sæti furðu að alþjóðlega risafyrirtækið Rio Tinto hafi skilyrt kjarasamninga við starfs- menn sína á Íslandi aðgerðum fyrir- tækis í eigu íslensku þjóðarinnar, sem hafi ekkert með þá kjarasamn- inga að gera. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Hörður sendi frá sér í gær vegna fréttar Morgunblaðsins um að Rio Tinto leiti nú allra leiða til að draga úr tapi sínu á rekstri álversins í Straumsvík. Þar segir m.a. að fram- lenging nýs kjarasamnings, sem gerður hefur verið við starfsfólk ál- versins og á að halda til mars á næsta ári, sé bundin því skilyrði að nýr samningur takist við Landsvirkjun um raforkusölu fyrir lok júní, en fyrirtækin eiga nú í viðræðum um þá kröfu Rio Tinto að raforkusamningur vegna álversins verði endurskoðaður. Þá segir Hörður m.a. í yfirlýsing- unni að heimildarmönnum Morgun- blaðsins sé tíðrætt um erfiða afkomu Rio Tinto. „Það blasir auðvitað við að staða fyrirtækja almennt er ákaflega erfið um þessar mundir. Í fréttum af erfið- leikum Rio Tinto og taprekstri undanfarinna ára í Straumsvík er því hins vegar sjaldan haldið á lofti að ál- verið hér greiddi móðurfélagi sínu 130 milljónir dollara í arð árið 2017. Á þeim tíma var sú arðgreiðsla hærri en samanlagðar skattgreiðslur og all- ur arður Landsvirkjunar frá upphafi til eiganda síns, íslensku þjóðar- innar.“ Tengir kjarasamning við orkuviðræður  Bendir á arðgreiðslur álversins
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.